Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.11.2016, Qupperneq 18

Fréttablaðið - 11.11.2016, Qupperneq 18
1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r18 S p o r T ∙ F r É T T A b L A ð i ð Luka Modric er frægasti fótboltamaður Króata en þessi fyrrum leikmaður Tottenham spilar nú með Real Madrid. FRéTTabLaðið/GeTTy Á morGUn LAUGArDAGUr 12. nóvember 17:00 Var ölvaður undir stýri en spilar samt Króatíski landsliðsmaðurinn Domagoj Vida var handtekinn síðasta föstudag fyrir að aka ölv- aður í Úkraínu þar sem hann spilar. Sú uppákoma hefur engin áhrif á stöðu hans hjá króatíska liðinu. „Hann mun spila. Þetta er Króatía og hér er allt önnur menning. Hér segjum við fólki ekki frá neinu,“ segir Topic og glottir. „Hann tók út sína refsingu í Úkraínu og málið er þar með dautt. Þar sem Dejan Lovren getur ekki spilað á ég von á Vida í byrjunarliðinu.“ Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Vida lendir í basli með Bakkus. Þegar hann var leikmaður Dinamo Zagreb fyrir fjórum árum opnaði hann bjór í liðsrútunni á leið í bikar- leik gegn Vrsar. Þáverandi þjálfari Dinamo henti honum út úr rútunni og skildi Vida eftir á miðjum veg- inum. Sá maður heitir Ante Cacic og er þjálfari króatíska landsliðsins í dag. „Hann er ekkert að fara að henda honum út úr rútunni núna. Vida er kannski ekki sá gáfaðasti en Króatar elska hann því hann er aldrei að reyna að vera annað en hann sjálfur. Þetta er ekkert sérstaklega skarpur strákur en skemmtilegur.“ FóTboLTi Íslenska landsliðið lendir í Zagreb í dag eftir góðan undirbúning í Parma en á meðan hefur króatíska landsliðið æft af krafti á Maksimir- vellinum. Það hefur mest verið talað um hvort lykilleikmaður liðsins, Luka Modric, geti spilað. „Hann mun líklega verða í byrj- unarliðinu. Hann náði að spila með Real Madrid um síðustu helgi og ætti því að vera tilbúinn,“ segir Mihovil Topić, blaðamaður hjá Telegram í Zagreb, en hann fylgist vel með króat- íska liðinu. „Hann er í allt öðrum gæðaflokki en aðrir leikmenn. Hann er lík- lega besti knattspyrnumaður í sögu Króatíu. Hann er klókur, fljótur og maðurinn sem stýrir spili liðsins. Liðið er 30-40 prósent veikara án hans.“ Fjölmiðlar hafa talað af virðingu um íslenska liðið í aðdraganda leiksins og enginn hér í Zagreb gerir ráð fyrir auðveldum sigri króatíska liðsins. „Við búumst við mjög erfiðum leik því það sáu allir hvernig Ísland stóð sig á EM. Andrúmsloftið á leiknum verður auðvitað ekki eins öflugt og venjulega því það verða engir áhorf- endur á leiknum,“ segir Topić en Króatar eru í heimaleikjabanni og því verður leikið fyrir luktum dyrum. Telur blaðamaðurinn að það muni hafa mikil áhrif á króatíska liðið? „Það mun klárlega hafa einhver áhrif en það er erfitt að segja hversu mikil áhrif. Það telur enginn í króat- íska liðinu að þeir geti labbað yfir Íslendinga. Væntingarnar eru aftur á móti miklar hér. Á EM töpuðum við fyrir Portúgal en allir í Króatíu eru á því að við hefðum átt að vinna EM. Kröfurnar sem eru gerðar til liðsins eru að vinna Ísland og vinna riðilinn sem er þó mjög sterkur.“ Það er ekki búist við því að áhorf- endur muni fjölmenna fyrir utan völlinn og reyna að búa til einhver læti sem síðan skila sér í takmörkuðu magni inn á völlinn. „Fólk verður heima fyrir framan sjónvarpið. Þó svo það væri leyfilegt að hafa áhorfendur þá væri líklega ekki uppselt. Það er sjaldan uppselt og stemningin mætti oft vera betri. Það selst ekki einu sinni upp á leiki gegn bestu þjóðum heims. Ástandið á fótboltanum í landinu er ekki gott út af reiði í garð knattspyrnusambands- ins. Það hefur skilað sér í því að miklu færra fólk fer á völlinn núna en áður. Sérstaklega í deildinni. Það er öllum sama um hana.