Morgunblaðið - 15.11.2016, Síða 3
Mikill munur var á markvörslu lið-
anna en Viktor Gísli Hallgrímsson,
markmaðurinn ungi í liði Fram, varði
einungis eitt af þeim 25 skotum sem
hann fékk á sig. Markverðir ÍBV
vörðu samtals sautján skot en Kol-
beinn Aron Arnarsson varði fimmtán
af þeim, hann átti góðan leik í mark-
inu.
Guðmundur Helgi Pálsson var alls
ekki sáttur með sína menn eftir leik
en hann sagði botninum vera náð og
að hann hefði aldrei séð sitt lið spila
svona illa. Honum fannst varnarleik-
urinn vera ömurlegur og leiðin liggur
einungis upp á við hjá Fram.
Mikil barátta var í liði ÍBV en leik-
menn liðsins fengu sjö brottvísanir
gegn þremur hjá gestunum. Elliði
Snær Viðarsson var sendur í sturtu
stuttu fyrir leikslok þegar hann fékk
sína þriðju brottvísun, hann stendur
sig vel í fjarveru Sindra Haralds-
sonar, varnartrölls ÍBV, en Sindri
hefur fengið ófá rauðu spjöldin á síð-
ustu árum.
Enn og aftur voru margir ungir
strákar á skýrslu í liði ÍBV og
spiluðu þeir allir í gær. Meiðslin í
herbúðum ÍBV gera það að verkum
að margir ungir leikmenn fá stærra
hlutverk en þeim var ætlað á tíma-
bilinu. Arnar Pétursson, þjálfari liðs-
ins, vonar að það muni hjálpa liðinu
eftir áramót þegar lykilmenn liðsins
koma til baka.
Með sigrinum kemst ÍBV upp að
hlið FH í 5. sæti deildarinnar, liðinu
var spáð einu af toppsætunum af
flestum fyrir leiktíðina en meiðsli
hafa sett strik í reikninginn. Fram er
nú með Stjörnunni og Gróttu í 7.-9.
sæti deildarinnar eftir að hafa byrjað
leiktíðina mjög vel.
Morgunblaðið/Ófeigur
Dauðafæri Garðar Sigurjónsson fer inn af
línunni. Til varnar er Ágúst Elí Björg-
vinsson sem átti fínan leik í marki FH.
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 15. NÓVEMBER 2016
Vestmannaeyjar, úrvalsdeild karla, Ol-
ís-deildin, mánudag 14. nóvember
2016.
Gangur leiksins: 4:2, 7:5, 9:7, 13:8,
15:10, 17:13, 19:15, 22:19, 26:22,
30:24, 34:26, 37:29.
Mörk ÍBV: Theodór Sigurbjörnsson
14/2, Sigurbergur Sveinsson 9, Kári
Kristján Kristjánsson 4, Grétar Þór
Eyþórsson 3, Dagur Arnarsson 3,
Magnús Stefánsson 2, Agnar Smári
Jónsson 1, Ágúst Emil Grétarsson 1.
Varin skot: Kolbeinn Arnarsson 15,
Andri Ísak Sigfússon 2.
Utan vallar: 14 mínútur.
Mörk Fram: Þorsteinn Gauti
Hjálmarsson 7, Arnar Birkir Hálf-
dánsson 7, Andri Þór Helgason
6/2, Elías Bóasson 3, Sigurður
Örn Þorsteinsson 3, Valdimar Sig-
urðsson 2, Bjartur Guðmundsson
1.
Varin skot: Valtýr Már Hákonarson
5, Viktor Gísli Hallgrímsson 1.
Utan vallar: 6 mínútur.
Dómarar: Jón Karl Björnsson og
Jónas Elíasson.
Áhorfendur: 300.
ÍBV – Fram 37:29
Vallaskóli, Selfossi, úrvalsdeild karla,
Olís-deildin, mánudag 14. nóvember
2016.
Gangur leiksins: 2:3, 6:5, 10:9, 12:12,
14:15, 15:16, 18:19, 22:21, 24:24,
25:27, 28:29, 29:31.
Mörk Selfoss: Teitur Örn Einarsson
7/4, Elvar Örn Jónsson 6, Einar Sverr-
isson 4, Hergeir Grímsson 4, Eyvindur
Hrannar Gunnarsson 2, Sverrir Páls-
son 2, Guðjón Ágústsson 1, Árni
Steinn Steinþórsson 1, Alexander Már
Egan 1, Magnús Öder Einarsson 1.
Varin skot: Helgi Hlynsson 9/1, Einar
Ólafur Vilmundarson 7.
Utan vallar: 6 mínútur.
