Morgunblaðið - 15.08.2016, Blaðsíða 2
2 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2016
Íþróttir Morgunblaðsins Hádegismóum 2, 110 Reykjavík, sími 5691100, netfang sport@mbl. is
Útgefandi Árvakur hf. Umsjón Víðir Sigurðsson, vs@mbl. is Auglýsingar sími 5691111 netfang
augl@mbl. is Bréfsími 5691110 Prentun Landsprent ehf.
Í LAUGARDAL
Hjörvar Ólafsson
hjorvaro@mbl.is
Valsmenn voru léttir í lundu síð-
degis á laugardaginn eftir að karla-
lið félagsins í knattspyrnu tryggði
sér sinn ellefta bikarmeistaratitil
með 2:0 sigri sínum gegn ÍBV. Val-
ur varði þar af leiðandi
bikarmeistaratitil sinn, en liðið hef-
ur nú borið sigur úr býtum í sjö
síðustu bikarúrslitaleikjum liðsins.
Valur laut síðast í gras í bikar-
úrslitum árið 1979 þegar Fram
lagði liðið að velli.
Valur hóf leikinn af miklum
krafti og herbragð Ólafs Jóhannes-
sonar og Sigurbjörns Hreiðars-
sonar að leyfa ÍBV að hafa boltann
í sínum röðum og setja svo pressu
á leikmenn ÍBV við ákveðnar
kringumstæður gekk fullkomlega
upp. Sigurður Egill Lárusson lék á
als oddi í upphafi leiksins og kór-
ónaði spilamennsku sína með því
að skora bæði mörk Vals.
Kristinn Ingi Halldórsson nýtti
sér það síðan til hins ýtrasta að
Eyjamenn þurftu að endur-
skipuleggja varnarleik sinn eftir að
fyrirliðinn Avni Pepa neyddist til
þess að fara af velli vegna meiðsla
eftir rúman tíu mínútna leik.
Leikmenn Vals virtust reynsl-
unni ríkari eftir að hafa tekið þátt í
bikarúrslitum í fyrra og þeir höfðu
fulla stjórn á leiknum frá upphafi
til enda. Eyjamenn virkuðu aftur á
móti smeykir í aðgerðum sínum og
þeir náðu ekki að höndla spennu-
stigið sem fylgir stórum stundum
sem þessum. Eftir að Valsmenn
komust tveimur mörkum yfir
þurftu varnarmenn liðins ekkert að
hætta sér úr varnarstöðum sínum
frekar en þeim sýndist og leikmenn
Vals gáfu fá sem engin færi á sér.
Markmiðinu náð hjá Val
Hauki Páli Sigurðssyni tókst að
koma Pablo Punyed, sem hefur
stýrt miðjuspili ÍBV í sumar, út úr
leiknum megnið af leiknum og aðr-
ir leikmenn ÍBV náðu ekki að taka
við keflinu af honum.
Valur hefur nú náð yfirlýstu
markmiði sínu fyrir sumarið, það
er að komast í Evrópukeppni. Sú
hætta er ávallt til staðar að lið
verði södd í kjölfar sigra í bikarúr-
slitaleikjum og það hafi slæm áhrif
á stigasöfnun í deildinni í fram-
haldinu.
Það fjaraði svolítið undan Vals-
liðinu eftir að bikarmeistaratitillinn
var í höfn í fyrra. Valur lék reynd-
ar vel strax í kjölfar bikarsig-
ursins, en stigasöfnunin var hins
vegar dræm undir lok tímabilsins
síðasta haust. Valsliðið bar sigur úr
býtum í tveimur leikjum, gerði
þrjú jafntefli og tapaði þremur
leikjum eftir bikarsigurinn á síð-
ustu leiktíð. Nú er spurning hvaða
áhrif bikarmeistaratitillinn hefur á
Val.
Fram undan hjá ÍBV er að
tryggja sæti sitt í efstu deild að
ári, en liðið hefur sogast í fallbar-
áttu eftir að hafa innbyrt einungis
fjögur stig í síðustu sjö deildar-
leikjum.
Morgunblaðið/Þórður
Gleði Leikmenn Vals glaðbeittir eftir að þeir tóku við sigurlaununum í Borgunarbikarnum annað árið í röð á laugardaginn eftir sigur á ÍBV.
Valur varði titil sinn
Sjö sigrar í röð hjá Val í úrslitum bikarkeppninnar Tapaði síðast 1979 Sigurður Egill gerði
gæfumuninn Slæm byrjun varð ÍBV að falli Eyjamenn náðu ekki að framfylgja skipulaginu
Laugardalsvöllur, Borgunarbikar
karla, úrslitaleikur, laugardaginn 13.
