Morgunblaðið - 12.07.2016, Page 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 2016
Saltkaup ehf | Cuxhavengata 1 | 220 Hafnarfjörður
Sími: 560 4300 | www.saltkaup.is
Kíktu á heimasíðunawww.saltkaup.is
Tunnurnar fást hjá okkur.
60 lítra
220 lítra
120 lítra
Blómastampur
30 lítra
116 lítra trétunna
Landsvirkjun hefur metið horfur
fyrir fyllingu miðlana á hausti kom-
anda.
Fram kemur í frétt á heimasíðu
fyrirtækisins að innrennsli í lón í
apríl og framan af maí hafi verið lítið
enda kom vorið seint að þessu sinni.
Hins vegar hafi tíðarfar í júní ver-
ið gott og innrennsli verið umfram
meðallag. Vorleysingum sé lokið og
tími jökulbráðar að hefjast.
Staða miðlunarlóna á Þjórsár-
svæði og Blöndu er lakari en á sama
tíma í fyrra en mun betri í Hálslóni.
Allar líkur eru á að Hálslón fyllist í
haust að mati sérfræðinga Lands-
virkjunar en minni líkur á að miðl-
anir fyllist við Blöndu og á Þjórs-
ársvæði.
Sjálfvirk vöktun lóna á vef Lands-
virkjunar leiðir í ljós á vatnshæð í
Hálslóni, sem sér Kárahnjúkavirkj-
un (Fljótsdalsstöð) fyrir vatni, er
margfalt betri en í fyrra. Í gær var
yfirborð lónsins í rúmlega 605 metra
hæð yfir sjávarmáli, samanborið við
585 metra í fyrra. Yfirfall er í 625
metrum og ætti að nást síðsumars
eða í haust. Þá myndast fossinn
Hverfandi þegar jökulvatnið
steypist tæpa 100 metra niður í
Hafrahvammsgljúfur.
Í Þórisvatni, sem sér virkjunum á
Þjórsársvæðinu fyrir vatni, var
vatnsyfirboðið í gær í 571,5 metrum
yfir sjávarmáli, samanborið við 575
metra í fyrra. Yfirfall er í 579 metr-
um. Í Blöndulóni, sem sér Blöndu-
virkjun fyrir vatni, var vatnshæðin í
gær í 474,3 metrum, samanborið við
473,8 metra í fyrra. Þarna verður yf-
irfall þegar vatnshæðin hefur náð
478 metrum. sisi@mbl.is
Innrennsli í miðlunarlón á
hálendinu yfir meðallagi
Líkur á að Hálslón
muni fyllast í haust
Morgunblaðið/RAX
Hálslón Líkur eru á að lónið fari á
yfirfall síðsumars eða í haust.
væru allt mjög fallegar og góðar
leiðir þar sem væri ágætis aðstaða
fyrir göngufólk. Laugavegurinn er
orðinn mjög þekktur út um heim og
eftir því eftirsóttur. National Geog-
raphic valdi hann eina bestu göngu-
leið í heiminum. Laugavegurinn
þykir einstakur fyrir fjölbreytt
landslag auk þess sem leiðin er ekki
mjög langt frá höfuðborgarsvæðinu.
Páll sagði að Laugavegurinn væri
að stórum hluta í góðu lagi, enda
lægi hann m.a. yfir hraun og sanda.
Komnar eru álagsskemmdir á við-
kvæmustu köflunum eins og í Gras-
haga og niður Jökultungur. Sjálf-
boðaliðar á vegum FÍ og
Umhverfisstofnunar hafa unnið að
lagfæringum á skemmdunum. Páll
sagði að komið væri að stórtækari
framkvæmdum á þeim svæðum.
Hátt í milljarð í uppbyggingu
„Ferðafélagið hefur sett hátt í
milljarð króna í uppbyggingu, þjón-
ustu og rekstur á Laugaveginum á
síðustu tíu árum, það eru um 100
milljónir á ári,“ sagði Páll. Reist
hafa verið ný salernishús bæði við
Álftavatn, í Emstrum og Hrafn-
tinnuskeri. Þá hafa verið settar upp
sturtur og reynt að stækka tjald-
svæðin og byggja við þau þjónustu-
hús.