“ Topić bendir á að lykilleikmenn liðsins séu vanir að leika undir pressu og hefur engar áhyggjur af Króatar munu ekki labba yfir Íslendinga Króatískur blaðamaður segir að mikil virðing sé borin fyrir íslenska landsliðinu og allir eigi von á hörkuleik á morgun. Engir áhorfendur verða á leikn- um og óljóst hvaða áhrif það mun hafa á króatíska liðið sem ætlar sér stóra hluti. Henry Birgir Gunnarsson henry@frettabladid.is Það telur enginn í króat íska liðinu að þeir geti labbað yfir Íslend- inga. Væntingarnar eru aftur á móti miklar hér. Á EM töpuðum við fyrir Portúgal en allir í Króatíu eru á því að við hefðum átt að vinna EM. Kröfurnar sem eru gerðar til liðsins eru að vinna Ísland og vinna riðilinn sem er þó mjög sterkur. Mihovil Topić, blaðamaður í Zagreb því að pressan muni hafa áhrif á leikmenn. „Það á ekki að vera neitt stress en það kannski kemur ef liðið tapar fyrir Íslandi. Annars er liðið of reynt til þess að fara á taugum. Ef Ísland vinnur verður fólk líklega ekkert brjálað þó svo það verði ósátt. Leik- menn munu ekki taka mótlæti eins mikið inn á sig og fjölmiðlar.“ Þegar Ísland var að spila við Króa- tíu í umspili um laust sæti á HM fyrir þrem árum varð allt vitlaust í Króa- tíu er Vísir greindi frá því að nokkrir leikmanna króatíska liðsins hefðu drukkið ansi marga bjóra eftir leik- inn á Íslandi. Það mál er nú gleymt. „Það eru allir löngu búnir að gleyma þessu. Það tók svona viku fyrir fólk að gleyma þessu. Þetta var skemmtileg frétt í upphafi en Króatía vann og öllum var sama. Ef Ísland hefði aftur á móti unnið einvígið þá hefði þetta verið áfram stórfrétt í Króatíu.“ Josip Pivarić spilar með liði Dinamo Zagreb í króatísku deildinni og Maksimir-leik- vangurinn er því heimavöllur hans allt árið um kring. FRéTTabLaðið/GeTTy FóTboLTi „Við eigum von á erfiðum og jöfnum leik gegn Íslandi. Við stefnum á að stýra umferðinni, vera mikið með boltann og skapa færi sem leiða til þess að við skorum mörk og vinnum leikinn,“ sagði bakvörðurinn Josip Pivaric í viðtali við Fréttablaðið í gær. Þá var hann að mæta á kvöldæf- ingu hjá króatíska liðinu á Maksim- ir-vellinum þar sem leikur Króatíu og Íslands verður spilaður. Pivaric verður heldur betur á heimavelli þar enda spilar hann með Dinamo sem spilar sína heimaleiki á Maksimir. Ísland og Króatía eru jöfn með sjö stig á toppi riðilsins og það er því ansi mikið undir í þessum leik. „Við berum mikla virðingu fyrir Íslandi en þar sem við erum á heimavelli þá lítum við þannig á stöðuna að við eigum að vera sigur- stranglegri. Það er allt mjög jafnt á milli okkar og við gerum okkur fyllilega grein fyrir því hversu mikilvægur leikurinn er. Auðvitað er undankeppnin samt ekki búin eftir þennan leik,“ segir Pivaric en hvað þarf króatíska liðið að varast hjá Íslandi? „Helsti styrkur íslenska liðsins er hversu vel liðið vinnur saman. Það leggur líka mikið á sig. Þeir eru sterkir í návígi og vonandi náum við að svara því með hörku á móti. Við vitum hvað þeir geta verið hættulegir í hröðum upphlaup- um. Við verðum að stöðva það.“ Eins og áður segir spilar Pivaric flesta sína leiki á þessum velli en hvernig upplifun verður það fyrir hann að spila fyrir framan tóman heimavöll? „Það er erfitt fyrir alla að spila svona leiki. Okkar stuðningsmenn eru alltaf frábærir og því er vont að fá ekki stuðning þeirra. Þeir gefa okkur styrk er á þarf að halda. En við getum ekki notað það sem afsökun. Við verðum að sækja til sigurs.“ – hbg Berum mikla virðingu fyrir Íslandi Helsti styrkur íslenska liðsins er hversu vel liðið vinnur saman. Það leggur líka mikið á sig. Þeir eru sterkir í návígjum og vonandi náum við að svara því með hörku á móti. Josip Pivarić, leikmaður króatíska lands- liðsins í knattspyrnu. 1 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :3 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 4 1 -8 3 1 4 1 B 4 1 -8 1 D 8 1 B 4 1 -8 0 9 C 1 B 4 1 -7 F 6 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.