Morgunblaðið - 12.12.2016, Síða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 12. DESEMBER 2016
Vesturhrauni 3, 210 Garðabæ | Sími 480 0000 | sala@aflvelar.is | aflvelar.is
Vagnar og
kerrur frá
Hafið samband í síma 480 0000
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Svampþvottastöð
Afkastamikil sjálfvirk
þvottastöð sem getur þvegið
allt að 50 bíla á klukkustund.
Opið virka daga kl. 8 -19
helgar kl. 10 – 18.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
„Starfið snýst um að mæta þörfum
fólks. Þær eru að breytast,“ segir
Auður Inga Þorsteinsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Ungmennafélags Ís-
lands (UMFÍ). Samtökin eru að
ljúka vinnu við nýja stefnumörkun
þar sem skerpt er á áherslum í starfi
ungmennafélagshreyfingarinnar.
Leiðarstefið er að gera gott starf
betra.
Auður segir að fólk stundi íþróttir
og aðra hreyfingu á sínum eigin for-
sendum. Ungmennafélögin þurfi að
mæta þeim þörfum í framtíðinni.
„Mikilvægt er að líta til þess að fleiri
vilja stunda fjölbreytta hreyfingu og
blanda saman íþróttagreinum.“
Breið nálgun nauðsynleg
Hún tekur fram að félögin standi
sig vel. Hlaupa- og hjólahópar séu að
spretta upp um allt land. „Ungt fólk
vill taka framförum. Það hentar ekki
öllum að æfa út frá sömu forsendum.
Breið nálgun er nauðsynleg. Spyrja
má: Hvað erum við að bjóða upp á
fyrir þetta fólk?“ segir Auður.
Hún segir að lausnin sé fólgin í
breiðu neti íþrótta- og ungmenna-
félaga um allt land, félögum sem
bjóði upp á íþróttir og hreyfingu fyr-
ir fólk með mismunandi þarfir. „Við
erum með gott fólk sem heldur
starfinu gangandi. Það stendur
frammi fyrir sömu áskorunum og
mikilvægt er að læra hvert af öðru.“
Hún segir að fullorðið fólk stundi
íþróttir í vaxandi mæli á vegum fé-
laganna. Nefnir að blakhópar séu
víða. Það sé ánægjulegt. Barna- og
unglingastarf sé öflugt en líta þurfi á
brottfall unglingsáranna. Þurfi að ná
betur til unglinganna og finna þeirra
þarfir. „Við erum öll á sama bátnum.
Kyrrseta er mikið og vaxandi vand-
mál. Við viljum taka á því með auk-
inni hreyfingu,“ segir Auður.
Nýta samtakamáttinn
Fólkið í félögunum hefur komið að
stefnumótunarvinnunni og bindur
Auður vonir við að það auðveldi inn-
leiðingu stefnunnar. Hún segir að
áherslan sé á aukna samvinnu, bæði
við önnur félagasamtök, háskóla og
aðra hér innanlands og samtök er-
lendis. Með því að nýta samtaka-
máttinn sé hægt að gera hlutina bet-
ur, einstaklingum og samfélaginu til
hagsbóta.
Þarf að mæta
breyttum þörfum
Stefnumótunarvinna hjá UMFÍ
Ljósmynd/JAB
Stjóri Auður Inga Þorsteinsdóttir
hefur stýrt starfi UMFÍ í rúmt ár.
Morgunblaðið/Eggert
Landsmót Ný stefnumörkun UMFÍ gengur út á að skoða þarfir fólks fyrir
hreyfingu í framtíðinni og finna leiðir til að mæta þeim sem best.
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ekki tókst að ljúka undirbúningi
langþráðra endurbóta og viðbygg-
ingar við Sundlaug Sauðárkróks svo
hægt væri að hefjast handa á þessu
ári. Þess vegna var fjárveiting árs-
ins færð í lagningu gervigrass á
einn völl íþróttasvæðisins.
Sérstök bygginganefnd hefur haft
yfirumsjón með hönnun lagfæringa
á sundlauginni og væntanlegum
framkvæmdum. Ásta Björg Pálma-
dóttir, sveitarstjóri Skagafjarðar,
segir að hönnun hafi tekið lengri
tíma en reiknað var með. Sundlaug-
in er gamalt mannvirki. Þurfti að
mæla það allt upp og gera nýjar
teikningar til að byggja framhaldið
á. Aðaluppdrættir liggja nú fyrir og
verkfræðihönnun komin á skrið.
Vegna þessa náðist ekki að hefja
verklegar framkvæmdir á þessu ári
og því ekki hægt að nýta fjárveit-
inguna sem ætluð var í það í ár.
Breytir ekki áformum
Unnið hefur verið að hönnun
gervigrasvallar á Sauðárkróki og
undirbúningi framkvæmda. Ásta
segir að það hafi gengið vel, meðal
annars vegna góðrar tíðar. Ákveðið
var að nýta fjárveitinguna til að
komast áfram með gervigrasvöllinn.
Segir Ásta að kostnaður við völlinn
sé áætlaður um 200 milljónir. Fyrir
þær 140 milljónir sem fluttar verða
af sundlaugarverkefninu verður
hægt að komast vel á veg með verk-
ið, að minnsta kosti að kaupa allt
efni, að hennar sögn.
Ásta tekur fram að þessi færsla
fjárveitinga hafi engin áhrif á áform
um endurbætur og viðbyggingu við
Sundlaug Sauðárkróks.
Klefarnir lagaðir fyrst
Ákveðið hefur verið að skipta
sundlaugarverkefninu upp í tvo
áfanga. Í fyrri verkþætti verða bún-
ingsklefar kvenna og afgreiðsla
flutt upp á aðra hæð og sett upp
lyfta. Verður þá öll starfsemin á
sama gólfi og gengið beint út í laug.
Auk karla- og kvennaklefa verður
útbúinn kynlaus klefi og klefi fyrir
hreyfihamlaða. Stefnt er að því að
hefja framkvæmdir á fyrstu mán-
uðum ársins 2017, að því er fram
kemur í frétt á vef sveitarfélagsins.
Í seinni áfanga er áformað að
byggja við laugina að sunnanverðu
og koma þar upp busllaug og heit-
um og köldum pottum auk renni-
brauta.
Endurbætur á Sundlaug
Sauðárkróks frestast
Tímafrek hönnun Fjármunirnir settir í gervigrasvöll
Teikning/www.skagafjordur.is
Sundlaug Stækkun laugarsvæðisins á Sauðárkróki með busllaug, pottum og rennibrautum er í seinni áfanga. Útlit
þess áfanga hefur ekki verið hannað að fullu. Á næsta ári verður unnið við lagfæringar á búningsklefum.