ágúst 2016.
Skilyrði: Logn, 11 stiga hiti og úði.
Skot: Valur 9 (4) – ÍBV 8 (4).
Horn: Valur 3 – ÍBV 1.
Valur: (4-3-3) Mark: Anton A. Ein-
arsson. Vörn: Andreas Albech (Andri
F. Stefánsson 90.), Rasmus Christian-
sen, Orri S. Ómarsson, Bjarni Ó. Ei-
ríksson. Miðja: Haukur P. Sigurðsson,
Kristian Gaarde, Kristinn F. Sigurðs-
son (Guðjón P. Lýðsson 83.). Sókn:
Andri Adolphsson (Rolf Toft 75. ),
Kristinn I. Halldórsson, Sigurður E.
Lárusson.
ÍBV: (4-3-3) Mark: Derby Carrillo.
Vörn: Jonathan P. Barden, Hafsteinn
Briem, Avni Pepa (Jón Ingason 11.),
Felix Ö. Friðriksson (Elvar I. Vignisson
83.). Miðja: Mees Siers, Pablo Pu-
nyed, Mikkel Maigaard. Sókn: Sören
Andreasen (Aron Bjarnason 69.),
Gunnar H. Þorvaldsson, Simon Smidt.
Dómari: Þorvaldur Árnason – 8.
Áhorfendur: 3.511.
Valur - ÍBV 2:0
Sigurður Egill Lárusson var hetja Vals þegar liðið
tryggði sér bikarmeistaratitilinn með 2:0 sigri gegn ÍBV
á laugardaginn.
Sigurður Egill skoraði bæði mörk Vals, en hann gerði
afar vel í báðum mörkum liðsins.
„Það var góð tilfinning að finna að fyrsta snertingin
kom mér í gott færi í fyrra markinu. Ég hef lagt áherslu
á að bæta fyrstu snertinguna undanfarið og það er
ánægjulegt að aukaæfingarnar séu að skila sér,“ sagði
Sigurður Egill um fyrra mark sitt í leiknum.
„Við komum mjög ákveðnir til leiks og náðum að
halda spennustiginu réttu. Það var þægileg tilfinning að
komast tveimur mörkum yfir. Við spiluðum vel í þessum leik og áttum sig-
urinn skilinn að mínu mati,“ sagði Sigurður Egill um frammistöðu Vals í
leiknum.
„Það er vissulega mjög jákvætt að vera búnir að tryggja sér Evrópusæti,
en við erum ekkert hættir og ætlum okkur að hífa okkur upp töfluna á
lokaspretti deildarinnar,“ sagði Sigurður Egill um framhaldið á Hlíð-
arenda.
Markmið liðsins í höfn
Sigurður Egill
Lárusson
Ólafur Jóhannesson stýrði liði sínu til sigurs í bik-
arkeppni karla í þriðja skipti á laugardaginn var.
Ólafur hefur gert Val að bikarmeisturum tvívegis á
þeim tveimur árum sem hann hefur verið við stjórn-
völinn á Hlíðarenda og auk þess varð hann einu
sinni bikarmeistari sem þjálfari FH.
„Við lékum vel í þessum leik og leikskipulagið
gekk fullkomlega upp. Við lögðum mikla vinnu í að
undirbúa okkur og sælutilfinningin gerir stres-
sköstin í vikunni fyrir stóru stundina þess virði,“
sagði Ólafur í samtali við Morgunblaðið eftir sig-
urinn í bikarúrslitaleiknum.
„Nú er þetta markmið í höfn, það er að verða bikarmeistari og
tryggja okkur þannig sæti í Evrópukeppni. Þá er bara að setja sér
ný markmið fyrir lokaprettinn í deildinni. Við erum hvergi nærri
hættir að klára deildina almennilega,“ sagði Ólafur um framhaldið
hjá Val.
Sælan gerir stressið þess virði
Ólafur
Jóhannesson
1:0 Sigurður Egill Lárusson 8. tók afar vel ámóti boltanum og kom sér í gott færi með
móttökunni sem hann kláraði af yfirvegun.
2:0 Sigurður Egill Lárusson 20. skoraði meðföstu og hnitmiðuðu skoti neðst í mark-
hornið innan vítateigs eftir sendingu frá Kristni
Inga.
I Gul spjöld:Felix Örn (ÍBV) 25. (brot), Andri (Valur) 36.
(brot), Haukur Páll (Valur) 40. (brot), Smidt (ÍBV)
40. (brot), Sigurður Egill (félag) 51. (brot), Jón
(ÍBV) 55. (brot).
I Rauð spjöld: Engin.