Morgunblaðið - 15.06.2016, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 15.06.2016, Blaðsíða 1
Í SAINT-ÉTIENNE Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is ,,Við áttum hreinlega bara að vinna þetta,“ sagði Hannes Þór Hall- dórsson, markvörður íslenska lands- liðsins, og brosti í kampinn þegar Morgunblaðið spjallaði við hann eftir frækna frammistöðu íslenska liðsins gegn Portúgölum í fyrsta leiknum á EM í knattspyrnu í gær. 1:1 urðu úr- slitin í leik þar sem Hannes Þór átti frábæran leik á milli stanganna. ,,Okkur líður auðvitað mjög vel með þessi úrslit. Portúgalar eru með eitt af bestu liðum í heimi og að gera jafn- tefli við þá í fyrsta leik á stórmóti er alveg magnað. Mér fannst við verð- skulda þessi úrslit. Við unnum svo sannarlega fyrir þessu stigi. Menn lögðu allt í leikinn. Við vörðumst frá- bærlega vel sem ein liðsheild og þessi tilfinning að spila fyrsta leik á stór- móti fyrir Ísland með átta þúsund Ís- lendinga með okkur í liði og með stór- fjölskylduna á leiknum var ólýsanleg,“ sagði Hannes sem sýndi stórbrotna markvörslu í fyrri hálfleik þegar hann varði skalla frá Nani af stuttu færi. ,,Þessi varsla verður tekin nokkrum sinnum í rútunni á eftir, sagði Hannes og hló. ,,Ég þurfti að verja fótinn til að verða fyrir boltanum og þetta er eitt- hvað sem við æfum vel fyrir leiki, skot og skalla af stuttu færi. Þessi úrslit eru frábært veganesti að öllu leyti. Þetta var sterkur punktur sem við náðum okkur í og hann er mjög mik- ilvægur upp á framhaldið,“ sagði Hannes. Var helvíti erfiður ,,Fyrri hálfleikurinn var okkur hel- víti erfiður. Þeir fengu færi til að skora fleiri en eitt mark en Hannes bjargaði okkur og sérstaklega þegar hann varði skallann frá Nani. Hann var frábær í leiknum, sagði Kári Árnason við Morgunblaðið eftir leik- inn. ,,Í seinni hálfleik fannst mér við hafa góða stjórn á leiknum. Auðvitað hótuðu þeir okkur enda með frábært lið en mér fannst jöfnunarmark okk- ar slá þá töluvert út af laginu. Við hefðum svo alveg geta stolið sigrinum undir lokin. Eins og við höfum sýnt svo margoft þá er drulluerfitt að skora gegn okkur. Kannski var ekki rétt ákvörðun hjá mér að hlaupa út í manninn í aðdraganda marksins því þar með skildi ég Nani eftir. Mér fannst okkur takast bara vel í það heila að halda Ronaldo í skefjum. Samstarfið hjá okkur Ragga gengur vel og við vissum allan tímann hvar hann var,“ sagði Kári. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Lokaði Hannes Þór Halldórsson, markvörður, steig vart feilspor gegn Portúgal í gær. Hér fagnar hann með Guðmundi Hreiðarssyni, markvarðaþjálfara. Við unnum fyrir þessu  Ólýsanlegt að spila fyrsta leikinn á stórmóti með stuðning átta þúsund Ís- lendinga, sagði Hannes Þór  Hefðum getað stolið þessu, sagði Kári Árnason MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 ÍÞRÓTTIR Körfuknattleikur LeBron James og félagar hans í Cleveland Cavaliers eru ekki af baki dottnir í keppninni um NBA-meistaratitilinn. Þeir unnu góðan sigur á útivelli og halda enn í vonina um að snúa við taflinu 4 Íþróttir mbl.is  Hannes Þór Halldórsson varði mark íslenska landsliðsins í knatt- spyrnu frábærlega á EM gegn Portúgal í gærkvöld.  