Víkurfréttir - 05.09.2002, Page 10
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
✓
FRETTIR
AÐSENT
lirunn»tsujy
hjá Gallerý förðun i húsi Heilsulindarinnar, Hafnargötu 39
1 fii íflli
; ifi inn
jrnr ’•
L
augardag kl. 13-20 og sunnudag kl. 13-18.
Allt með
30% - 50% - 80% ahlætti
galleryföi
Nokkrir jákvæðir punktar í sumarlok
K E F L A V
Sjóðheitt en líka svalandi
TVF tímarit á öllum helstu
blaðsölustöðum!
Þegar sumri hallar og sumarffí taka
enda fer hið hefðbundna líf bæjarbúa
að færast í fastar skorður. Skólar
byrja og hjól atvinnulífsins fara að
snúast með eðhlegum hætti og með
fúllmannaða áhöfh starfsmanna.
Það sama á við um nefndarkerfi
sveitarfélagsins sem að hluta liggur
niðri að surnri á meðan á sumarfrium
stendur. I kjölfar endurnýjunar
vegna kosninga í vor og rólegrar
starfsemi í sumar fer nefndarfólk og
embættismenn nú að undirbúa fjöl-
mörg verkefni vetrarins sem
framundan er.
Þrátt fyrir það hafa mörg mál náð
góðu flugi í sumar sem hafa orðið
bæjarfélaginu og bæjarbúum til góðs
og vert er að minnast á.
Umhverfisátak
Eitt af áhersluatriðum Sjálfstæðis-
manna fyrir kosningar í vor var
hreinsunarátak á jaðarsvæðum sveit-
arfélagsins, þ.e. iðnaðarsvæðum og
meðffam strandlengjunni. Verkefhi
þetta var undirbúið vel í byrjun sum-
ars og var hrundið í framkvæmd í
ágústbyijun. Því lauk formlega 31.
ágúst s.l. þó enn sé unnið að því að
fjarlægja járnarusl sem bæjarbúar
vilja losna við úr bænum.
Mér finnst ástæða til þess að þakka
öllum sem að verkefhinu komu fyrir
frábært starf og bæjarbúum óska ég
til hamingju með góðan árangur en
líklegt er að um eitt þúsund tonn af
járni og timbri verði fjarlægð úr
bænum að átakinu loknu, - rusl sem
engum var til gagns en mörgum
þymir í augum til margra ára.
Víkingaskipið Islendingur
Bæjarstjóri leiddi farsællega viðræð-
ur fjölmargra aðila um kaup á vík-
ingaskipinu Islendingi sem hefði
heimahöfh í Reykjanesbæ. Á hann
mikinn heiður skilin fyrir það verk-
efni. Reykjanesbær verður minni-
hlutaeigandi í skipinu en tryggir
rekstur þess og um leið staðsemingu
hér í bæ. Miklar hugmyndir eru um
framtíðarmöguleika í ferðaþjónustu
tengdu skipinu og er áhugi innlendra
og erlendra aðila á verkefhinu mikill.
Öruggt er að skipið gefur okkur
tækifæri sem aldrei fyrr á að stöðva
ferðamenn sem um svæðið fara en
ekkert sveitarfélag á landinu hefur
meiri möguleika en Reykjanesbær á
að gripa erlenda ferðamenn og selja
þeim vörur og þjónustu, þar sem
langflestir þeirra fara um bæinn
a.m.k. tvisvar á ferð sinni til og frá
landinu.
Nikkel-svæðið
Nú í vikubytjun var hafist handa við
að flarlægja girðingu sem stóð um-
hverfis Nikkel-svæðið og hefur verið
ibúum hér í bæ til óþurftar um fjöl-
mörg ár. Er þar með lokið baráttu
við hreinsun svæðisins sem staðið
hefur í meira en áratug. I sumar var
grasÍTæum sáð um svæðið og öruggt
er að ásýnd þess verður með öðrum
hætti á næstu árum en hingað til.
Bæjaryfirvöld |
munu á næst-
unni hefjast I
handa við að
skipuleggja
svæðið og leita |
effir upplýsing-
um um hvort og I
þá hvar megi
byggja þar íbúðabyggð. Sú mikla
sjónmengun sem þar var af gömlum
oliutönkum, byggingum og girðingu
er hins vegar horfin og er það vel.
Ljósanótt
Fram á sunnudag verða hátíðarhöld í
Reykjanesbæ í tilefni Ljósanætur
sem á hápunkt sinn á laugardags-
kvöld. Dagskrá er þétt og glæsileg
og stórkostlegt að sjá hversu margir
bæjarbúar leggja hönd á plóg við að
gera þá dagskrá fjölbreytta og við-
burðarmikla. Keppni um Ljósalagið
var ánægjuleg viðbót við þá atburði
sem verið hafa á Ljósanótt á síðustu
tveimur árum og verður vonandi að
árlegum viðburði héðan í frá. Kepp-
endur voru fjölmargir, lögin voru
góð, keppnin vel skipulögð og vakti
verðskuldaða athygli á sveitarfélag-
inu okkar. Um leið og ég hvet alla
bæjarbúa til þess að njóta þeirra við-
burða sem í boði eru á næstu dögum
skora ég á okkur öll að taka virkan
þátt í dagskránni.
Böðvar Jónsson
formaður bæjarráðs
Næstu námskeið
. _ Innritun í þessi námskeið stendur yfir
Eldri borgarar
Bjóðum nú upp á 30 stunda námskeið
sniðið að þörfum eldri borgara.
Engin undirstaða nauðsynleg. Róleg yfirferð.
60 ára aldurstakmark.
Vefsíðugerð 1
hefst 10. sept.
Markmið námskeiðsins er að þátttakendur verði
færir um að nota tölvuna til að skrifa texta, setja
hann snyrtilega upp og prenta.
Leita upplýsinga á Netinu ofl.
Hefst 16. september
Tölvuviðgerðir
bilanagreining
hefst 21. sept.
Tölvuskóli
Suðurnesja
Hafnargötu 51 - 55 • Reykjanesbæ
■■■■■■■■
Nánari upplýsingar á www.tss.is
eða í síma 421 4025
10