Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2015, Blaðsíða 39
Helgarblað 11.–14. desember 2015 Sport 27
in, aðrir sundmenn raðast svo á
brautirnar við hlið hennar og þyk
ir það oft einna verst að synda á
fyrstu braut eða síðustu brautinni.
Þetta er meðal annars vegna öldu
gangs sem endurkastast af veggj
um laugarinnar. „Ég var á fyrstu
braut og sá fyrir vikið ekki allar hin
ar sundkonurnar. Ég fékk því fárán
legt sjokk þegar ég kom í bakkann
og sá að ég hafði verið í þriðja sæti.
Ég hef aldrei fundið fyrir þessari
tilfinningu áður,“ segir hún. Eygló
bætti Íslandsmetið sitt, sem hún
hafði sett í undanrásum daginn á
undan um 0,97 sekúndur, en metið
í 100 metra baksundi kvenna er
núna 57,42 sekúndur.
Skildi ekki hvað gerðist
„Ég var að horfa á sundin mín í gær
því mamma og pabbi tóku þau upp. Á
myndbandinu sést að þegar allar hin
ar sundkonurnar voru komnar upp
úr lauginni var ég enn ofan í á minni
braut að horfa á töfluna. Ég skildi ekki
hvað hafði gerst,“ segir hún.
Það gekk líka allt eins og best var
á kosið. „Mér leið mjög vel í sund
inu. Ég segi það oft að ég man aldrei
eftir sundi þar sem ég næ að vera
einbeitt og mér gengur sérstaklega
vel. Þá loka ég á allt og læt vaða. Mér
leið vel allt sundið og mér fannst
allt ganga upp. En ég man eiginlega
ekki eftir sundinu, ég datt bara al
veg út,“ segir hún.
Sama má segja um keppnina
í 200 metrunum. Eygló var vel
stemmd og allt gekk eins og best
var á kosið. „Mér leið í smá stund
eins og ég væri í draumi,“ segir hún.
Hún setti Íslandsmet í undanrás
unum um morguninn og mætti svo
galvösk í úrslitin og bætti metið á
tímanum 2:03,53. Takmarkið var að
vera í fimmta sæti, en hún „spretti
úr spori“ og endaði aftur í þriðja
sæti. „Ég fór langt fram úr mínum
eigin væntingum,“ segir hún.
Sigra streituna
Fyrir sundmót segist Eygló oft
finna fyrir kvíða og streitu. „Það
hefur gerst að ég fer í svona stress
vítahring. Ég set of mikla pressu á
sjálfa mig og á erfitt með að ein
beita mér. Á þessu móti var þetta
ekki svoleiðis. Ég hef sjaldan ver
ið jafn afslöppuð og róleg. Ég ætl
aði að skemmta mér vel, hafa gam
an af og gera mitt besta. Svo myndi
það bara koma í ljós hvernig færi,“
segir hún. Eðli málsins samkvæmt
getur þessi vítahringur gert henni
óleik. Hún segist vera að vinna í því
að vera afslöppuð og njóta þess að
synda. „Ég hef verið örugg með æf
ingarnar mínar og verið öruggari
með sjálfa mig. Ég veit að ég er að
gera eins vel og ég get,“ segir hún
og bætir snöggt við: „Svo hef ég líka
reynt að hugsa sem minnst, mætt
frekar og gert mitt besta.“
Notar reynsluna frá London
„Ég náði lágmarkinu rétt eftir að
það mátti byrja að ná lágmörkum,“
segir Eygló Ósk, en sundmenn
geta náð bæði A og B lágmörkum
á Ólympíuleikana. Hún hefur náð
tveimur A lágmörkum í sínum bestu
greinum og er því á leið á leikana í
100 metra og 200 metra baksundi.
„Ég er svo spennt að fara en ég er
líka svo spennt að byrja að æfa. Ég
vil verða betri,“ segir hún.
Reynslan af Ólympíuleikunum
2012 mun koma sér vel í Ríó.
Eygló var sautján ára á leikunum í
London og stóð sig mjög vel. „Þessi
reynsla á eftir að koma sér mjög vel,
en allt sumarið fyrir leikana og sjálf
ir leikarnir voru eitt stórt stresskast,“
segir hún. „Ég vissi í rauninni ekkert
hvað ég var að fara út í. Núna hef ég
reynsluna af fleiri stórmótum og er
því reynslumeiri,“ segir hún.
„Ég var eiginlega langyngst og
aldursbilið á milli mín og elsta
sundmannsins var mjög mikið.
