Víkurfréttir - 07.11.2002, Page 6
Lestu Víkurfréttir á Netinu daglega á slóðinni www.vf.is
Solla í Nýmynd 20 ár á bakvið myndavélina:
Hefur myndað
búsundir manna
Éfs* ólvcig Þórðardóttir Ijós-
myndari og cigandi
Ijósmyndastofunnar
Nýmynd í Keflavík fagnar
um þessar mundir 20 ára
starfsafmæli, en nk. mánudag
eru 20 ár liðin frá því Ijós-
myndastofan opnaði. Sólveig
hóf nám í Ijósmyndun hjá
Hcimi Stígssyni árið 1973 og
starfaöi hjá Ljósmyndastofu
Suðurnesja þar til hún stofn-
aði Nýmynd 11. nóvember
1982. A fyrstu árum sínum
sem Ijósmyndari sá Sólveig
um framköllun og stækkun
fyrir Víkurfréttir og segir
hún aö það hafi veriö mjög
skemmtilegur tt'mi: „Það var
náttúrulega stress í kringum
vinnunna fyrirVíkurfrétttr,
en þetta var ofsalega gaman,"
segir Sólveig. í gegnum árin
hefur Sólveig tekið mvndir af
þúsundum einstaklinga og
hcfur hún upplifað ýmsa
hluti í starfi sínu: „Einu sinni
kom stelpa á stofuna til mín
og vildi láta mig mynda sig
með tvær eðlur og skjald-
böku, en ég var nú hálf
stressuð yfir því að vera með
þessi kvikindi á stofunni hjá
mér.“
Sólveig segir að í ljósmynda-
geiranum hafi töluvert breyst
frá því hún byijaði íyrir tæpum
30 árum: „Þegar ég var að
byija voru bara svarthvítar
myndir, en litmyndimar voru
að koma. í dag er þetta orðið
þannig að ég tek mjög mikið af
svarthvitum myndum og mynd-
um með brúnum tónum í.
Þannig að þetta er komið í heil-
an hring,“ segir Sóiveig en hún
er maður vikunnar að þessu
sinni.
- sjá aftar i bladinu.
Erill hjá
Keflavíkur-
lögreglunni
Tveir aðilar voru með lægstu tilboð í malbikun
eða steypulögn í breikkun Reykjanesbrautarinnar
Tveir aðilar voru með lægstu tilboð í
malbikun eða steypulögn í brcikkun
Reykjanesbrautarinnar frá Hvassa-
hrauni að Strandarheiði. Utboðin voru
opnuð í húsakynnum Vegagerðarinnar í
Reykjavík. Islenskir aöalvcrktakar hf.
voru með lægsta tilboðið miðaö við að kail-
inn yrði steyptur, alls 673,3 millj. kr.
Lægsta tilboð í malbikun kaflans kom frá
Háfclli chf./Jaröavélum chf. og Eykt ehf.
fyrir kr. 616 millj. kr. Sjö tilboð bárust en
fjögur tilboð bárust frá aðilunt i báða
þættina, þ.e. steypu og malbikun.
Kosmaðaráætlun hljóðaði upp á 993 m.kr. i
malbikun og 1.090 m.kr. í steypu og voru
lægstu tilboðin því nálægt 40% undir kosm-
aðaráætlun. Miðað við að lægstu tilboðum
verði tekið er ljóst að tvöföldun brautarinnar
frá Reykjanesbæ að Hafnarfirði kostar um
2,5 milljarð króna. Fulltrúar Vegagerðarinnar
voru ánægðir með tilboðin og sömuleiðis var
hljóðið gott i forsvarsmönnum Ahugahóps
um tvöföldun Reykjanesbrautarinnar en þeir
voru viðstaddir opnun tilboðanna. Fulltrúar
hópsins undir stjóm Steinþórs Jónssonar gáfú
öllum tilboðshöfúm og fúlltrúum Vegagerðar-
innar kaffipakka frá Kaffitár í tilefni dagsins.