Páll sagði að ekki væru áform um
að fjölga gistiplássum við Lauga-
veginn í bili. Það er liður í því að
hafa hemil á umferðinni. Hann sagði
að þótt skálinn í Hrafntinnuskeri
væri ekki byggður fyrir nema 52
gesti hefðu allt að 150 manns hafst
þar við sumar óveðursnætur.
FÍ á 15 skála um allt land. Ásókn-
in er langmest í skálana við Lauga-
veginn og í Friðlandi að Fjallabaki.
Skálar á Kjalvegi, Hlöðufelli, Haga-
vatni og í Nýjadal eru ekki jafn mik-
ið nýttir og skálarnir við Laugaveg-
inn. Sumir skálar FÍ eru orðnir
vinsælir viðkomustaðir í dags-
ferðum þar sem fólk stoppar til að
borða nesti en gistir ekki. Umferðin
hefur aukist á öllu hálendinu, þótt
gistingum hafi fækkað eða þær
staðið í stað í sumum skálanna.
FÍ býður einnig upp á gistingu í
Hornbjargsvita á Hornströndum.
Það dró úr ferðum á Hornstrandir
fyrir 4-5 árum en umferð þangað er
að aukast á ný miðað við síðustu ár.
Fimmvörðuháls og Þórsmörk
„Það er töluvert þétt bókað víðast
hvar,“ sagði Skúli H. Skúlason,
framkvæmdastjóri Útivistar, um
gistipláss í skálum félagsins. Hann
sagði að erlendir ferðamenn bókuðu
mikið gistingu í skálanum á Fimm-
vörðuhálsi, þar sem er pláss fyrir 20
manns. Einnig bóki erlendir ferða-
menn talsvert mikið gistingu í Bás-
um á Goðalandi í Þórsmörk þar sem
80 manns geta gist. Oft bókar sama
fólkið gistingu í báðum þessum skál-
um.
„Við erum með nokkra skála inni
á Fjallabaki sem settir voru upp
fyrir ákveðnar gönguleiðir. Það eru
Álftavatn, Strútsskáli, Sveinstindur,
Skælingar og Dalakofi. Aukningin
þar sýnist mér vera í gönguferðum
á vegum ferðaskrifstofa, aðallega ís-
lenskra. Oftar en ekki eru það er-
lendir ferðamenn sem koma með
þeim,“ sagði Skúli. Skálar Útivistar
að Fjallabaki rúma yfirleitt um 20
gesti hver með góðu móti.
Bókanir eru fleiri nú en í fyrra og
aukningin mjög greinileg, að sögn
Skúla. Hann sagði að færð réði
miklu um hvenær umferðin hæfist
um svæðin. Fjallabak opnaðist frek-
ar seint í sumar og drjúgur snjór á
svæðinu. Síðustu leiðir þar opnuðust
fyrir síðustu helgi. Fjallabak opn-
aðist þó ekki jafn seint nú og í fyrra
þegar aðstæður voru mjög sér-
stakar enda óvenjukalt vor þá og
mikil snjóalög fram eftir sumri.
Hóparnir sem fara um að Fjalla-
baki eru mjög gjarnan í trúss-
ferðum. Skúli sagði að erlenda
göngufólkið kæmi talsvert mikið frá
Frakklandi en einnig frá Þýskalandi
og Stóra-Bretlandi.
Laugavegurinn er sprung-
inn á háannatímanum
Mikil ásókn er í gistingu í skálunum að Fjallabaki 140 tjöld við Álftavatn
Ljósmynd/Björk Guðbrandsdóttir
Álftavatn Fjölgun ferðamanna á hálendinu birtist í aukinni tjaldgistingu, enda eru skálarnir gjarnan fullsetnir.
Eina nótt í síðustu viku voru 140 tjöld á tjaldstæðinu við Álftavatn og mun það hafa verið nýtt met.
BAKSVIÐ
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Gistirými á vinsælustu hálendis-
stöðum er víða uppbókað í sumar.
Aukning ferðamannastraumsins
birtist í því að æ fleiri ferðamenn
gista í tjöldum á hálendinu.
„Það er mikill áhugi á hálendis-
ferðum og aukning á milli ára,“
sagði Páll Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Ferðafélags Íslands
(FÍ). Hann sagði að skálagisting á
vinsælustu stöðunum hefði verið
uppbókuð undanfarin sumur líkt og
í sumar. Skálar FÍ rúma gjarnan
60-80 næturgesti hver.
