Fréttablaðið - 11.11.2016, Síða 12

Fréttablaðið - 11.11.2016, Síða 12
Frá degi til dags Útgáfufélag: 365 miðlar ehf. Stjórnarformaður: Ingibjörg Stefanía Pálmadóttir forStjóri: Sævar Freyr Þráinsson Útgefandi og aðalritStjóri: Kristín Þorsteinsdóttir kristin@frettabladid.is aðStoðarritStjórar: Andri Ólafsson andri@frettabladid.is, Hrund Þórsdóttir hrund@stod2.is, Kolbeinn Tumi Daðason kolbeinntumi@365.is. Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSn 1670-3871 fréttaBlaðið Skaftahlíð 24, 105 reykjavík Sími: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is ÞróunarStjóri: Tinni Sveinsson tinni@365.is helgarBlað: Kristjana Björg Guðbrandsdóttir kristjanabjorg@frettabladid.is menning: Magnús Guðmundsson magnus@frettabladid.is lífið: Sara McMahon sara@frettabladid.is ljóSmyndir: Vilhelm Gunnarsson villi@365.is framleiðSluStjóri: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is ÚtlitShönnun: Silja Ástþórsdóttir siljaa@frettabladid.is Halldór Hafliði Helgason haflidi@frettabladid.is Í tilefni af alþjóðadegi sykursjúkra verða Samtök sykursjúkra í Smáralind laugardaginn 12.nóvember. Við kynnum félagið okkar, fræðum fólk um sykursýki, gefum bæklinga og bjóðum upp á fría blóðsykurmælingu. SAMTÖK SYKURSJÚKRA ALÞJÓÐADAGUR SYKURSJÚKRA Samstarfsaðilar okkar eru: Icepharma og Medor, sem leggja til búnað til blóðsykurmælinga. Í umræðu um félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavík hafa fyrirsagnir á borð við rugl og bull verið notaðar. Í grein Magnúsar Más Guðmundssonar, borgarfull- trúa Samfylkingarinnar, sem birtist í Fréttablaðinu og á visir.is 9. nóvember sl. talar hann um að ég hafi verið gífuryrtur. Grein Magnúsar heitir: ,,Halldór í ruglinu.“ Grein mín á Eyjunni heitir: ,,Bull í boði borgarstjóra“ og fékk ég það orðalag að láni frá borgarstjóra. Þannig að gífuryrðin eiga í báðum tilfellum lögheimili hjá þessum tveimur. Aðalmálið í þessu er að staðan varðandi félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavíkurborg er alvarleg. Fulltrúar meirihlutans í Reykjavíkurborg fara yfirleitt að tala um sambærileg vandamál í öðrum sveitarfélögum þegar bent er á vandann í borginni. Það gerir ekkert fyrir þá 844 einstaklinga sem eru á biðlista eftir félagslegu leigu- húsnæði í borginni. Þeim einstaklingum fjölgaði um 15 prósent á milli áranna 2015 og 2016 og eiga lögheimili í Reykjavík. Það hjálpar þeim ekkert að borgarfulltrúar í meirihlutanum tali um að önnur sveitarfélög þurfi að gera betur. Magnús Már Guðmundsson segir í grein sinni að 2.351 félagsleg íbúð sé í Reykjavík 2016, þar af 1.916 almennar félagslegar leiguíbúðir. Hann segir einnig að þeim hafi fjölgað um 612 á síðustu tíu árum og ekkert hafi fjölgað 2010. Þá segir hann í grein sinni að undirrit- aður hafi sagt að félagslegum leiguíbúðum hafi fækkað í Reykjavík. Skoðum þetta aðeins. Formleg svör lögð fram í borgarráði segja okkur þetta: Fjölgað hefur um 72 félagslegar leiguíbúðir frá 2010, stefnan er 100 á ári sem augljóslega gengur ekki eftir. Fækkað hefur um þrjár íbúðir fyrir aldraða á vegum Reykjavíkurborgar frá 2010. Þann 1. janúar 2011 færðust 114 íbúðir fyrir fatlaða frá ríki til Reykjavíkurborgar. Þeim hefur fjölgað um fjórar síðan þá. Þær 425 íbúðir sem fjölgað hefur um á síðustu tíu árum, sé miðað við grein Magnúsar Más, eru þá fjölgun frá kjörtímabilinu 2006-2010 sem er eina kjörtímabilið síðustu 22 ár sem Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið í meirihluta. Um rugl og bull Halldór Halldórsson oddviti Sjálf- stæðisflokksins í borgarstjórn Aðalmálið í þessu er að staðan varðandi félagslegt leiguhúsnæði í Reykjavíkur- borg er alvarleg. Talsverður hópur reiðir sig á mat á vegum opinberra aðila. Það á að vera tryggt að slík fæða uppfylli skilyrði um nauðsynlegan hitaeininga- fjölda og næringarefni. Ekki þarf að fara langt aftur í sögu okkar til þess að nútíminn yrði í samanburðinum tími ofgnóttar og sóunar. Framboð fjölbreyttrar fæðu hefur aldrei verið meira né forsendur til þess að hafa