„Þetta eru góðar tölur og gemr orðið til þess
að flýta tvöfölduninni”, sagði Steinþór.
Nemendur í Njarðvíkurskóla:
Fundu risakönguló
FRÉTTIR 11 STÓRT & SMÁTT
Nemendur í 8.GS eru nú
mcð óþekkta könguló í
búri og fylgjast grannt
mcð atferli hcnnar. Þessi
kiinguló er stór á íslcnskan
mælikvarða (búkur um 2cm
og leggir um 5cm) og lcikur
grunur á að hún sé „nýbúi”.
Nemendum hefur ekki tekist
að að greina hvaða köngulóa-
tegund er í búrinu. Liklegt þyk-
ir þó hér sé um fraktkönguló að
ræða (Tegenaria saeva). Nem-
endumir þurfa að fæða hana á
öðrum skordýrum sem þeir
veiða.
Félags- og
menningar-
miðstöð ungs
fólks í Reykja-
nesbæ
Abæjarstjórnarfundi sem
haldinn var á þriðjudag
voru tcknar til umræðu
tillögur frá
bæjarfulltrú-
um Sjálfstæð-
isflokksins og
Framsóknar-
flokksins um
að sett verði á
stofn upplýsinga- og menn-
ingarmiöstöö fyrir ungt fólk í
Reykjanesbæ. I tillögunum cr
bent á þiirfina fyrir slíka miö-
stöð sent myndi nýtast ungu
fólki, jafnt sem samkomu-
staður cn cinnig staður fyrir
margskonar starfscmi.
í tillögu Sjálfstæðisflokksins
segir m.a.: „Fjölmargar hug-
myndir eru uppi um nýtingu
hússins og má þar nefna að-
stöðu Vinnuskóla, bækistöð
Utideildar, æfingaaðstaða fyrir
unglingahljómsveitir, auk þess
sem þar yrði nokkurskonar
þjónustumiðstöð tómstunda
fýrir alla grunnskóla bæjarins.
Nýstofnað Tómstundabandalag
Reykjanesbæjar, TRB, gæti haff
í húsinu aðalbækistöð sína, en
það telur nú 15 aðildarfélög
með um 700 félagsmenn.”
R0LEGT A BRAÐAVAKTINNI
Rólegt var um hclgina á
Heilbrigðisstofnun Suð-
urnesja að sögn Konráðs
Lúðvíkssonar yfirlæknis. 12
heilsugæslulæknar sögðu upp
störfum á hcilsugæslu Heil-
brigðisstofnunarinnar sl.
fimnitudag og er cinungis sinnt
bráðavakt á hcilbrigöisstofnun-
inni. Konráð segir þó að hjúkr-
unarfræðingar taki á nióti
sjúklingum og nieti það livert
þeir þurfi að fara ttl frckari að-
hivnningar:
„Hjúkrunarfræðingar sinna hluta
af því starfi sem heilsugæslu-
læknar sinntu og meta það hvert
senda eigi sjúklinga. Það voru
tveir læknar á vakt um helgina en
það var ósköp rólegt að gera og
það er eins og fólk haldi að engin
starfsemi sé hér á heilbrigðis-
stofnuninni,” sagði Konráð í
samtali við Víkurfféttir.
Nokkur erill var aðfar-
arnótt sunnudags hjá
lögreglunni í Keflavík
vegna ölvunar og óspekta.
Einn fékk að gista í fanga-
geymslum og öðrum þurfti að
koma undir læknishcndur
með áverka í andliti. Þar
þurfti að sauma nokkur sár
og gcfa plástur.
Umferðaróhapp varð á laugar-
dagskvöld í Innri-Njarðvík þar
sem ekið var aftan á kyrrstæða
og mannlausa biffeið. Fjarlægja
þurfti báða bílana með kranabíl
og einn var fluttur til skoðunar
á slysamóttöku.
6