Morgunblaðið

Dagfesting
  • fyrri mánaðurindesember 2016næsti mánaðurin
    mifrlesu
    2829301234
    567891011
    12131415161718
    19202122232425
    2627282930311
    2345678

Morgunblaðið - 14.12.2016, Síða 1

Morgunblaðið - 14.12.2016, Síða 1
MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016 ÍÞRÓTTIR Hjörtur Hermannsson Fljótur að laga sig að hlutunum hjá Bröndby og er í toppbaráttunni. Fékk góða kennslu í Hollandi en harkan er meiri í Danmörku. Einhvern tíma verða drengir að verða að mönnum. 4 Íþróttir mbl.is Jóhann Berg Guðmundsson verður ekki með Burnley í kvöld þegar liðið sækir West Ham heim í ensku úrvals- deildinni í knatt- spyrnu. Jóhann er að jafna sig af tognun í læri en hann meiddist í leik gegn Manchester City 26. nóv- ember. Samkvæmt BBC er ekki loku fyrir það skotið að Jóhann mæti Tottenham á sunnudag. Styttist í Jóhann Berg Jóhann Berg Guðmundsson FRÉTTASKÝRING Ívar Benediktsson iben@mbl.is Það kom e.t.v. mörgum í opna skjöldu þegar Erlingi Richardssyni var sagt upp starfi þjálfara þýska 1. deildar liðsins Füchse Berlin í gær- morgun. Liðið situr í fjórða sæti 1. deildar með 24 stig af 30 mögulegum eftir 11 sigra, tvö jafntefli og tvo tap- leiki, og er aðeins fjórum stigum á eftir meisturum Rhein-Neckar Lö- wen, Kiel og Flensburg sem eru í þremur efstu sætunum jöfn að stig- um. Füchse vann heimsmeistara- keppni félagsliða annað árið í röð í september en það er keppni sem Al- þjóðahandknattleikssambandið stendur fyrir og þátt taka sigurlið í álfukeppni félagsliða. Füchse öðl- aðist þátttökurétt í keppninni haust- ið 2015 eftir sigur í EHF-keppninni þá um vorið og var síðan með öðru sinni í haust sem ríkjandi meistari síðasta árs. Berlínarliðið er nú komið í 16 liða úrslit EHF-keppninnar en er fallið úr þýsku bikarkeppninni eftir naumt tap, 36:34, fyrir Flensburg. Á síðasta keppnistímbili féll liðið einnig úr leik í 16 liða úrslitum bikarsins og hafn- aði í fimmta sæti í deildarkeppninni. Engar ástæður gefnar upp Yfirlýsing félagsins eftir hádegið í gær þar uppsögnin er tilkynnt um leið og greint er frá að „gamli ref- urinn“ Velomir Petkovic taki við þjálfun liðsins, er rýr í roðinu. Ekki er getið um ástæður fyrir uppsögn Erlings. Honum er þakkað fyrir störf sín hjá liðinu og óskað velfarn- aðar. Þegar Morgunblaðið sló á þráðinn til Erlings um hádegisbilið í gær vildi hann ekki staðfesta uppsögn- ina, vísaði í væntanlega yfirlýsingu félagsins, um leið og hann drap mál- inu á dreif með umræðum um annað óskylt mál. Á þýsku vefmiðlum var hinsvegar nefnt að Erlingur hafi ekki þótt nógu líflegur á hliðarlínunni við stjórn liðsins auk þess sem síðustu sigrar liðsins, m.a. á Lemgo hafi ekki þótt nógu stórir og sannfær- andi. Slíkar skýringar á uppsögn Erlings eru ekki merkilegar sé ein- hver alvara á bak við þær. Vissulega fór Erlingur sér í engu óðslega við stjórn og þjálfun liðsins á leikjum og í æfingum en ekki er hægt að efast um þekkingu hans og kunnáttu á sviði handknattleiks- þjálfunar. Skipti vísvitandi um hlutverk Að baki uppsagnarinnar stendur án vafa Bob Hanning, fram- kvæmdastjóri félagsins. Hanning hefur ráðið flestu sem hann hefur viljað ráða hjá félaginu í meira en áratug. Um leið er hann varaforseti þýska handknattleikssambandsins og virðist ekki mega sjá hljóðnema án þess að tjá sig um allt milli himins og jarðar sem tengist handbolta. Hanning reyndi fyrir sér í þjálfun, með misjöfnum árangri, áður en hann tók að sér stjórn Berlínarliðs- ins. Erlingur tók við þjálfun Füchse Berlín af Degi Sigurðssyni sumarið 2015 eftir að hafa þjálfað aust- urríska liðið West Wien með athygl- isverðum árangri um tveggja ára skeið. Áður hafði Erlingur þjálfað hér heima með afbragðsárangri m.a. hjá HK og ÍBV, jafnt lið karla sem kvenna. Erlingur þjálfaði karlalið HK ásamt Kristni Guðmundssyni