Víkurfréttir - 02.08.2001, Side 14
Takk íynr að
virða okkur!
VÍMULAUS VALKOSTUR
IRB- Forvarnir i Reykjanesbæ
Styrktaraðilar: Happi / Saltver hf
AtriAið á myndinni er sviðsett
Skemmtum okkur
ÁN ÁFENGIS!
Starfsfólk Vinnuskóla Reykjanesbæjar
Spennandi kvöld
framundan
Kcdvíkingar mæta Skaga-
mönnuni á Skaganum í
12. umferð íslandsmóts-
ins í knattspymu í kvöld. Kefl-
víkingar eru nú í 6. sæti deild-
arinnar með 15 stig eftir að lið-
ið gerði jafntefli við Fylki í síð-
ustu viku. Leikir liðsins hafa
verið mjög mismunandi en
vonandi eru strákarnir búnir
að flnna taktinn. Búast má við
spennandi leik á Akranesi á
fimmtudagskvöld en heima-
menn eru í 2. sæti, einu stigi
fyrir neðan Fylkismenn.
Spurning hvort Keflvíkingum
takist að stöðva sigurgöngu
Skagamanna eins og þeir
stöðvuðu Fylkismenn þegar
Keflvíkingar knúðu fram 2-2
jafntefli.
I kvöld mætast einnig Grindvík-
ingar og Breiðablik í Kópavogin-
um. Síðasta leik liðanna lauk
með sigri Grindvíkinga sem þá
voru á heimavelli. Blikamir em á
botni deildarinnar með 7 stig en
Grindvíkingar eru í því 7. með
15 stig. Aðeins nokkrir leikir
skilja að efstu og neðstu lið og
því aldrei að vita hvað gerist í
næstu umferðum og hver leikur
skiptir máli. Suðumesjamenn em
hvattir til að hvetja sín lið áfram,
hver svo sem þau em.
Ij j J CÖLLUN
VEGNA RAFRÆNNAR SKRÁNINGAR
HLUTABRÉFA I KEFLAVÍKURVERKTÖKUM HF.
Mánudaginn 15. október2001 verða hlutabréf í Keflavíkurverktökum hf. tekin til rafrænnar
skráningar hjá Verðbréfaskráningu (slands hf. í samræmi við ákvörðun stjórnar Keflavíkurverktaka hf.
þar að lútandi. Þar af leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann dag.
Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf í fyrirtækinu í samræmi við ákvæði laga og
reglugerðar um rafræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf í Keflavíkurverktökum hf. tekin til rafrænnar skráningar en
þau eru öll í einum flokki og gefin út á nafn hluthafa. Útgáfudags er getið á hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur ofangreindra hlutabréfa sem telja nokkurn vafa leika á að
eignarhald þeirra sé réttilega fært í hlutaskrá Keflavíkurverktaka hf. að staðreyna skráninguna
með fyrirspurn til hlutaskrár Keflavíkurverktaka hf., pósthólf 16, 235 Keflavíkurflugvelli eða
í síma 420-6400. Komi í Ijós við slíka könnun að eigendaskipti hafi ekki verið skráð ber
eigendum að færa sönnur á þau gagnvart félaginu fyrir nefndan dag.
V . ^ ■ -j-'SC/
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð réttindi til ofangreindra hlutabréfa,
s.s. veðréttindi, að koma þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka,
verðbréfafyritæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildarsamning við Verðbréfaskráningu fslands hf,
fyrir skráningardag.
Athygli hluthafa er vakin á að hin áþreifanlegu hlutabréf félagsins verða ógild sjálfkrafa og því
er ekki þörf á að skila þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli rafrænnar skráningar
hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum
sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikningsstofnun umsjón með eignarhlut slnum
í félaginu til að geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reikningsstofnun mun í þessu
skyni stofna VS-reikning í nafni viðkomandi hluthafa.
Stjórn Keflavíkurverktaka hf.
m
/ i ,
||É
KEFLAVIKURVERKTAKAR
14