Morgunblaðið - 15.08.2016, Page 1

Morgunblaðið - 15.08.2016, Page 1
MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2016 ÍÞRÓTTIR Ólympíuleikar Jacky Pellerin landsliðsþjálfari í sundi segir að Eygló Ósk Gústafsdóttir sé að réttri leið við að ná takmarki sínu, verðlaunum á ÓL í framtíðinni. Hana vantar meira úthald og líkamlegan styrk 8 Íþróttir mbl.is Íslenski lands- liðsmaðurinn í handknattleik, Alexander Pet- ersson, kinn- beinsbrotnaði í æfingaleik með þýska meist- araliðinu, Rhein- Neckar Löwen, gegn svissneska liðinu St Gallen á laugardaginn. Búist er við því að hann verði frá keppni í nokkrar vikur. Leikurinn var liður í æfingamóti sem liðin tóku þátt í til undirbún- ings fyrir komandi keppnistímabil. Alexander fékk þungt högg á andlitið og fljótlega varð ljóst að kinnbeinið hafði brotnað. Hann fer í aðgerð í dag. iben@mbl.is Alexander úr leik um skeið Alexander Peterssonfyrir Breta þrátt fyrir að detta í hlaupinu, Thiam Nafissatou frá Belgíu vann dramatískan sigur í sjöþraut kvenna, gegn fráfarandi meistaranum Jessicu Ennis-Hill, og Jeff Henderson vann enn dramatískari sigur í langstökki karla með 8,38 metra stökki, sentimetra lengra en næsti maður. Það er einmitt á frjálsíþróttavellinum sem ís- lenska íþróttafólkið á leikunum í Ríó lýkur keppni. Sex af átta íþróttamönnum íslenska hópsins hafa lokið keppni, en Ásdís Hjálmsdóttir og Aníta Hin- riksdóttir bíða þess að stíga á svið. Ásdís keppir í forkeppni spjótkasts seint annað kvöld (A-riðill byrjar 23.35 og B-riðill 00.50). Kasta þarf 63 metra til að komast í úrslit sem fram fara á fimmtudags- kvöld, eða vera í hópi 12 efstu keppenda. Ásdís varð í 8. sæti í undankeppninni á ÓL í London þar sem hún setti Íslandsmet sitt; 62,77 metra. Aníta hleypur í undanriðli í 800 metra hlaupi kl. 13.55 á miðvikudag. Hlaupið er í sex riðlum og komast þrjár fyrstu í hverjum riðli áfram, auk sex fljótustu keppenda þar á eftir. Því eru 24 kepp- endur í undanúrslitunum sem hlaupa í þremur riðlum rétt eftir miðnætti á fimmtudagskvöld. Úr- slitin eru svo á laugardagskvöld. Aníta og Ásdís eru tvær eftir  Undankeppni spjótkastsins seint annað kvöld  800 m hlaupið á miðvikudag Í RÍÓ Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Frjálsíþróttakeppnin er af mörgum talin hápunkt- ur hverra Ólympíuleika og hún hófst með látum í Ríó um helgina. Á laugardagskvöld tók Elaine Thompson við krúnunni af löndu sinni frá Ja- maíku, Shelly-Ann Fraser-Pryce, sem fljótasta kona heims en Thompson vann 100 metra hlaupið á 10,71 sekúndum. Mo Farah vann 10 km hlaup KÖRFUBOLTI Benedikt Grétarsson bgretarsson@mbl.is Stórmerkum árangri var náð í íslenskri körfu- boltasögu í fyrra þegar karlalandsliðið tryggði sér þátttökurétt á Evrópumótinu. Landsliðið undirbýr sig nú af kappi fyrir undankeppni Evrópukeppninnar 2017 og var liður í þessum undirbúningi þátttaka liðsins í sterku æfingamóti sem haldið var í Austurríki. Ísland tapaði fyir Póllandi og Austurríki í hörkuleikjum en lenti svo á vegg í gær, þegar okkar menn steinlágu fyrir Slóveníu 98:68. Veikleikarnir skoðaðir í kjölinn Liðin sem Ísland mætti eru komin mun lengra í undirbúningi fyrir EM og þrátt fyrir þrjú töp lít- ur landsliðsþjálfarinn Craig Pedersen björtum augum á framhaldið. „Sannarlega getum við tekið jákvæða hluti með okkur héðan. Þessi lið eru mjög sterkir andstæð- ingar. Slóvenar eru frábær körfuboltaþjóð, Pól- land komst í 16 liða úrslit Evrópumótsins og Austurríkismenn tefla fram stóru og sterku liði. Við áttum mjög góða kafla í vörninni á mótinu og náðum