öll hugsanleg næringarefni í fæðunni. Það er kannski til marks um þetta mikla aðgengi okkar að fjölbreyttri fæðu að sprottið hafa upp matarkúrar sem sumir hverjir ganga svo langt að útiloka mikilvæga fæðu- flokka úr daglegum kosti. Í slíku ofgnóttarsamfélagi skýtur því skökku við að hópar í samfélaginu búi við næringarskort. Frétt Frétta- blaðsins í dag um næringarástand aldraðra sem leggjast inn á spítala er sláandi. Fram kemur í rannsókn sem gerð var árin 2015 og 2016 að tveir af hverjum þremur sem leggjast inn á Landakotsspítala eru vannærðir eða sýna sterk merki slíks. Í fréttinni kemur einnig fram að inni á sjúkrastofnunum geti ástandið haldið áfram að versna. Í samtali við Frétta- blaðið segir Ólöf Guðný Geirsdóttir, dósent í næringar- fræði við HÍ, að kerfið geri í raun ráð fyrir því að aðstand- endur aldraðra tryggi nauðsynlegan stuðning og næringu. Almenn þekking á grundvallaratriðum lýðheilsu hefur farið vaxandi á síðustu árum. Flestir sem nálgast miðjan aldur eru fullmeðvitaðir um mikilvægi grunn- þátta góðrar heilsu sem eru næring, hreyfing og svefn. Án áreynslu og réttrar næringar minnkar vöðvamassi frá til- tölulega ungum aldri til endaloka. Sumir þættir svo sem beinþéttni ráðast af hegðun á unga aldri, auk erfða. Það er því mikilvægt að fara með góðan forða inn í ellina, en algjörlega nauðsynlegt að viðhalda góðri nær- ingu og eins mikilli hreyfingu og kostur er þegar komið er á efri ár. Það getur á engan hátt talist viðunandi að eldra fólk búi við næringarskort eins og þessi rannsókn gefur til kynna. Það er líka ástæða til að óttast að fæða yngra fólks einkennist um of af hitaeiningaríkum og næringar- litlum mat. Hér er þörf á átaki. Talsverður hópur reiðir sig á mat á vegum opinberra aðila. Það á að vera tryggt að slík fæða uppfylli skilyrði um nauðsynlegan hitaeiningafjölda og næringarefni. Í tilfelli aldraðra þarf að tryggja að nóg sé af byggingarefnum til að viðhalda vöðvamassa og hreyfi- getu. Vannært gamalmenni vinnur ekki glatt til baka það tap sem af vannæringunni hefur hlotist. Sá skaði er óbætanlegur í mörgum tilvikum og styttir líf og dregur úr lífsgæðum. Sá kostnaðarauki sem hlýst af því að bæta úr því ástandi sem nú ríkir er smámunir samanborið við skaðann sem af vannæringunni hlýst sem aftur birtist í kostnaði annarra þátta heilbrigðiskerfisins. Þekkingin er fyrir hendi og gnótt matar í landinu. Við höfum enga afsökun fyrir því að tryggja ekki öldruðum nauðsynlega næringu. Óafsakanlegur næringarskortur Vatn á myllu ESB Flestir áhugamenn um stjórn- mál eru enn að vega og meta niðurstöður forsetakosning- anna í Bandaríkjunum. Eðli málsins samkvæmt gleðjast einhverjir yfir niðurstöðunni. Hinn hópurinn er þó háværari, sem óttast stjórnarhætti í Hvíta húsinu næstu fjögur árin. Bæði í innanríkismálum, en ekki síður í utanríkismálum. Búast má við því að stuðningur við Evrópusambandið aukist á næstunni, enda einhverjir sem kunna að líta svo á að ESB geti orðið gott mótvægi við bullið sem þeir búast við frá Banda- ríkjunum. Sannfæring Katrínar Morgunblaðið greindi frá því í gær að Katrínu Jakobsdóttur hafi borist hótanir frá grasrót og ungliðahreyfingunni í VG um úrsagnir úr flokknum og þaðan af verra ef hún semdi um stjórnarsamstarf við Sjálf- stæðisflokkinn. Því yrði ekkert af viðræðum flokkanna tveggja á næstunni. Blaðamaður hefur sjálfsagt horft fram hjá því sem Katrín sjálf sagði mánuðum saman fyrir kosningar. Að draumur hennar væri samstarf stjórnarandstöðuflokkanna. Ákvörðun Katrínar um að sitja hjá við ríkisstjórnarmyndun kann því allt eins að vera tekin á eigin forsendum, án þrýstings úr grasrótinni. jonhakon@frettabladid.is 1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r12 S k o ð U n ∙ F r É T T A b L A ð i ð SKOÐUN 1 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :3 3 F B 0 5 6 s _ P 0 5 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 4 1 -8 8 0 4 1 B 4 1 -8 6 C 8 1 B 4 1 -8 5 8 C 1 B 4 1 -8 4 5 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.