Morgunblaðið - 15.08.2016, Qupperneq 4
4 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 15. ÁGÚST 2016
Borgunarbikarinn
Úrslitaleikur karla:
Valur – ÍBV ...............................................2:0
Sigurður Egill Lárusson 8., 21.
2. deild karla
Höttur – KV.............................................. 3:2
Högni Helgason 28., Brynjar Árnason 61.,
Alexander Már Þorláksson 73. – Einar
Bjarni Ómarsson 34., Einar Már Þórisson
83.
Afturelding – Sindri................................ 2:0
Fernando Castellanos 17., Arnór Breki Ás-
þórsson 63.
Vestri – Ægir ........................................... 2:0
Matthew Nigro 15., Viktor Júlíusson 71.
Grótta – Magni......................................... 3:0
Bessi Jóhannsson 12., Agnar Guðjónsson
24., 45.
KF – ÍR...................................................... 2:3
Isaac Rodriguez 28., Hákon Leó Hilmars-
son 68. – Björn Anton Guðmundsson 7.,
sjálfsmark 90., Jón Gísli Ström 90.
Njarðvík – Völsungur ............................. 2:2
Theodór Guðni Halldórsson 63., 77. – Arn-
þór Hermannsson 19., Jóhann Þórhallsson
37.
Staðan:
ÍR 16 13 1 2 32:9 40
Grótta 16 9 5 2 22:9 32
Afturelding 16 10 2 4 28:16 32
Magni 16 7 5 4 27:20 26
Vestri 16 7 3 6 29:23 24
Sindri 16 5 5 6 29:21 20
Njarðvík 16 5 5 6 23:23 20
Höttur 16 5 5 6 22:25 20
Völsungur 16 3 8 5 19:27 17
KV 16 5 2 9 24:33 17
Ægir 16 3 2 11 16:35 11
KF 16 1 3 12 9:39 6
Markahæstir:
Jón Gísli Ström, ÍR ....................................14
Viktor Smári Segatta, Gróttu .....................9
Nik Chamberlain, Aftureldingu .................8
Viktor Örn Guðmundsson, KV....................8
Jóhann Þórhallsson, Völsungi.....................8
Sergine Modou Fall, ÍR...............................7
Wentzel Steinarr R Kamban, Afture. ........7
Theodór Guðni Halldórsson, Njarðvík.......6
Kristinn Þór Rósbergsson, Magna.............6
Lars Óli Jessen, Magna ...............................6
Mirza Hasecic, Sindra..................................6
Kristinn Justiniano Snjólfsson, Sindra ......6
3. deild karla
Einherji – Víðir......................................... 1:1
Þróttur V. – KFS...................................... 1:0
KFR – Tindastóll...................................... 0:1
Dalvík/Reynir – Kári................................ 2:3
Staðan:
Tindastóll 13 12 0 1 31:8 36
Víðir 13 10 1 2 30:16 31
Kári 13 7 1 5 28:22 22
Einherji 12 7 1 4 26:20 22
Reynir S. 13 6 1 6 21:22 19
Þróttur V. 12 5 2 5 21:17 17
Vængir Júpít. 13 5 2 6 20:28 17
Dalvík/Reynir 13 2 3 8 14:24 9
KFR 13 2 2 9 17:30 8
KFS 13 1 1 11 15:36 4
Markahæstir:
Todor Hristov, Einherja............................11
Kenneth Hogg, Tindastóli .........................11
Helgi Þór Jónsson, Víði .............................10
Sigurður D. Sigurðsson, Einherja..............8
Ragnar Þór Gunnarsson, Tindastóli ..........7
4. deild karla A
Stokkseyri – Hörður Í.............................. 1:2
Árborg – Hörður Í.................................... 5:2
Staðan:
Árborg 28, Berserkir 23, Ýmir 18, Stokks-
eyri 12, Hörður Í. 12, Mídas 8, Afríka 4.
4. deild karla C
Hvíti riddarinnar – Geisli A................... 12:1
Stál-úlfur – Geisli A.................................. 4:0
Staðan:
Hvíti riddarinn 28, Léttir 22, Stál-úlfur 18,
Kormákur/Hvöt 14, Augnablik 11, Ísbjörn-
inn 7, Geisli A. 0.
