Morgunblaðið - 12.07.2016, Side 31

Morgunblaðið - 12.07.2016, Side 31
MENNING 31 MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 2016 Skútuvogi 6 - Sími 568 6755 plankaparket Verðdæmi: 190 mm Eik Rustik burstuð mattlökkuð 6.990.- m2 Hannes Sigfússon gaf út átta frum-ortar ljóðabækur frá 1949 til 1995,auk þess sem hann birti nokkurkvæði í tímaritum og þýddi ljóð og gaf út. Nú hefur Jón Kalman Stefánsson valið úr verkum Hannesar allmörg ljóð úr öllu safni hans og ritar að þeim einkar persónulegan for- mála, enda var Hannes afa- bróðir Jóns og honum ná- kominn. Hann rekur ævi Hannesar, segir nokkuð af einkamálum hans og tengir við skáldskapinn, finnur honum bókmenntasögulega staðfestu án nokkurs hátíð- leika eða mærðar. Þver- sögnin er kannski sú að Hannes vildi skrifa skáldsögur, en það gekk illa þótt Strandið haldi nafni hans á lofti; Ljósin blakta heitir hin skáldsagan sem Hannesi auðnaðist að gefa út. Þetta úrval er snyrtilega búið heiman af hálfu forlags og kápu prýðir mynd af málverki eftir Kristján Davíðsson þar sem hlýir litir lyfta sér yfir kuldann hið neðra; kannski er auga stormsins á bakhliðinni? „Tungumálið er lykill skáldsins að veröld- inni / Hann lýkur upp bergmálshellum innst í heilabúinu“. Þannig hefst ljóðið „Kirjálaeiði“ í samnefndri bók Hannesar. Og þetta er gagn- kvæmt. Tungumálið er lykill lesandans að ljóð- heimi skálds og orðin verða að bergmála í hugarfylgsnum lesanda til þess að skilningur skapist eða upplifun með öðru móti. Fyrstu bækur Hannesar, Dymbilvaka og Imbrudag- ar, eru býsna torræðar. Dymbilvaka er að miklu leyti háttbundin í hrynjandi og ljóð- stafasetningu, og nokkur ljóð í Imbrudögum, við upphaf og endi bókar; stundum vottar fyrir rími. Ljóðmælandinn í þessum bókum er einn, fær ekki sofið. „Bleikum lit / bundin er dögun hver og dökkum kili“. „Skíman blind“ er draugsleg, „blóðlausir skuggar flökta á gráu þili“. Víða eru endurtekin stef í Dymbilvöku og allar myndir kvæðabálksins eru fremur drungalegar, bak við þær býr einhver angist. En þær ná engu bergmáli í huga mér hvað merkingu varðar, en birta mér samt ugg ljóð- mælandans; ljóðmyndirnar eru þess eðlis. Sama er uppi á teningnum í Imbrudögum; það var háttur atómskálda og annarra módern- ískra skálda að sýna hug sinn fremur en segja. Hannes hefur jafnan verið talinn með atóm- skáldum, en sú viðmiðun nærist á efnistökum og ljóðmáli fremur en stílbrögðum í þessum fyrstu bókum þótt þar séu raunar líka prósa- ljóð. Með sínum hætti kallast Imbrudagar á við skáldsögu Hannesar, Strandið, þar sem hann lýsir hörmulegu sjóslysi sem hann var vitni að veturinn 1950; prósaljóðin í Imbrudög- um eru þar ljós vottur. Ég hlustaði á Hannes lesa Dymbilvöku í útvarp og þá lifnuðu myndir bókarinnar betur en við hljóðan lestur heima í hægindi; Hannes sagðist alltaf hafa lagt mikið upp úr hljómi (bls. 33) og hann hafði grípandi hljómmikla rödd í upplestri. Imbrudagar bárust til lesenda 1951, skáld- sagan Strandið 1955 og ljóðabókin Sprek á eld- inn 1961. Þar hefur Hannes breytt um stíl, yrkir skiljanlegar, ef svo má segja, enda vildi hann að ljóðin væru tæki í baráttu gegn heims- valdastefnu, stríði og átökum af öðru tagi. Upphafsljóð bókarinnar heitir „Vetrarmyndir“ úr lífi skálda og það má túlka sem eilífa bar- áttu höfunda við orðin. Hannes hafði dreymt um að verða skáldsagnahöfundur, en ár eftir ár blöstu við honum auðar síður, hann kom engu á blað – nema ljóðum sem hann orti í törnum eftir því sem hann sagði. „Hvaða orð eiga lýsandi kjarna / í luktri skel þessarar hauskúpu / sem ert þú sjálfur?