Morgunblaðið - 12.07.2016, Blaðsíða 33
MENNING 33
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 12. JÚLÍ 2016
AF TÓNLIST
Hjalti St. Kristjánsson
hjaltistef@mbl.is
Lokadagur Eistnaflugs var búinn
að vera öðrum framar tilhlökk-
unarefni í nokkuð langan tíma.
Tvær af stærri hljómsveitum
þungarokksins voru að fara að spila
um kvöldið og það var því af nokk-
urri eftirvæntingu sem gengið var
af stað út í daginn. Fyrst lá leiðin í
Egilsbúð. Þangað fór ég til að sjá
Mammút. Það er ansi langt um liðið
síðan ég sá þau síðast og þau komu
mér á óvart, enn og aftur. Ég komst
í draumkennt ástand yfir lögunum
og það er ótrúlegt hvað þau hafa
þróast frá því sem ég heyrði í gegn-
um vegg í æfingarhúsnæði stuttu
eftir Músíktilraunir 2004. Mammút
er á leið í hljóðver og stefnir á út-
gáfu nýrrar plötu á vormánuðum
og ég hlakka í það minnsta mikið til
að heyra hana.
Síðasti liðurinn í færeyska
strandhögginu þetta árið var
hljómsveitin Reduced to ash, meló-
dísk dauðamálmsveit með fram-
sæknum blæ, þrælskemmtileg sveit.
Eftir hana gekk ég í íþróttahúsið
þar sem við tók ný íslensk hljóm-
sveit sem var að leika á sínum
fyrstu tónleikum. Það er þó ekki
svo að þar hafi farið einhverjir au-
kvisar, heldur þrælvanir hljóðfæra-
leikarar sem hafa verið að vasast í
tónlist síðustu áratugi. GlerAkur
samanstendur af fjórum gítarleik-
urum, barítóngítarleikara, bassa-
leikara og tveimur trymblum. Risa-
stór veggur af tónlist dundi á
áhorfendum sem voru því miður
ekki margir. Það er þó bara missir
þeirra sem ekki komu og það kæmi
mér ekki á óvart ef GlerAkur væri
næsta íslenska hljómsveitin til að
gera garðinn frægan víða erlendis.
Í kjölfarið á GlerAkri spilaði
hljómsveitin Stroff sem því miður
náði ekki mikið til mín, ekki frekar
en Fufanu sem lék þar á eftir.
Kannski var það líka óheppilegt að
hafa tvær hljómsveitir sem eru jafn
langt frá tónlistarstefnu aðalnúm-
era hátíðarinnar, en þau komu ein-
mitt þarna strax á eftir. Mig grunar
í það minnsta að ansi margir hafi
tekið sér frí frá tónleikum til að
nærast og koma sér í gírinn fyrir
stóru kanónurnar.
Aðalhljómsveitir kvöldsins
Opeth er sænsk hljómsveit sem
hefur gert garðinn frægan víða og
lengi. Hún var stofnuð árið 1990.
Hún hefur gefið út ellefu hljóðvers-
plötur og er sú tólfta væntanleg á
þessu ári. Hún hefur farið um víðan
völl á tónlistarsviðinu. Meginþorri
aðdáendahóps þeirra er enn meðal
þungarokkara, en mig grunar að
Opeth sé sú þungarokkshljómsveit
sem hvað flestir ættu að geta hlust-
að á og fundið eitthvað við sitt hæfi.
Meshuggah er líka sænsk
hljómsveit. Hún var stofnuð árið
1987 en er síst jafn aðgengileg og
Opeth. Þeir eru flokkaðir sem öfga-
málmband (extreme-metal) og það
er ekki svo fjarri lagi. Eins og svo
margar hljómsveitir keyrðu þeir
áfram af mikilli hörku og salurinn
var troðfullur af fólki sem skakaði
sér, af mismikilli áfergju þó, í takt
við tónlistina. Það var reyndar
nokkuð erfitt því eitt af einkennis-
merkjum Meshuggah er uppbrot á
takti. Talningin í lögunum, sem oft-
ast er fjögur slög í einum takti, er
langt frá því að vera hefðbundin,
oft brotin upp og oftar en ekki eru
menn að spila í mismunandi takti
og talningu. Þetta gengur hins-
vegar alveg fullkomlega upp og
niðurstöðuna er unun á að hlýða.
