Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 1

Morgunblaðið - 31.08.2016, Side 1
M I Ð V I K U D A G U R 3 1. Á G Ú S T 2 0 1 6 Stofnað 1913  203. tölublað  104. árgangur  SJÓMENNSKAN SEGIR PERSÓNU-LEGAR SÖGUR MEÐ TÓNLISTINNI NÝJASTA TÆKNI, BLÓMSTRANDIMANNLÍF OG ATVINNULÍF Í 56 SÍÐNA SÉRBLAÐI UM SJÁVARÚTVEGINN HERA HJARTARDÓTTIR 30 Skúli Halldórsson sh@mbl.is Tillaga að kaupaukakerfi fyrir starfsmenn Kaupþings var sam- þykkt með yfirgnæfandi meirihluta atkvæða á aðalfundi félagsins, sem haldinn var síðdegis í gær. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins var keimlík tillaga sam- þykkt á fyrsta hluthafafundi Glitnis þann 16. mars síðastliðinn. Í því til- viki er um að ræða álíka háar upp- hæðir og greint hefur verið frá í til- felli starfsmanna Kaupþings. Þrír stjórnarmenn Glitnis fá þá hver um sig 25% heildarupphæðar kaupauk- anna, en almennir starfsmenn, sem ekki telja fleiri en tíu, fá samtals 25% í sinn hlut. Eins og Morgunblaðið greindi frá í gær hefur þegar verið samþykkt kaupaukaáætlun fyrir stjórn og lykilstarfsmenn LBI, sem heldur ut- an um eignir gamla Landsbankans. Kaupþing er þar af leiðandi eina eignarhaldsfélag gömlu bankanna sem ekki hefur komið á sérstakri kaupaukaáætlun fyrir framkvæmda- stjóra og stjórn þess. Heimildir Morgunblaðsins herma að ætlunin sé þó að tillaga þess efnis verði lögð fram á næsta eða þarnæsta hluthafa- fundi. Samkvæmt upplýsingum frá Seðlabankanum hefur eignasafn hans greitt atkvæði gegn ofan- greindum þremur tillögum. Öll þrjú lofa kaupaukum  Tillaga að kaupaukakerfi samþykkt á aðalfundi Kaupþings  Ámóta tillaga samþykkt á fyrsta fundi Glitnis  Frekari kaupaukar í vændum hjá Kaupþingi MSamþykktu tillöguna ... »4 Í hnotskurn » Kaupaukaáætlanir hafa ver- ið samþykktar hjá þremur eignarhaldsfélögum gömlu bankanna. » Félögin heyra ekki undir lagaákvæði sem takmarka slík- ar kaupaukagreiðslur. „Það er mjög mikilvægt að farið verði að gera kröfu um að þjónusta við ferðamenn verði einnig aðgengi- leg fötluðu fólki,“ segir í nýrri skýrslu Átaks, félags fólks með þroskahömlun, sem kannaði aðgengi að nokkrum vinsælum ferðamanna- stöðum á Íslandi fyrir fatlaða ferða- menn. Fenginn var hópur fatlaðs fólks með ýmiss konar fötlun til að kanna aðstæður og voru niðurstöður á þann veg að hvergi væri gert ráð fyrir fötluðu fólki að fullu við helstu ferðamannastaði landsins. Meðal þess sem athugunin leiddi í ljós var að alls staðar var fólkinu neitað um táknmálstúlkun, gerðar voru athugasemdir við lýsingu á söfnum og aðgengi að ýmsum vin- sælum stöðum og m.a. var gerð at- hugasemd við stíg við Gullfoss sem hjólastólar komast ekki um. Í skýrslunni segir einnig að þeim sem noti hjálpartæki til að fara um sé ókleift að skoða Reynisfjöru, því að slík tæki sökkvi í sandinn þar. Til að bæta úr því væri t.d. hægt að leggja göngustíg úr timbri niður í fjöruna. Vill hópurinn meina að binda þurfi í lög að aðgengi að ferðamannastöð- um skuli vera veitt öllum hópum þjóðfélagsins. »18 Aðgengi ekki gott Seljalandsfoss Einn af þeim stöð- um sem hópurinn kannaði.  