Þetta verður allt öðruvísi núna, en
mér gekk samt ágætlega í London
svona miðað við hvernig mér leið,“
segir hún. „Ég hef horft á þá leika
sem reynslu og ég var þarna eigin
lega bara til þess einmitt að vera
þarna. Ég stefndi ekki á mikið
meira,“ segir hún. Eftir frammistöð
una í vetur er ljóst að hún á allt að
vinna og hún er meðvituð um það.
„Þessir Ólympíuleikar verða öðru
vísi, markmiðin eru önnur og ég fer
að setja þau núna þegar ég klára að
keppa á þessu móti um helgina.“
Mótið sem fram fer um helgina í
Indianapolis er kannski fyrst og síð
ast til skemmtunar og er tilhlökkun
in því mikil. Svo er líka mikill heiður
að vera valin í liðið.
„Þetta er í rauninni bara upp á
gamnið. Ég hlakka mikið til að fara á
svona „skemmtimót“ og synda með
fólki sem er fyrirmyndirnar mínar.
Það verða stór nöfn í sundheimin
um að keppa þarna. Ég er spenntust
fyrir að fá að vera með hópnum og
kynnast fólki,“ segir hún.
Sundfjölskylda
Eygló byrjaði að æfa sund þegar
hún var fimm ára og kemur úr mik
illi sundfjölskyldu. Systur hennar
hafa æft og þjálfað sund og er ein
þeirra, Jóhanna Gerða, að æfa sund
við háskóla í Bandaríkjunum. Sjálf
lauk Eygló stúdentsprófi í vor og
förðunarfræðinámi í haust með
hæstu einkunn. Hún er að leita sér
að vinnu segir hún, en það getur
verið þrautin þyngri þegar þarf að
taka tillit til æfinga og ferðalaga.
„Ég hef alltaf verið í lauginni. Þessa
dagana er sundið eiginlega það
eina sem ég stunda,“ segir hún. „Ég
vildi helst finna mér hlutastarf, sem
gengur með sundinu, en það verður
tíminn bara að leiða í ljós.“
55 Íslandsmet
„Sko, hún mamma skrifar allt niður
svo ég er með tölurnar á hreinu.
Hún heldur vel utan um allt,“ segir
Eygló og hlær þegar blaðamaður
spyr hana hvort hún viti hversu
mörg Íslandsmetin eru sem hún
hefur sett í gegnum tíðina. „Ég hef
sett 55 Íslandsmet frá upphafi í
einstaklingsgreinum,“ segir hún, en
um er að ræða Íslandsmet í kvenna
flokki, sem er elsti hópur sund
kvenna. Hún á að auki eitt Norður
landamet, hefur synt í úrslitum á
HM í sundi og á nú tvo bronspen
inga af Evrópumeistaramóti. Hún
er í hópi okkar allra bestu sund
manna, frá upphafi. „Ég er einmitt
að reyna að skilja það sjálf, að ég
er ein af þeim bestu. Það gengur
frekar illa að meðtaka það, en ég er
að reyna að koma því inn í hausinn
á mér,“ segir hún. „Ég þarf að minna
mig á. Ég horfi enn á bestu sund
menn heims sem risastórar stjörn
ur og lít svo mikið upp til þeirra.
Mér finnst ég stundum svo lítil við
hliðina á þeim. En ég þarf að breyta
því og máta mig frekar við þau á
jafningjagrundvelli.“
Getum allt sem við viljum
Eygló Ósk segist sjálf hafa speglað
sig í fyrirmyndum og átti sig á því
að hún sé núna fyrirmynd annarra
sundmanna. Hún tekur þessu þó
af mikilli ró, en vonar að hún geti
verið jákvæð fyrirmynd fyrir aðra.
„Ég er að synda vegna þess að mér
finnst það skemmtilegt. Mér finnst
mikilvægast af öllu að vera jákvæð
og senda frá mér jákvæðni. Ég er
bara Íslendingur sem æfir á Íslandi.
Mér finnst þessi árangur geta verið
hvatning fyrir aðra sem æfa hérna
heima. Þó að við horfum á okkur
sem „litla Íslendinga“ þá getum
við öll gert allt sem við viljum, ef
við vinnum að því. Vonandi hvetur
þetta alla áfram,“ segir hún. n
„Ég veit
að ég er
að gera eins
vel og ég get
„Ég hef
alltaf verið
í lauginni. Þessa
dagana er sundið
eiginlega það eina
sem ég stunda.
Verðlaunahafi Eygló trúði varla
eigin augum þegar hún sá árangurinn
sinn á tímatöflunni. MyNd SiGtryGGur Ari
treystir þjálfaranum Eygló segist treysta þjálfaranum sínum til þess að hafa áhyggjur af því hvernig hún æfir. Þá getur hún mætt, æft
og keppt án þess að hafa eins miklar áhyggjur. MyNd SiGtryGGur Ari