“ Er þetta ekki eilífur vandi allra skálda? Að grafa upp orð úr sínum innstu innum sem kynnu að fanga hugs- un lesanda og sýna honum veröldina í nýju ljósi? Í seinni bókum Hannesar er ögn meiri birta í kveðskapnum þótt hann hætti aldrei að fara út í stormviðri tíðarandans. Ljóðið „Á norðurhjaranum“ er dæmi um birtuna, ljóðið „Afríka“ er hins vegar atkvæði með frelsisbar- áttu. Ótal ungmenni í grunn- og framhalds- skólum hafa fengist við að „greina“ það ljóð sem er býsna mögnuð myndlíking frá upphafi til enda. Það er háttur útgefenda sýnisbóka að velja í þær ljóð „sem hægt er að greina“ frem- ur en tæra ljóðrænu sem rennur ótrufluð að hjartans rótum! Síðustu ljóðabók Hannesar, Kirjálaeiði (1995), lýkur með tveimur hendingum sem bera heitið „Hættur“: „Dyrum lokað: / Hurð fellur að stöfum“. Það er langur vegur frá þessum hljóðlátu línum aftur til Dymbilvöku. Hannes Sigfússon hafði ávallt skýra sýn á ver- öldina þótt hann endurnýjaði sitt andlega bú í ljósi reynslu og menntunar. Hann hafði góð tök á máli og bjó til ýmis lýsingarorð til að spegla hug sinn, en þau eru aldrei stigbreytt upp í hæðir því að slík orðanotkun brýtur í bág við hófstilltan ljóðstíl hans; Lágt muldur þrumunnar heitir ein ljóðabókin hans (1988). Ég held að Hannes eigi enn erindi við les- endur. Rödd hans er sérstök og hún er söm frá fyrstu bók til lokalínu þótt stílbrögð hafi ýmist breyst eða slípast. Þeir sem lesa ljóð Gyrðis Elíassonar og Gerðar Kristnýjar sjá t.d. að þau hafa bæði lesið ljóð Hannesar sér til gagns. Þannig er háttað framhaldslífi skálda. Lífið liggur aldrei á lausu Morgunblaðið/Einar Falur Erindi „Ég held að Hannes eigi enn erindi við lesendur. Rödd hans er sérstök og hún er söm frá fyrstu bók til lokalínu þótt stílbrögð hafi ýmist breyst eða slípast,“ segir í rýni. Ljóð Hannes Sigfússon: Ljóðaúrval bbbbn Ljóð eftir Hannes Sigfússon. Jón Kalman Stefánsson tók saman og ritar for- mála. Innbundin, 224 bls. auk efnisyfirlits og rita- skrár. Bjartur, 2016. SÖLVI SVEINSSON BÆKUR » Japanski leikstjórinn, rithöf-undurinn og dansarinn Mus- himaru Fujieda framdi Butoh- dansgjörning í Listasafni Íslands í gær. Í sólódansi miðlar Fujieda tilfinningaþrungnum augnablik- um lífsins á táknrænan hátt með ljóðrænu að leiðarljósi. Hann fæst einnig við grímudans fyrir Himalaya-trúarathafnir. Butoh-dansgjörningur japanska listamannsins Mushimaru Fujieda í Listasafni Íslands Einbeiting Hinn japanski Mushimaru Fujieda virtist afar ein- beittur þar sem hann framdi dansgjörning sinn. Athygli Þessar tvær voru meðal gesta og fylgdust grannt með framvindu mála hjá listamanninum sem miðlaði tilfinningaþrungnum augnablikum. List Þó nokkuð af fólki mætti í Listasafn Íslands til að verða vitni að gjörningi listamannsins.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.