Ham endaði rokkdagskrá íþrótta-
hússins af sinni einskæru snilld við
mikinn fögnuð.
Það síðasta sem ég hlustaði
hinsvegar á áður en dansinn tók við
undir stjórn DJ Töfra var Ophidian
I, dauðamálmsveit sem hélt satt
best að segja áfram brjálseminni
sem í gangi hafði verið. Ég hefði
hinsvegar verið feginn að sjá þá
fyrr því satt best að segja var höf-
uðið komið í allsherjar tónlistar-
hrærigraut og ég náði ekki að festa
mikið af því sem þeir léku í minni.
Það gefur mér hinsvegar tilefni til
að fara seinna og sjá þá og það mun
ég gera því þeir voru góðir.
Eistnaflugi er þá lokið og að
sögn skipuleggjanda var ekkert
sem fór stórvægilega úr skorðum
og prýði var að gestum, hljóm-
sveitum og starfsfólki. Við erum
Eistnaflug!
Langur lokadagur Eistnaflugs
Morgunblaðið/Elín Arnórsdóttir
Nýliðar GlerAkur er ný hljómsveit skipuð sjóuðum reynsluboltum og lék
hún í fyrsta sinn opinberlega á Eistnaflugi.
Liprir Meshuggah spila grjótharðan málm og rugla all rækilega í hryn-
vitund hlustanda.
Brjálaðir Ophidian I spila teknískan
málm á ógnarhraða.
Fjölhæfir Opeth er sú málmsveit sem á hvað víðasta litróf laga og getur
hentað hverjum sem er.
Lin-Manuel Miranda brá sér í gervi
Alexanders Hamilton í seinasta
sinn í Richard Rogers-leikhúsinu á
Broadway í New York sl. laugar-
dag. Hipphopp-söngleikur Miranda
um Hamilton, sem var fyrsti fjár-
málaráðherra Bandaríkjanna á ár-
unum 1789 til 1795 og einn þeirra
pólitísku leiðtoga sem skrifuðu
undir sjálfstæðisyfirlýsingu Banda-
ríkjanna árið 1776, sló óvænt í gegn
þegar verkið var frumsýnt snemma
árs 2015.
Sett var met þegar söngleikurinn
Hamilton var tilnefndur til alls 16
Tony-verðlauna í vor og vann að
lokum 11 talsins. Áður hafði Mir-
anda unnið Pulitzer-verðlaun fyrir
leikrit sitt og Grammy-verðlaun
fyrir tónlist sína. Söngleikurinn
hefur verið afar vel sóttur síðustu
mánuði og skilað um 600.000
Bandaríkjadölum, eða sem svarar
tæplega 74 milljónum ísl. kr., í
miðasölu í hverri viku frá því hann
var frumsýndur.
Miranda hyggst nú snúa sér að
öðru og birti skömmu eftir lokasýn-
inguna mynd á Twitter af tagli sínu
sem hafði fengið að fjúka. Söngleik-
urinn verður sýndur áfram án
skapara síns og samkvæmt frétt
BBC er stefnt að því að frumsýna
söngleikinn í Victoria Palace-
leikhúsinu í London í október 2017.
Miranda var ekki einn um að
kveðja sýninguna sl. laugardag því
Phillipa Soo, sem leikið hefur Elizu,
eiginkonu Hamilton, og Leslie
Odom Jr. sem fór með hlutverk
Aarons Burr hyggjast líka snúa sér
að öðru.
AFP
Lokasýning Lin-Manuel Miranda, fyrir miðri mynd, var djúpt snortinn.
Kvaddi Hamilton
Frekari upplýsingar á vefverslun okkar
www.donna.is
Hjartahnoð og hjartastuðtæki
björguðu lífi mínu
Er næsta hjartastuðtæki
langt frá þér?
Verð frá kr. 199.600
MIKE AND DAVE 5:50, 8, 10:10
INDEPENDENCE DAY 2 5, 8, 10:30
LEITIN AÐ DÓRU ÍSL.TAL 3:50, 5:50
CENTRAL INTELLIGENCE 10:30
WARCRAFT 2D 8
ANGRY BIRDS ÍSL.TAL 3:50
LAUGARÁSBÍÓ Sýningartímar
Miðasala og nánari upplýsingar
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐÞRIÐJUDAGSTILBOÐ
ÞRIÐJUDAGSTILBOÐ