1.deild kvenna A
Staðan:
ÍR 12 9 3 0 29:2 30
HK/Víkingur 12 9 1 2 34:8 28
Víkingur Ó. 12 7 2 3 18:10 23
Þróttur R. 12 5 5 2 18:6 20
Fram 12 4 1 7 15:20 13
KH 12 3 2 7 17:19 11
Skínandi 12 2 1 9 7:26 7
Hvíti riddarinn 12 1 1 10 7:54 4
1. deild kvenna B
Fjölnir – Keflavík ..................................... 1:0
Staðan:
Grindavík 12 10 1 1 39:3 31
Haukar 12 8 1 3 31:11 25
Fjölnir 12 7 0 5 31:17 21
Augnablik 12 6 3 3 28:15 21
Keflavík 12 6 1 5 33:12 19
Afturelding 12 5 0 7 29:18 15
Álftanes 12 2 2 8 17:26 8
Grótta 12 0 0 12 5:111 0
1. deild kvenna C
Tindastóll – Völsungur............................. 6:0
Sindri – Einhverji..................................... 3:1
Staðan:
Tindastóll 6 5 0 1 26:9 15
Sindri 8 5 0 3 15:8 15
Einherji 8 4 1 3 13:17 13
Hamrarnir 8 4 0 4 9:8 12
FHL 8 3 1 4 10:13 10
Völsungur 8 1 0 7 7:25 3
KNATTSPYRNA
um, og möguleika á að auka þann
mun, en það gekk ekki. Það er dýrt
að misnota dauðafæri trekk í trekk í
svona leik, með mjög skrýtinni dóm-
gæslu eins og hún er reyndar búin að
vera á þessu móti. Þetta er óskiljan-
legur handbolti á köflum og mjög
erfitt við að eiga. Þess vegna er bara
stórkostlegt að hafa náð að vinna
hérna,“ sagði Guðmundur brosmild-
ur, og mátti vera það því Danir léku
vel í leiknum en áttu í erfiðleikum
með markverði Katar.
„Viltu kók eða pepsí?“
Guðmundur segir erfitt að meta
stöðuna sem uppi er í riðlunum
tveimur, en Danir geta lent í 1., 2.
eða 3. sæti, eftir því hvernig leikur
þeirra við Frakka í dag fer. Tapi þeir
leiknum enda þeir í 3. sæti, en það er
heldur ekki hægt að segja til um
hver mótherjinn yrði þá.
„Hvort viltu kók eða pepsí?“
spurði Guðmundur til að útskýra
stöðuna, greinilega lítt meðvitaður
um þá staðreynd að umtalsverður
gæðamunur er á þessum tveimur
drykkjum. „Það er erfitt að segja
hvað er best, og bara rosalega gott
að vera búinn að tryggja sig áfram í
8-liða úrslitin. Við spiluðum rosalega
vel hérna gegn Katar, eftir erfiðan
leik gegn Króötum, og nú er bara að
halda þessu áfram,“ sagði Guð-
mundur. Er þá ekki rétt að nýta leik-
inn gegn Frökkum til að hvíla lyk-
ilmenn?
Þekki vel að leikurinn í 8-liða
úrslitum er lykilleikurinn
„Það er mjög góð spurning. Ég fer
í alla leiki til að vinna en að sjálf-
sögðu þarf maður að skoða ástandið
á leikmönnum. Þetta er svolítið sér-
stakt mót að því leyti að það er leik-
urinn í 8-liða úrslitum sem er algjör
lykilleikur, hvernig sem gengur í
riðlinum, eins og við þekkjum frá
2012,“ og minntist þannig á leikinn
sem margir vilja gleyma, þegar Ís-
land féll úr leik á ÓL í London með
tapi gegn Ungverjum.
Guðmundur á hins vegar mjög
kærar minningar frá Ólympíu-
leikum, en hann er á sínum sjöttu
leikum. Hæst ber auðvitað silfrið
sem Ísland vann undir hans stjórn í
Peking 2008. Danir hafa aldrei unnið
til verðlauna í handbolta karla á Ól-
ympíuleikum og vonast til að Guð-
mundur og hans menn breyti því,
helst með gulli:
Jafnstórkostlegt með
Dönum og Íslendingum
„Ég vil bara hugsa um næsta leik.
Það er alltaf verið að tala um medalí-
ur og við erum með gott lið svo allt
getur gerst. Við erum sjálfir með há-
leit markmið. Ég á stórkostlegar
minningar frá Ólympíuleikum og
auðvitað er það eitthvað sem maður
vill upplifa aftur. Það yrði alveg eins
stórkostlegt að fá að upplifa það með
Dönum. Ólympíuleikarnir eru mjög
sérstakir, sem stærsti íþrótta-
viðburður heimsins, og það eru for-
réttindi að fá að taka þátt í þeim,“
sagði Guðmundur, og ítrekaði að-
spurður að það yrði ekki síður sætt
fyrir sig að vinna verðlaun sem þjálf-
ari danska liðsins og þess íslenska:
„Auðvitað er þetta aðeins öðruvísi.