Mörk Vals: Josip Juric Grgic 9/1, Ant-
on Rúnarsson 6/2, Ólafur Ægir Ólafs-
son 6, Sveinn Aron Sveinsson 3, Atli
Már Báruson 3, Vignir Stefánsson 2,
Orri Freyr Gíslason 1, Ýmir Örn Gísla-
son 1.
Varin skot: Hlynur Morthens 12/1,
Sigurður Ingiberg Ólafsson 6.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Arnar Sigurjónsson og
Svavar Ólafur Pétursson.
Áhorfendur: 500.
Selfoss – Valur 29:31
TM-höllin Garðabæ, úrvalsdeild karla,
Olís-deildin, mánudag 14. nóvember
2016.
Gangur leiksins: 1:0, 4:1, 5:5, 7:8, 7:9,
10:11, 11:14, 13:16, 17:16, 18:18, 20:20,
22:22.
Mörk Stjörnunnar: Guðmundur S.
Guðmundsson 6, Garðar Benedikt
Sigurjónsson 3/1, Stefán Darri Þórs-
son 3, Ari Magnús Þorgeirsson 3,
Starri Friðriksson 2, Andri Hjartar
Grétarsson 1, Ari Pétursson 1, Hjálm-
týr Alfreðsson 1, Sverrir Eyjólfsson 1,
Eyþór Már Magnússon 1.
Varin skot: Sveinbjörn Pétursson
19/3.
Utan vallar: 4 mínútur.
Mörk FH: Óðinn Þór Ríkharðsson 8,
Einar Rafn Eiðsson 5/1, Jóhann Karl
Reynisson 5, Ísak Rafnsson 2, Gísli
Þorgeir Kristjánsson 1, Arnar Freyr Ár-
sælsson 1.
Varin skot: Ágúst Elí Björgvinsson
19/1.
Utan vallar: 8 mínútur.
Dómarar: Anton Gylfi Pálsson og Þor-
leifur Árni Björnsson.
Áhorfendur: 250.
Stjarnan – FH 22:22
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Atkvæðamikil Ester Óskarsdóttir er fyrirliði ÍBV utan vallar sem innan.
Arnór IngviTraustason,
landsliðsmaður í
knattspyrnu,
mætir til æfinga
hjá nýjum þjálf-
ara hjá félagsliði
sínu Rapid Vín
eftir leikinn við
Möltu með ís-
lenska landslið-
inu í dag. Rapid Vín rak þýska þjálf-
ann Michael Büskens í síðustu viku
og hefur ráðið Austurríkismanninn
Damir Canadi í staðinn. Liðið er í 5.
sæti af 10 liðum, fimm stigum frá
næsta Evrópusæti, sem þótti alls
ekki ásættanlegt. Canadi hefur síð-
ustu þrjú ár stýrt Rheindorf Altach
sem hann kom upp í austurrísku úr-
valsdeildina árið 2014, en liðið er þar
í 2. sæti nú, jafnt toppliði Sturm
Graz að stigum og níu stigum fyrir
ofan Rapid Vín.
Í dag rennur útfresturinn
sem knattspyrnu-
félagið IFK
Gautaborg hefur
til að nýta kaup-
rétt á íslenska
landsliðsmann-
inum Elíasi Má
Ómarssyni. Fé-
lagið hefur átt í
samningaviðræðum við Elías og það
ætti því að skýrast í dag hvort þær
hafa skilað árangri. IFK þyrfti þá að
greiða norska félaginu Vålerenga
jafnvirði 19 milljóna íslenskra króna,
en Elías hefur verið að láni hjá
sænska félaginu frá Vålerenga síð-
ustu mánuði og staðið sig afar vel.
Elías er nú staddur á Möltu þar sem
Ísland mætir heimamönnum í vin-
áttulandsleik í kvöld.
Bandaríski körfuknattleiksmað-urinn Jeremy Atkinson verður
í liði Njarðvíkinga annað kvöld þeg-
ar þeir taka á móti Haukum í 7. um-
ferð Dominos-deildar karla. Þetta
staðfestu Njarðvíkingar í gær en
þeir sömdu á dögunum við Atkinson
um að snúa aftur til félagsins. Hann
lék með Njarðvík síðasta vetur. Stef-
an Bonneau er einnig í röðum
Njarðvíkinga sem þurfa nú að skipta
leikjum sínum á milli þeirra þar sem
tveir bandarískir leikmenn mega
ekki vera inná hjá sama liði í einu.