Met við Álftavatn
„Fjölgunin er í tjaldgestum. Það
eru fleiri á ferðinni en áður, bæði á
eigin vegum og með ferðaskrif-
stofum, og tjalda þeir á skálasvæð-
unum og nýta salerni og aðra að-
stöðu við skálana,“ sagði Páll. Met
var slegið við Álftavatn í síðustu
viku þegar þar var tjaldað 140 tjöld-
um eina nóttina.
Páll sagði að þau hjá Ferðafélagi
Íslands hefðu nokkrar áhyggjur af
þróuninni og þá helst af því að að-
staðan annaði ekki síauknum fjölda
ferðamanna. Hann sagði það vera
löngu tímabært að ræða við ferða-
þjónustuna og Umhverfisstofnun
um hvort ekki þyrfti að stýra fjölda
ferðamanna inn á Friðland að
Fjallabaki, einkum Laugaveginn.
Páll sagði að þorrinn af göngufólk-
inu færi Laugaveginn. Margar aðr-
ar gönguleiðir eru í boði en ekki
nærri eins fjölfarnar.
„Það má alveg segja að Lauga-
vegurinn sé sprunginn á háannatím-
anum út frá gistiaðstöðu og eins
umgengni við náttúruna,“ sagði
Páll. Göngufólkið á Laugaveginum
er að mestu leyti, líklega um 70%,
erlendir ferðamenn. Þeir koma ým-
ist á eigin vegum eða í skipulögðum
ferðum á vegum íslenskra og er-
lendra ferðaskrifstofa. Umferð
þeirra sem ferðast á eigin vegum
hefur aukist. Ferðaskrifstofurnar
skipuleggja yfirleitt trússferðir og
er farangri og viðlegubúnaði ekið á
milli næturstaða. Þeir sem ferðast á
eigin vegum bera sjálfir allt sitt haf-
urtask.
Páll sagði að ótal margar aðrar
góðar gönguleiðir en Laugavegur
væru í boði, t.d. Kjalvegur og Kerl-
ingarfjöll, Strútsstígur, Lónsöræfi,
Víknaslóðir og Öskjuvegur. Þetta
Samningur sem
flugfreyjur hjá
Flugfélagi Ís-
lands í Félagi ís-
lenskra flug-
freyja skrifuðu
undir við flug-
félagið hinn 30.
júní síðastliðinn
hefur verið felld-
ur af félags-
mönnum með af-
gerandi hætti. Af þeim 42
félagsmönnum sem voru kjörgengir
felldi 81% samninginn.
Að sögn Sigríðar Ásu Harðar-
dóttur, formanns félagsins, verður á
næstu dögum kallaður saman félags-
fundur og í framhaldinu sest aftur
niður við samningaborðið.
Samningaviðræður flugfreyja við
Flugfélag Íslands gengu brösuglega
en upp úr viðræðunum slitnaði í lok
júní síðastliðins. Þá kynntu flug-
freyjur til leiks tillögu sem sam-
þykkt var af samninganefndinni.
Samningurinn hlaut hins vegar ekki
stuðning félagsmanna.
Flugfreyjur
fella kjara-
samninginn
Nei Flugfreyjur
hafna samningi.
81% flugfreyja
felldi samninginn
Starfsmenn Veðurstofu fylgjast náið
með þróuninni í Emstrum en sam-
kvæmt tilkynningu er líklega lítið
hlaup hafið í Fremri-Emstruá. Ekki
er talin mikil hætta af hlaupvatninu,
heldur af gasmengun við upptök ár-
innar og í lægðum í landslaginu um-
hverfis ána.
Skálavörður í Emstrum og ferða-
fólk, sem hefur verið þar síðustu
daga, tilkynntu um sterka brenni-
steinslykt á svæðinu fyrir
skemmstu. Mælar Veðurstofunnar
sýna aukningu í rafleiðni og hefur
vatnshæð aukist um u.þ.b. 30 cm.
Aukin rafleiðni í Markarfljóti er lík-
lega vegna jarðhitavatns undan
Entujökli, skv. Veðurstofunni.
Meiri hætta
af gasinu en
hlaupinu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Emstrur Smáhlaup úr Entujökli
með lykt eru þekkt í Emstrum.