Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.11.2016, Qupperneq 24

Fréttablaðið - 11.11.2016, Qupperneq 24
Ég hef mikið verið beðin að teikna myndir af börnum og gæludýrum. Einnig hefur eiginkona eða eiginmaður óskað eftir mynd af maka sínum. Fólk notar myndirnar til gjafa og ég hef til dæmis fengið mörg verkefni núna fyrir jólin. Það er vinsælt að setja myndirnar í ramma og gefa í jólagjöf. Margrét Ósk Hildur Hallgrímsdóttir Elín Albertsdóttir elin@365.is Óttarr Proppé, Benedikt Jóhannesson og Bjarni Benediktsson komnir á blað hjá Margréti. Kannski hún eigi eftir að teikna þá oftar. MYND/MÓHH Margrét hefur nýlokið við að teikna miðbæjarkort fyrir Kvosina hótel. Margrét er nemandi í grafískri hönnun við Listaháskóla Íslands. Hún á tvö ár eftir í námi og lang- ar í framtíðinni að starfa á auglýs- ingastofu. Meðfram náminu hefur hún tekið að sér að teikna mynd- ir af fólki. Hún notar ljósmyndir sem fyrirmynd. „Teikningar hafa alltaf verið áhugamálið mitt. Mér fannst kjörið að fara í nám þar sem áhugamálið gagnast vel,“ segir hún. „Ég hef mikið verið beðin að teikna myndir af börnum og gælu- dýrum. Einnig hefur eigin kona eða eiginmaður óskað eftir mynd af maka sínum. Fólk notar myndirnar til gjafa og ég hef til dæmis feng- ið mörg verkefni núna fyrir jólin. Það er vinsælt að setja myndirnar í ramma og gefa í jólagjöf. Mynd- irnar eru A4 eða A3 að stærð og í svarthvítu,“ segir hún en Margrét Ósk hefur verið að prófa sig áfram með akrýlmálningu. „Mér finnst þetta algjör snilld, mjög skemmti- legt,“ segir hún. „Það er frábært að vinna við eitthvað sem maður elsk- ar,“ bætir hún við. Margrét segist ekki hafa stund- að nám í myndlist. „Það kom vel til greina en mér fannst praktísk- ara að fara í grafíska hönnun þar sem atvinnutækifærin eru fleiri,“ segir Margrét Ósk sem er 24 ára Listin Leikur í höndum hennar Margrét Ósk Hildur Hallgrímsdóttir hefur teiknað myndir frá unga aldri. Fyrst notaði hún hæfileikana til að teikna hesta enda mikil hestamanneskja. Smám saman hefur hún breytt yfir í myndir af fólki sem hún teiknar eftir ljósmyndum. Velkomin í okkar hóp! Innritun stendur yfir í síma 581 3730 Síðustu TT námskeið fyrir jól! Nánari upplýsingar á jsb.is [ Komdu, við kunnum þetta ] Lágmúla 9 | 108 Reykjavík | Sími 581 3730 | jsb@jsb.is | www.jsb.is stelpur 16-25 ára Margrét er með mörg verkefni fyrir jól og greinilega ýmsir sem ætla að gefa teikningar í ramma. tvíburi, ættuð úr Grindavík. Tví- burasystir hennar hefur ekki þetta sama áhugamál. Hún hefur nýlokið við að teikna miðbæjarkort fyrir Kvosina hótel og er til í að gera fleiri slík verk- efni. „Það var mjög skemmtilegt verkefni. Einnig gerði ég mína út- gáfu af íslensku landvættunum fyrir Sigló hótel á Siglufirði, kort af Íslandi með fyrirmynd frá árinu 1500 á veitingastaðnum Frederik- sen Ale House í Hafnarstræti og Íslandskort fyrir Scandinavian, veitingahús á Laugavegi,“ segir Margré,t sem er að fara með kær- astanum og fjölskyldu hans í frí til Bandaríkjanna um jólin. Henni finnst það mjög spennandi þrátt fyrir nýafstaðnar forsetakosning- ar og segist engar áhyggjur hafa af þeim málum. Hún hefur ekki teiknað jólakort en hefur lengi gengið með þá hugmynd í magan- um. Það verður þó varla tími til þess fyrir þessi jól. Margrét Ósk hefur ekki prófað að teikna skopmyndir af pólitíkus- um en segist gjarnan vilja reyna sig á því sviði. Við fengum hana því til að spreyta sig á mynd af Bjarna Benediktssyni, Óttari Proppé og Benedikt Jóhannessyni með þess- ari flottu útkomu. Þótt þeir félag- ar liggi vel við höggi þessa dagana og séu myndrænir er myndin ekki gerð í pólitískum tilgangi. 1 1 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U r6 F ó l k ∙ k y n n i n G A r b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l 1 1 -1 1 -2 0 1 6 0 4 :3 3 F B 0 5 6 s _ P 0 3 6 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 3 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 1 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 4 1 -A 5 A 4 1 B 4 1 -A 4 6 8 1 B 4 1 -A 3 2 C 1 B 4 1 -A 1 F 0 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 5 6 s _ 1 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.