Einar MárBjörnsson
og Hafþór Harð-
arson úr ÍR urðu
Íslandsmeistarar
í tvímenningi í
keilu um helgina
en Íslandsmótið
fór fram í Egils-
höll. Þeir sigruðu
Þorleif Jón Hreiðarsson og Elías
Borgar Ómarsson úr KR í úrslita-
leiknum, 313:370, 404:313 og
390:368. Guðlaugur Valgeirsson og
Skúli Freyr Sigurðsson úr KFR
höfnuðu í þriðja sæti.
Enski miðjumaðurinn FrankLampard hefur ákveðið að
segja skilið við bandaríska liðið New
York City en frá þessu greinir hann
á Instagram-síðu sinni. Lampard,
sem er 38 ára gamall, átti erfitt upp-
dráttar til að byrja með en hann
endaði tímabilið með því að skora 15
mörk í 31 leik með liðinu.
Þýski knattspyrnumaðurinnBastian Schweinsteiger virðist
hins vegar vera á förum til Banda-
ríkjanna en hann hefur rætt við for-
ráðamenn Chicago Fire. Manchest-
er United gaf Schweinsteiger leyfi
til þess og getur hann yfirgefið Unit-
ed í janúar. Þjóðverjinn fékk ekki að
æfa með aðalliði United framan af
þessu tímabili, samkvæmt ákvörðun
knattspyrnustjórans José Mour-
inho, en hefur fengið að æfa með því
að undanförnu.
Fólk sport@mbl.is
Ísland og Malta mætast í fimm-
tánda skipti í A-landsleik karla í
knattspyrnu í kvöld þegar þjóð-
irnar eigast við í vináttuleik á Ta-
’Qali leikvanginum á Möltu. Átta
ár eru frá því liðin mættust síðast.
Ísland hefur sigrað tíu sinnum í
fjórtán viðureignum til þessa en
Maltverjar hafa unnið þrisvar og
einu sinni hafa liðin skilið jöfn.
1. Malta vann Ísland 2:1 í
undankeppni EM á Möltu í júní
1982. Marteinn Geirsson skoraði
mark Íslands úr vítaspyrnu.
2. Ísland vann Möltu 1:0 í seinni
leiknum í þeirri keppni á Laugar-
dalsvelli í júní 1983. Atli Eðvalds-
son skoraði sigurmarkið.
3. Ísland sigraði 4:1 í vináttuleik
á Möltu í maí 1991. Rúnar Krist-
insson skoraði tvö mörk, Sigurður
Grétarsson og Andri Marteinsson
eitt hvor.
4. Malta sigraði 1:0 í vináttuleik
á Möltu í febrúar 1992.
5. Ísland sigraði 4:1 í vináttuleik
á Möltu í febrúar 1996. Ólafur
Þórðarson, Bjarki Gunnlaugsson,
Arnar Grétarsson og Arnór Guð-
johnsen skoruðu mörkin.
6. Ísland sigraði 2:1 í vináttuleik
á Laugardalsvelli í ágúst 1996.
Ólafur Adolfsson og Ríkharður
Daðason skoruðu mörkin.
7. Ísland sigraði 2:1 í vináttuleik
á Möltu í apríl 1999. Þórður Guð-
jónsson og Ríkharður Daðason
skoruðu mörkin.
8. Ísland sigraði 5:0 í vináttuleik
á Laugardalsvelli í júlí 2000. Helgi
Sigurðsson skoraði þrennu en Eyj-
ólfur Sverrisson og Heiðar Helgu-
son eitt mark hvor.
9. Ísland sigraði 4:1 í undan-
keppni HM á Möltu í apríl 2001.
Tryggvi Guðmundsson, Helgi Sig-
urðsson, Eiður Smári Guðjohnsen
og Þórður Guðjónsson skoruðu
mörkin.
10. Ísland sigraði 3:0 í undan-
keppni HM á Laugardalsvelli í júní
2001. Tryggvi Guðmundsson, Rík-
harður Daðason og Eiður Smári
Guðjohnsen skoruðu mörkin.
11. Eina jafnteflið, 0:0, í undan-
keppni HM á Möltu í október 2004.
12. Ísland sigraði 4:1 í undan-
keppni HM á Laugardalsvelli í júní
2005. Gunnar Heiðar Þorvaldsson,
Eiður Smári Guðjohnsen, Tryggvi
Guðmundsson og Veigar Páll
Gunnarsson skoruðu mörkin.
13. Malta sigraði 1:0 í vináttu-
leik á Möltu í febrúar 2008.
14. Ísland sigraði 1:0 í vináttu-
leik á Möltu í nóvember 2008.
Heiðar Helguson skoraði markið.
vs@mbl.is
Mæta Möltu í
fimmtánda sinn
Tíu sigrar og þrjú töp til þessa