Víkurfréttir - 18.01.2001, Qupperneq 18
1. deild kvenna
íþróttahúsið í Keflavík
Keflavík - ÍS.
sunnudagurinn 21. janúar kl.
/UVX7 1
Harpa opnar
málningarverslun
Málningarverksmiðjan
Harpa hf. hefur opn-
að sérhæfða máln-
ingarverslun við Hafnargötu
90 í Keflavík, þar sem áður var
verslunin Dropinn. Atli Már
Einarsson, málari, hefur verið
ráðinn verslunarstjóri en liann
hefur starfað við sölu málning-
ar um árabil.
Fagleg ráðgjöf
Harpa hf. keypti verslunina
Dropann í maí 2000 og rak hana
fram til síðustu jóla en þá var
ráðist í breytingar sem nú er lok-
ið. Harpa verður með málningar-
verslun fyrir almenning og fag-
menn og leggur áherslu á að
þjóna báðum þessum hópum
með faglegum og vönduðum
hætti.
Þrír starfsmenn verða í verslun-
inni. Þeir eru allir með sérþekk-
ingu og geta boðið viðskiptavin-
um faglega ráðgjöf varðandi
vinnubrögð, litaval og annað sem
þarf þegar ráðist er í að mála.
Ný gólfefnaverslun
Harpa hf. verður ekki með gólf-
efni, baðherbergisvörur og fleiri
vöruflokka sem seldir voru í
Dropanum. Einungis verður um
að ræða málningu og aðrar skild-
ar vörur-allt sem þarf til málunar
innan- og utanhúss. Hins vegar
verður opnuð alhliða gólfefna-
verslun í eigu Teppalands nú í
febrúar í því húsnæði sem Drop-
inn hafði gólfefnasölu sína í. Þar
verður einnig til sölu hreinlætis-
tæki og aðrar vörur fyrir baðher-
bergi. Sú verslun verður við hlið
málningaverslunar Hörpu þannig
að vipskiptavinir geta fengið
þjónustu í flestum sömu vöru-
flokkum og verið hefur um árabil
á þessum stað.
Vlnsælar verslanir
Verslun Hörpu hf. í Keflavík
verður fjórða málningarverslun
fyrirtækisins en fyrir eru verslan-
ir að Stórhöfða 44 og Skeifunni 4
í Reykjavík og í Bæjarlind 6 í
Kópavogi. Þær verslanir hafa
fengið mjög góðar viðtökur og
njóta vinsælda. Hörpumenn gera
sér vonir um að Suðumesjamenn
taki hinni nýju sérhæfðu máln-
ingarverslun fyrirtækisins vel og
prófi þá fagþjónustu sem í boði
er.
Beitningamenn
óskast
Óska eftir beitningamönnum,
beitt er í Keflavík.
Upplýsingar í símum 894 1520,
555 !972og 555 4203.
- ári eftir andlát Orlygs Sturlusonar
Njarðvíkingar skutu
sér á topp Epson
deildarinnar í körfu
á þriðjudagskvöld með sigri
á Keflvíkingum 74-63 í
Ljónagryfjunni á Brekku-
stígnum. Þessi bestu lið
landsins síðustu 20 árin
(áhangendur beggja kalla
hitt liðið hjáleiguna) mætt-
ust einn einu sinni með topp-
sætið að veði og Njarðvík-
ingar heiðruðu andlátsdag
Örlygs með uppáhaldi pilts,
grjóthörðum varnarleik.
Framanaf leik virtust þó
heilladísimar með Keflvíking-
um því þeir Magnús Gunnars
og Birgir Guðftnns (einu stig
þeirra í leiknum) skiluðu þeim
góðum flautukörfum í fyrsta
og öðrum leikhluta. í þeim
þriðja skildi á milli, vöm
Njarðvíkinga varð að ókleyf-
um múr og Logi „elding“
Gunnars hitnaði í sókninni.
Friðrik Ragnars kom Njarðvík
í 58-49 með því að endur-
greiða Magnúsi flautukörfuna
í fyrsta leikhluta. Síðasti leik-
hluti var síðan jafn og spenn-
andi en bilið varð ekki brúað
og verðlaunin toppsætið
óskipt því Tindastóll setti illi-
lega í brók gegn botnliði
Vals/Fjölnis á sama tíma.
Bestir Njarðvíkinga voru stóm
mennimir Friðrik og Jes sem
söfnuðu í kirkjubaukinn 22
stigum og 19 fráköstum á
sama tíma og þeir vörðust
toppmanni deildarinnar Calvin
Davis sem var yftrburðamaður
í Keflavíkurliðinu með 20 stig
og 14 fráköst, hvorugtveggja
þó undir meðaltali pilts. Þá er
hluti Loga ótalinn en hraðinn á
pilti er stundum meiri en aug-
að nemur. Spumingamar „Má
ég fá að sjá þetta aftur?“ og
„Hvað gerði hann?“ koma
stundum upp í hugann þegar
hann er annars vegar.
Einn maðurtil eða frá?
Fjarvera Fals Harðarsonar
vegna meiðsla og endurkoma
Friðriks Stefánssonar hefur
breytt báðum liðum svo um
munar. An Fals hefur Keflvík-
inga vantað „leiðtoga" á
lokamínútum leikja, mann
sem getur kiárað leikina sjálf-
ur sem og komið öðrum leik-
mönnum í færi til að gera slíkt
hið sama. Hinum megin í
bænum hefur Friðrik breytt
ólgandi árfarveg í ágætis stíflu
og er ég hér að tala um vamar-
leik Njarðvíkinga. Liðið hefur
umhverfst úr lélegasta vamar-
liði deildarinnar í það besta á
einum mánuði.
Enn í sjöunda sæti
Grindvíkingar unnu ömggan
sigur á nýliðum ÍR 104-82 í
Grindavóc. Einar Einarsson
virðist hafa náð sér í ágætis
leikmann í Kevin Daley og
hann skoraði 27 stig og tók 12
fráköst gegn ÍR-ingum sem
ekki hafa unnið leik eftir ára-
mót og em dottnir niður fyrir
Borgnesinga eftir stórgóða
byrjun. Elentínus Margeirs átti
Hún Rósa verður
40 ára 21. janúar. Ætlar hún að
vera heima á afmælisdaginn
með kaffi á könnunni og
Glasgow konfekt.
Á morgun föstudaginn
19. janúar verður
Eiríkur Heiðar Eiríksson
40 ára. Hann tekur á móti gestu
á víkinni, Hafnargötu 80,
Keflavík eftir kl. 20
á afmælisdaginn.
Fyrir rúmu ári síðan (9. janúar)
fékk þessi unga dama þennan
litla prins í afmælisgjöf, þá varð
hún 29. ára. Elsku Eygló (30 ára)
og Eyþór Vilmundur (l. árs) til
hamingju með daginn.
Fjölskyldurnar frá Laufási.
ÍB