Hannes fæddist 1984 og lék með Leikni R., Aftureldingu, Stjörnunni, Fram og KR til 2013. Hann varð tvisvar Íslandsmeistari og tvisvar bikarmeist- ari með KR. Hannes lék með Sandnes Ulf í Noregi og síðan NEC Nijmegen í Hollandi en var lánaður til Bodö/Glimt í Noregi í mars. Hann hefur verið að- almarkvörður Íslands frá 2012 og lék í gærkvöld sinn 34. landsleik. ÍÞRÓTTA- MAÐUR DAGSINS Frjálsíþróttakon- urnar Aníta Hin- riksdóttir úr ÍR og Ásdís Hjálms- dóttir úr Ármanni tóku þátt í al- þjóðlegu frjáls- íþróttamóti í Lu- zern í Sviss í gærkvöldi. Aníta hafnaði í öðru sæti í 800 m hlaupi en Ásdís varð fjórða í spjótkasti. Aníta hljóp á 2.03,17 mínútum og var 30/100 úr sekúndu á eftir Linsey Sharp frá Bretlandi sem kom fyrst í mark. Joanna Jozwich frá Póllandi hafn- aði í þriðja sæti ásamt Selina Büchel frá Sviss en báðar komu í mark á 2.03,78. Ásdís náði ekki að sýna sínar bestu hliðar og kastaði lengst í fimmtu umferð, 57,35 metra. Önnur köst hennar í keppninni mældust 55,05, 55,55, 54,95 og 54,90 metra. Sigurvegari varð Kathryn Mitch- ell frá Ástralíu. Hún kastaði lengst 62,97 metra og var eini keppandinn sem náði að kasta spjótinu yfir 60 metra markið. iben@mbl.is Aníta önnur en Ásdís varð fjórða í Sviss Aníta Hinriksdóttir Hvað fannst þeim um frammistöðu Íslands gegn Portúgal á EM í Saint-Étienne í gærkvöld? „Þetta var geggjað, maður!“ sagði afar ánægður fyrrverandi landsliðsþjálfari, Ólaf- ur Jóhannesson. „Ég var eiginlega alveg viss um að við myndum vinna leikinn. Það var ekkert að gerast hjá Portúgal. Allir komu 3-4 sinnum við boltann, það var ekk- ert tempó á boltanum, þannig að ég var klár á því að þeir myndu ekki skora. Ro- naldo gat gjörsamlega ekki neitt í þessum leik.“ „Mér fannst við spila leikinn algjörlega frábærlega í vörninni. Auðvitað fá Portú- galar alltaf einhver færi en við fengum færi líka. Gylfi fékk fyrsta færi leiksins og í 99% tilvika skorar hann í svona færi. Menn voru að tala um að sofna yfir bók frá Togga [Þorgrími Þráinssyni] en ég held að Gylfi þurfi tvær slíkar til að sofna eftir þetta færi. bgretarsson@mbl.is Gylfi þarf tvær Togga-bækur til að sofna Ólafur Jóhannesson „Það var ótrúlegt að þeir skyldu halda dampi. Manni fannst þetta vera „deja-vu“ frá Hollandsleiknum, ótrúlega flott skipulag og maður fann það frá fyrstu mínútu hversu mikill kraftur var í liðinu,“ sagði Edda Garð- arsdóttir, fyrrverandi landsliðskona. „Það voru flottar færslur og allir að bakka hver annan upp. Þegar þeir fóru í pressuna, fóru þeir sem ein heild en voru samt ekki að fara of hátt með línuna. Maður missir aldrei trúna þegar þeir eru í svona ham. Hannes var t.d. með frábærar staðsetningar allan leikinn.“ Edda hlær við þegar blaðamaður segist vera kominn kannski örlítið fram úr sér í væntingum. „Maður er bara búinn að vinna Eurovision! Ég sá leik Aust- urríkis og Ungverjalands og við getum klárlega unnið bæði þessi lið,“ sagði Edda. bgretarsson@mbl.is Við getum unnið Austurríki og Ungverjaland Edda Garðarsdóttir „Þetta var ótrúlegt, maður er skjálfandi ennþá,“ sagði Pétur Pétursson, fyrrverandi landsliðsmaður, skömmu eftir leik. „Að sjá alla Íslendingana þarna í áhorfendastúkunni var yndislegt. Ég varð bara klökkur sem gamall landsliðsmaður þegar ég sá þetta.“ Pétur var hrifinn af leik liðsins. „Ég hugs- aði bara, vá, þeir eru mættir og það er ekk- ert vesen á þeim. Þeir eru bara mættir til að gera einhverja hluti á þessu móti. Manni fannst við kannski stundum geta verið örlítið rólegri á boltann en þetta var frábært. Framherjarnir unnu rosalega vel fyrir liðið. Jón Daði hleyp- ur allan tímann og það er gríðarlega mikilvægt að hafa svona senter eins og Kolbein sem tekur svona marga skallabolta. Strákarnir eru mættir á EM til að gera eitthvað, ekki bara til að vera með,“ sagði Pétur Pétursson. bgretarsson@mbl.is Þeir eru mættir til að gera eitthvað á EM Pétur Pétursson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.