að skapa okkur góð skot með ágætum sóknarleik. Það sem er ekki síður mikilvægt er að við komum auga á veikleika okkar og nú vitum við betur hvernig á að laga þá,“ sagði Pedersen í samtali við Morgunblaðið í gær. Úrslitin voru aldrei aðalatriðið Jón Arnór Stefánsson hefur verið í sérflokki íslenskra körfuboltamanna um árabil og hann lék aðeins fyrri hálfleikinn gegn Slóveníu. Jón Arnór og fyrirliðinn Hlynur Bæringsson voru báðir hvíldir í leiknum gegn Austurríki og mun- ar um minna. Pedersen segir ástæðuna ein- falda. „Markmiðið var fyrst og fremst að gefa öllum tíma á vellinum og það tókst. Við vorum ekki endilega að eltast við úrslitin sem slík, heldur miklu frekar að læra af þessum leikjum og taka með okkur þegar alvaran hefst. Jón Arnór og Hlynur voru hvíldir í öðrum leiknum gegn Aust- urríki, bæði til að gefa öðrum tækifæri og til að fá þá örlítið ferskari gegn Slóvenum. Jón Arnór lék mjög vel í fyrri hálfleik gegn Slóveníu en við hvíldum hann allan seinni hálfleikinn.“ Bjart fram undan hjá Tryggva og liðinu Hæðarskortur hefur verið stærsta vandamál ís- lenska landsliðsins alla tíð. Allir vita að Íslend- ingar berjast af krafti en í körfubolta er erfitt að glíma við leikmenn sem hafa yfirburði í hæð og þyngd. Tryggvi Snær Hlinason, leikmaður Þórs Akureyri, er 216 cm hár og lék sína fyrstu lands- leiki um helgina. Tilkoma hans gæti hjálpað liðinu á komandi árum. „Miðað við að þetta voru hans fyrstu a-landsleikir stóð hann sig vel. Hann er að blandast vel inn í hópinn og hefur tekið fram- förum. Hann á þó töluvert langt í land og hann veit það manna best.“ Þrátt fyrir töpin segir landsliðsþjálfarinn enga ástæðu til að fyllast svartsýni. „Það hefði verið mjög furðulegt ef við hefðum komið á þetta mót og allt hefði verið fullkomið. Við verðum klárir þegar alvaran hefst,“ sagði Pedersen að lokum. Fyrsti leikur landsliðins í undankeppni Evrópumótsins 2017 verður gegn Sviss í Laug- ardalshöll 31. ágúst. Óþarfi að örvænta strax  Íslenska karlalandsliðið í körfuknattleik tapaði öllum leikjum sínum á æf- ingamóti í Austurríki  Lykilmenn hvíldir  Tryggvi lék sinn fyrsta landsleik Kristinn Lykilmaður Jón Arnór Stefánsson var hvíldur mikið í leikjum Íslands á æfingamótinu í Austurríki.  Lára Hrund Bjargardóttir keppti í sundi á Ólympíuleikunum í Sydney 2000 og aftur fjórum árum síðar í Aþenu.  Lára Hrund fæddist 1981 og keppti lengst af fyrir Sundfélagið Ægi. Hún keppti einkum í skriðsundi og í fjór- sundi og setti nokkrum sinnum Ís- landsmet á ferli sínum auk fjölga aldursflokkameta. Lára Hrund keppti í 100 og 200 m skriðsundi í Sydney og í 200 m fjórsundi í Aþenu en komst ekki í undanúrslit. Hún lagði stund á nám í University of California í Irvine og keppti fyrir sundlið skólans með góðum árangri. ÍÞRÓTTA- MAÐUR DAGSINS Þórir Hergeirs- son og leikmenn hans í norska kvennalandslið- inu í handknatt- leik mæta Svíum í átta liða úrslit- um handknatt- leikskeppni Ól- ympíuleikanna. Þetta varð ljóst eftir lokaleik liðsins í gærkvöldi. Norðmenn unnu Rúmena, 28:27, og höfnuðu þar með í öðru sæti A-riðils. Lið Brasilíu varð efst og leikur við hollenska landsliðið í 8 liða úrslitum, en Hol- lendingar höfnuðu í fjórða sæti B- riðils. Rússar, sem unnu B-riðil með fullu húsi stiga, leika við Angóla í 8 liða úrslitum og grannþjóðirnar Frakkar og Spánverjar eigast við í fjórðu viðureigninni. Átta liða úrslitin í handbolta kvenna fara fram á morgun og undanúrslit taka við á fimmtudag. Norðmenn mæta Svíum Þórir Hergeirsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.