Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2015, Side 16
Helgarblað 11.–14. desember 2015
PURE SAFAR -
100% HOLLUSTA!
Pure safarnir frá Harboe eru
100% hreinir og ferskir safar.
Þeir eru ekki úr þykkni eins
og svo margir aðrir ávaxta-
safar og þeir eru ekki síaðir.
Þetta tryggir það að öll
næringarefni haldast í safa-
num og hann er eins nálægt
nýkreistum safa og hugsast
getur. Þrátt fyrir að vera 100%
hreinir eru Pure safarnir líka
rotvarnarefnalausir og án all-
ra aukaefna þar sem sérstök
pökkunaraðferð tryggir ein-
staklega gott geymsluþol.
Þú færð Pure safana frá
Harboe í næstu verslun.
K
im Jong-un, leiðtogi Norður-
Kóreu, hefur ákveðið að
senda stúlknasveitina
Moran bong, vinsælustu
hljómsveit alræðisríkisins,
í vikulanga tónleikaferð til Peking,
höfuðborgar Kína. Ferðin er liður í
viðleitni leiðtogans unga til að bæta
samskipti sín við nágrannaríkið en
hann stofnaði hljómsveitina árið
2012. Ríkisfréttastofa Norður-Kóreu
greindi frá þessu á miðvikudag.
Stutt pils og háir hælar
Moranbong er eingöngu skipuð ung-
um konum og er eina hljómsveit
landsins sem rúmar ekki að minnsta
kosti einn karlmann. Hljómsveitin
hefur komið saman á alls fjórtán tón-
leikum i heimalandinu en á að koma
fram á þrennum í Peking. Ekki er vit-
að hvenær þeir verða haldnir en mið-
ar á þá verða eingöngu fyrir útvalda
gesti og aðdáendum hennar úr neðri
stéttum kínversks samfélags verður
meinaður aðgangur. Má gera ráð fyrir
að sveitin spili þar sína helstu slagara
eða norðurkóresk ættjarðarlög eins
og „My country is the best“ og þekkt
vestræn dægurlög á borð við titillag-
ið úr kvikmyndunum um bandarísku
hnefaleikahetjuna Rocky Balboa.
Stúlknasveitin samanstendur
annars vegar af ellefu hljóð-
færaleikurum og hins vegar átta
söngkonum. Tilvist hennar er sögð
tengjast eftirspurn yngri kynslóða
Norður-Kóreu, þá sérstaklega ung-
um konum úr efri stéttum landsins,
sem og liðsmönnum hersins, ýms-
um tæknimenntuðum sérfræðingum
og öðrum hópum sem Kim Jong-un
er sagður hafa dálæti á, eftir stúlkna-
sveit sem spilar tónlist í anda vest-
rænna popphljómsveita. Vinsæld-
ir hennar gefa vísbendingu um að
klæðnaður eins og stutt pils og háir
hælar njóti aukinna vinsælda meðal
ungra norðurkóreskra kvenna og að
leiðtoginn ungi hafi gefið samþykki
sitt fyrir slíkum klæðaburði. Sér-
fræðingar í málefnum alræðisríkis-
ins segja einnig að það hafi ekki ver-
ið nein tilviljun að stúlknasveitin hafi
sprottið fram á sjónarsviðið um svip-
að leyti og tónlistarmaðurinn Psy, frá
nágrannaríkinu Suður-Kóreu, sendi
frá sér slagarann „Gangnam Style“
sem sló öll met.
Líflínan í húfi
Ákvörðun Kim Jong-un um að senda
Moranbong til Peking er sögð tengj-
ast tilraunum hans til að mýkja yfir-
völd í Kína áður en öryggisráð Sam-
einuðu þjóðanna kemur saman til að
ræða mannréttindabrot alræðisríkis-
ins á þegnum sínum. Brotunum hef-
ur verið líkt við þjóðarmorð nasista
og norðurkóresk stjórnvöld eru sögð
treysta á að neitunarvald fulltrúa
Kínverja í öryggisráðinu komi í veg
fyrir að málið verði sent áfram til Al-
þjóðlega stríðsglæpadómstólsins í
hollensku borginni Haag.
Samkvæmt umfjöllun CNN um
tónleikaferðalag Moranbong hafa
samskipti Norður-Kóreu og Kína verið
stirð síðan Jong-un tók við völdum
árið 2011. Leiðtoginn hefur ekki enn
heimsótt nágrannaríkið í vestri en
þjóð hans treystir á viðskipti við Kín-
verja. Í ágúst síðastliðnum var tilkynnt
um samkomulag ríkjanna tveggja um
aukin viðskipti milli Norður- Kóreu og
kínversku borgarinnar Dandong sem
er oft kölluð líflína Pjongjang, höfuð-
borgar alræðisríkisins. n
Stúlknasveit Kim Jong-un
fer í tónleikaferð til Kína
Setti saman vinsælustu hljómsveit landsins sem er eingöngu skipuð konum
Haraldur Guðmundsson
haraldur@dv.is
Aðdáendur Ri Sol-ju, eiginkona Kim Jong-un, kom fram opinberlega í fyrsta sinn á einum
af tónleikum Moranbong í Pjongjang.
Stjörnur alræðisríkis Stúlknasveitin
Moranbong er vinsælasta hljómsveit
Norður-Kóreu en hún var sett saman
af Kim Jong-un, leiðtoga ríkisins.
Lögmaður
áminntur fyrir
vanrækslu
Breski lögmaðurinn Alex Keenan
komst í hann krappan eftir að hafa
skilið ársgamalt barn eftir í bíl á
meðan hann fór inn að versla með
þriggja ára syni sínum. Vegfarandi
tilkynnti lögreglu um hágrátandi
og yfirgefið barn í bíl. Lögreglan
mætti á vettvang í þann mund
sem Keenan kom út en þá hafði
hann verið inni í versluninni í
klukkustund, samkvæmt öryggis-
myndavélum fyrir utan Tesco.
Frá þessu greinir Daily Mirror.
Maðurinn var handtekinn fyrir
vanrækslu á barninu, yfirheyrður
og áminntur. Móðir stúlkunnar
var kölluð til og fór hún með
barnið heim. Alex var færður á
lögreglustöð til yfirheyrslu en
sleppt með áminningu.
16 Fréttir Erlent
Piltar undirbjuggu hryðjuverk
T
veir piltar 15 og 20 ára hafa
verið handteknir í Sidney í
Ástralíu. Þeir eru grunaðir
um aðild að hryðjuverka-
hreyfingu og að hafa ætlað að fram-
kvæma árás á opinberar byggingar.
Þrír ungir menn höfðu áður verið
handteknir fyrir sömu sakir en í
fyrra voru fimmtán menn hand-
teknir, grunaðir um að undirbúa
mannrán og aftökur. Lögreglan hef-
ur undanfarin misseri fylgst náið
með hópi ungra manna sem hafa
illt í hyggju en skemmst er að minn-
ast þess að í fyrra felldi lögreglan
15 ára dreng sem grunaður var um
að hafa myrt Curtis Cheng, starfs-
mann lögreglu í Sidney. Meðfylg-
andi mynd er af aðgerðum lögreglu
í gærmorgun. n