Morgunblaðið - 15.06.2016, Síða 3

Morgunblaðið - 15.06.2016, Síða 3
AFP ÍÞRÓTTIR 3 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 15. JÚNÍ 2016 Mættur á ný í sitt ómiss- andi hlutverk til að loka öllum mögulegum glufum fyrir framan vörnina. Geysilega kraftmikill, alltaf á réttum stað til að verjast og skilaði bolt- anum mjög vel frá sér. Aron Einar Gunnarsson Fékk dauðafæri strax á 3. mínútu og var óheppinn að skora ekki. Vann gíf- urlega vel fram og til baka á miðjunni frá fyrstu til síðustu mínútu. Fékk ekki mörg færi til að láta að sér kveða fram á við. Gylfi Þór Sigurðsson Var á réttum stað þegar mest lá við, las stöðuna hárrétt þegar hann laum- aði sér inn á bak við varn- armann Portúgala og jafnaði metin. Á fullri ferð allan tímann, skynsamur og sívinnandi. Birkir Bjarnason Fékk ekki marktækifæri en vann gífurlega vel fyrir liðið og kom mikið til baka. Hirti flesta skalla- bolta í uppstilltum atrið- um í sókn og fjölmarga þegar liðið varðist. Kraft- mikill allan tímann. Kolbeinn Sigþórsson Sýndi endalausa vinnslu og dugnað. Stöðugt að trufla varnarmenn Portú- gala, náði mörgum erf- iðum sendingum og hélt boltanum innan liðsins. Átti stóran þátt í mark- inu. Jón Daði Böðvarsson Alfreð Finnbogason kom inn á fyrir Kolbein á 80. mínútu og komst í gott færi á 86. mínútu þar sem Rui Patrício þurfti að hafa fyrir því að verja. Theódór Elmar Bjarna- son kom inn á fyrir Jóhann á 90. mínútu. Á bekknum: Ögmundur Kristinsson, Ingvar Jónsson, Haukur Hauksson, Hjörtur Hermannsson, Sverrir Ingi Ingason, Rúnar Sig- urjónsson, Hörður B. Magn- ússon, Emil Hallfreðsson, Arnór I. Traustason, Eiður Smári Guðjohnsen. Varamenn Íslands Byrjaði ágætlega en komst annars ekki mikið inn í leikinn í fyrri hálf- leik. Átti glæsilega stoð- sendingu á Birki þegar mest lá við. Vinnusamur og hjálpaði vel til í varn- arbaráttunni. Jóhann B. Guðmundss. Stefanía Da-ney Guð- mundsdóttir, Eik, setti í gær Íslandsmet í 400 m hlaupi í flokki T20 (þroskahaml- aðir) á Evrópu- meistaramóti fatlaðra. Stef- anía kom í mark á tímanum 68,97 sekúndum. Tíminn er nýtt Íslandsmet en þetta er í þriðja sinn sem Stefanía keppir á brautinni í Grosetto á Ítalíu og í öll skiptin hefur hún bætt tímana sína. Árangur Stef- aníu dugði henni þó ekki inn í úr- slit. Stefanía verður aftur á ferðinni á fimmtudaginn en þá keppir hún í langstökki. Í dag keppir Helgi Sveinsson, Ármanni, í spjótkasti og Arnar Helgi Lárusson, UMFN, lýkur keppni sinni á mótinu með 100 metra hjólastólakeppni.    Fimm frjáls-íþrótta- menn hafa verið valdir til að keppa á al- þjóðlegu ung- lingamóti Junio- ren-Gala sem haldið er í Mannheim í Þýskalandi dag- ana 25.-26.júní. Junioren-Gala er eitt sterkasta unglingamótið sem haldið er í Evrópu fyrir 19 ára og yngri og mjög ströng lágmörk gilda inn á mótið. Ungmennin eru Dagbjartur Daði Jónsson, ÍR, sem keppir í spjótkasti, Thelma Lind Kristjánsdóttir, ÍR, sem keppir í kringlukasti, Tristan Freyr Jóns- son, ÍR, sem tryggði sér þátt- tökurétt í 110 m grindahlaupi, 200 m og 400 m, og Þórdís Eva Steins- dóttir, FH, sem keppir í 200 m og 400 m hlaupi.    Enskir fjöl-miðlar sögðu frá því í gær að Jürgen Klopp, knatt- spyrnustjóri Liverpool, fylgdist grannt með stöðu mála hjá Theo Wal- cott, leikmanni Arsenal, og sé tilbúinn að greiða 25 milljónir punda fyrir þjónustu hans. Walcott hefur verið orðaður burt frá Ars- enal í sumar og Klopp er sagður tilbúinn að lofa hinum snögga Englendingi meiri leiktíma en hann fékk hjá Arsenal á liðnu tímabili. Þá hefur honum verið tjáð að hann eigi ekki öruggt sæti í liði Arsenal á næstu leiktíð. Walcott er 27 ára gamall en hef- ur verið hjá Arsenal í ellefu ár. Hann hefur leikið 236 leiki fyrir fé- lagið og skorað 55 mörk. Þá á hann að baki 43 landsleiki fyrir England, en var ekki valinn í hóp- inn fyrir EM í Frakklandi. Fólk sport@mbl.is óknir og þetta gekk betur hjá seinni hálfleik,“ sagði Jón Daði son. gaf liðinu orku vorum fljótir að hrista hrollinn r og þetta mark sem við skor- byrjun seinni hálfleiks gaf okk- a orku. Það var ótrúlega mikil- ná að jafna svona snemma í álfleik,“ sagði Birkir Már Sæv- ar nálægt því að tryggja okkur sigurinn. Ég náði að koma mér í gott færi en það var súrt að ég náði ekki að setja boltann meira í hornið. Það kom mér á óvart hversu rólegir menn voru inni í klefa eftir leikinn. Það eru eitt- hvað steiktir gæjar í þessu liði,“ sagði Alfreð Finnbogason og hló. Komu vel undirbúnum Portúgölum í opna skjöldu „Það var ljóst að Íslendingar gætu alltaf verið erfiðir, sérstaklega í föst- um leikatriðum. Þeir komu okkur í opna skjöldu með þessari fyrirgjöf en við áttum að vita að þeir gætu verið hættulegir í slíkri stöðu,“ sagði Nani sem skoraði mark Portúgala í leiknum. Komu okkur í vandræði „Íslenska liðið kom okkur ekki á óvart því við vissum hvernig það myndi spila. Við skoruðum ekki nógu mörg mörk til að vinna leikinn. Ís- lenska liðið kom okkur í vandræði fyrstu tíu mínúturnar, sérstaklega eftir útspörk sín, og við gátum ekki stjórnað leiknum á þeim kafla. Þeir eru rosa- lega hættulegir eftir að markvörður- inn spyrnir fram völlinn, hann beinir sendingum sínum að framherjanum sem skallar boltann áfram,“ sagði Fernando Santos, landsliðsþjálfari Portúgals. „Þeir fögnuðu eins og þeir hefðu unnið EM eða eitthvað, það er hug- arfar smælingjans. Þess vegna munu þeir ekki vinna neitt,“ sagði stór- stjarnan Cristiano Ronaldo sár. johannes@mbl.is ótir að hrista úr okkur hrollinn“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.