Vinsælustu stað- irnir ekki fyrir alla Hún var ákveðin í fasi, unga konan sem gekk vasklega um miðborgina, en hún átti í fullu fangi með að halda á kjólnum. Hún bar það með sér að vita hvert hún stefndi. Hvort áfangastaðurinn hafi verið eigin brúðkaupsveisla skal ósagt látið, þrátt fyrir að víður og drifhvítur kjóll minni óneitanlega á slíka athöfn. Flatbotna strigaskór auðvelduðu henni gönguna enda engir háir hælar að tefja hana á þessari leið sinni á björtum síðsumarsdegi. Með fangið fullt af hvítum kjól Morgunblaðið/Golli  Til stendur að gera við og endur- reisa á annan tug bygginga frá tím- um búnaðarskólans í Ólafsdal í Döl- um. Frá því að Minjavernd eignaðist mannvirkin í Ólafsdal og hluta jarðarinnar með þeim skil- yrðum að viðhalda skyldi húsunum og byggja upp hefur verið unnið að deiliskipulagi fyrir svæðið. Ólafsdalur í Gilsfirði er meðal merkustu sögu-, menningar og minjastaða á Vesturlandi og við Breiðafjörð. Þar var rekinn fyrsti bændaskóli landsins, stofnaður árið 1880, og risu margar byggingar þar á næstu árum og áratugum. Mest þeirra var skóla- og íbúðarhús sem byggt var árið 1896. »14 Endurreisa byggð við búnaðarskólann  Dómarafélag Íslands hefur sent bréf til Sigurðar Inga Jóhanns- sonar forsætisráðherra, Ólafar Nordal innanríkisráðherra og Lilju Alfreðsdóttur utanríkisráðherra þar sem ráðherrarnir eru hvattir til þess að beita sér gegn „hreins- unum“ dómara í tyrknesku dóms- kerfi. Þar hefur m.a. 3.500 dóm- urum verið vikið úr starfi og um helmingi þeirra varpað í fangelsi. Þrýstingur á stjórnvöld Skúli Magnússon, formaður Dómarafélags Íslands, hefur óskað eftir fundi með stjórnvöldum vegna ástandsins. „Það má segja að öll evrópsk dómarafélög hafi sett fram þrýsting á stjórnvöld og alþjóða- samtök dómara hafa beint þeim til- mælum til sinna aðildarfélaga að láta sína rödd heyrast,“ segir hann. »10 Dómarafélagið óskar eftir fundi með ráða- mönnum vegna ástandsins í Tyrklandi AFP Tyrkland Ólga ríkir í Tyrklandi í kjölfar til- raunar til valdaráns í síðasta mánuði.  52 af 64 leikskólum borgarinnar tóku með sér halla frá fyrra ári yfir á þetta rekstrarár. Ólafur Brynjar Bjarkason, leikskólastjóri á Haga- borg, segir að töluvert margir leik- skólar séu þegar komnir í mínus á þessu ári og þurfi því að vinna upp slæma rekstrarstöðu tveggja ára. Stjórnendur leikskóla skoruðu á borgarstjóra í gær að endurskoða fjárveitingar til leikskóla og benda á hvar leikskólar mættu skera niður því að þeir sæju ekki að hægt væri að skera meira niður. Dagur B. Eggertsson borgarstjóri segir að báðum skólastigum sé hlíft í þeim hagræðingaraðgerðum sem eigi sér stað í borginni núna. Skóla- málin séu hins vegar það stór þáttur af heildarútgjöldunum að ekki sé al- veg hægt að skilja þau eftir. „Það er mikilvægt að þau markmið náist eins og á öðrum sviðum,“ segir Dagur. »6 Leikskólastjórnendur sjá ekki að hægt sé að skera meira niður í skólastarfinu Morgunblaðið/Golli Mótmæli Leikskólakennarar í Reykjavík ræddu við Dag B. Eggertsson borgarstjóra.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.