Það voru forréttindi að fá að vinna
með stórkostlegum leikmönnum Ís-
lands og frábærum hópi fólks, en ég
er líka í þannig umhverfi núna, með
frábæra leikmenn og mjög gott að-
stoðarfólk. Það var stórkostlegt að
vinna verðlaun með Íslandi en ég
verð ekkert minna glaður yfir sigr-
um hérna.“
Ánægður með Jónas og Anton
Á milli leikja Guðmundar og Dags
í handboltahöllinni hér í Ríó dæmdu
þeir Jónas Elíasson og Anton Gylfi
Pálsson afar vel í hörkurimmu
Frakka og Króata, sem Króatar
unnu 29:28. Guðmundur er ánægður
með landa sína.
„Miðað við það sem ég hef séð til
þeirra þá hafa þeir staðið sig mjög
vel. Þeir eru mjög yfirvegaðir og það
er aldrei nein vitleysa í gangi hjá
þeim. Línan sem er búið að setja
hérna er hins vegar mjög undarleg.
Það er verið að reka menn endalaust
út af fyrir litlar sakir,“ sagði Guð-
mundur, en skýr dæmi mátti sjá um
það í leik Dana við Katar, hjá
egypsku dómarapari leiksins.
Í leit að fleiri stórkost-
legum minningum
AFP
Hvatning Guðmundur Þórður Guðmundsson hvetur sína menn til dáða í leiknum við Katar. Sigur í leiknum tryggði Dönum sæti í 8-liða úrslitum.
Guðmundi Þórði er hlýtt til stærsta íþróttaviðburðar heims Vill færa Dön-
um langþráð ÓL-verðlaun Komust í átta liða úrslit eftir ævintýralegan sigur
Guðmundur Þórður
» Fæddur 1960 og lék með
Víkingi, Aftureldingu og Fram
auk 230 landsleikja á árunum
1983 til 1990.
» Þjálfaði Víkingi, Fram, Aftur-
eldingu, Dormagen og GOG og
Rhein-Neckar Löwen.
» Landsliðsþjálfari Íslands
2001-2004 og 2008-2012.
Undir stjórn Guðmundar vann
íslenska landsliðið silfur á ÓL
2008 og brons á EM 2010.
» Tók við þjálfun danska
landsliðsins sumarið 2014.
Í RÍÓ
Sindri Sverrisson
sindris@mbl.is
Þjálfararnir Guðmundur Guðmunds-
son og Dagur Sigurðsson eru báðir
þegar öruggir um að fá að stýra lið-
um sínum í 8-liða úrslitum handbolta
karla á Ólympíuleikunum í Ríó á
miðvikudag, þrátt fyrir að loka-
umferð riðlakeppninnar fari fram í
dag. Dagur og lærisveinar hans í
þýska liðinu unnu Slóvena 28:25 á
laugardag og eru með 6 stig af 8
mögulegum í B-riðli, rétt eins og
Danir undir stjórn Guðmundar sem
unnu Katar í ævintýralegum leik í A-
riðli, 26:25.
Það skýrist í dag hvaða lið mætast
í 8-liða úrslitunum, en þar mætast
efstu fjögur liðin úr hvorum riðli.
Liðið í 1. sæti A-riðils mætir liðinu úr
4. sæti B-riðils, og þannig koll af
kolli. Ekki er útilokað að Danir og
Þjóðverjar mætist í hinum mik-
ilvægu 8-liða úrslitum, sem skera úr
um hvaða lið fá að spila til verðlauna.
„Þetta var bara eins og einhver
spennusaga,“ sagði Guðmundur við
Morgunblaðið eftir sigurinn á Katar.
Danir höfðu haft frumkvæðið í seinni
hálfleik en Katar var 25:24 yfir þegar
lokamínútan hófst. Mikkel Hansen
skoraði sigurmark Dana úr hraða-
upphlaupi um leið og lokaflautið gall:
„Við byrjuðum ekki nógu vel,
hvorki í vörn né sókn, en svo gerði ég
ákveðnar breytingar á liðinu sókn-
arlega og þá fannst mér við spila frá-
bæran sóknarleik. Það var ekki
vandamálið að fá tækifæri, en við
nýttum þau ekki öll því miður. Þetta
var jafn leikur en við náðum þriggja
marka forystu í tvígang seint í leikn-