þegar HK varð mörgum að óvörum Íslandsmeistari í handknattleik karla í fyrsta sinn vorið 2012. Af bekknum og upp í stúku Heimildir Morgunblaðsins herma að Dagur hafi talsverðu ráðið um að Erlingur varð hans eftirmaður. E.t.v. ekki með alveg fullum stuðn- ingi Hannings. Á síðustu leiktíð sat Hanning á varamannabekknum í öll- um leikjum og virtist vera Erlingi innan handar við stjórn liðsins. Við upphaf núverandi keppnistímabils brá svo við að Hanning var farinn upp í stúku meðal áhorfenda. Heim- ildarmaður Morgunblaðsins innan þýsks handbolta sagði blaðamanni fyrir nokkrum vikum að þessi breyt- ing þýddi aðeins eitt: Hanning vildi hafa borð fyrir báru svo hann gæti gagnrýnt Erling og leik liðsins og í framhaldinu látið Eyjamanninn taka pokann sig þegar honum sýndist. Hanning gæti ekki gagnrýnt Erling eða leik liðsins ef hann hefði hönd í bagga með stjórnun liðsins í leik. Þar með væri Hanning að gera lítið úr eigin verkum. Hvernær var rétti tíminn? Vandi Hanning var hinsvegar sá að ekki var hægt að kvarta yfir ár- angrinum innan vallar. Skellur fyrir Kiel í Max-Schemling-halle í Berlín fyrir fáeinum vikum er e.t.v. eini slæmi leikurinn. Þess vegna voru búnar til ein- hverjar einfaldar ástæður eins getið er um að framan í greininni um stjórnunarstíl Erlings eða of litla sigra til að leita að ástæðum til að segja Erlingi upp þegar ekki var hægt að kvarta yfir árangursleysi. Um leið og eftirmaðurinn var fund- inn, Velomir Petkovic, var látið til skarar skríða. Á fundi Erlings með forráðamönnum félagsins í fyrra- kvöld, var Erlingi sagt að starfs- krafta hans væri ekki lengur óskað hjá liðinu. Petkovic var rekinn frá 2. deildar liði Eisenach á dögunum. Hann tek- ur nú öðru sinni í röð við af búi Ís- lendings því haustið 2014 varð Petkovic eftirmaður Aðalsteins Eyj- ólfssonar hjá Eisenach. Sem fyrr segir þá er Hanning einnig varaforseti þýska handknatt- leikssambandsins. Hann réði mestu um ráðningu Dags sem landsliðs- þjálfara Þýskalands. Hanning hélt þar og heldur enn um alla þræði. Þegar Dagur ákvað að hætta þjálfun þýska landsliðsins fyrir skömmu varð vík milli vina, Hannings og Dags. Þótt það sé e.t.v. langsótt þá hvarf síðasta skjól Erlings hjá Füchse þegar víkin milli Dags og Hannings varð til. Kannski ekki mjög óvænt  Engar ástæður gefnar upp fyrir brottrekstri Erlings frá Füchse  Uppsögnin hefur e.t.v. legið í loftinu frá upphafi leiktíðar  Fór af bekknum upp í stúku Morgunblaðið/Eva Björk Berlín Erlingur Richardsson stýrði liði Füchse Berlín tvisvar til sigurs á heimsmeistaramóti félagsliða og það er í fjórða sætinu í Þýskalandi. Flest bendir til þess að Hólmar Örn Eyjólfsson, landsliðs- miðvörður í knattspyrnu, verði seldur frá Noregsmeist- urum Rosen- borgar til Mac- cabi Haifa í Ísrael. Þetta full- yrðir norski miðillinn Verdens Gang, sem segir að kaupverðið komi til með að nema um 10 millj- ónum norskra króna, jafnvirði 130 milljóna íslenskra króna. „Við höfum ekki rætt samning en þeir eru búnir að bjóða tvisvar í mig. Meira veit ég ekki og ég bíð eftir því hvort félögin nái sam- komulagi,“ sagði Hólmar við Morg- unblaðið í gærkvöld. Hólmar hefur síðustu tvær og hálfa leiktíð leikið með Rosenborg og átt ríkan þátt í mikilli velgengni liðsins, en Rosenborg hefur orðið tvöfaldur meistari tvö ár í röð. „Hann hefur staðið sig mjög vel fyrir okkur,“ sagði Stig Inge Björnebye, íþróttastjóri Rosen- borgar, við VG en vildi ekkert segja um á hvaða stigi málið væri. Fyrrverandi aðstoðarmaður Ferguson nýi þjálfarinn? Hólmar á eitt ár eftir af samningi sínum við Rosenborg en hann kom til félagsins frítt frá þýska félaginu Bochum sumarið 2014. Maccabi Haifa er eitt af stærstu félögum Ísraels og hefur meðal annars 12 sinnum orðið ísraelskur meistari. Liðið er sem stendur í þriðja sæti efstu deildar þar í landi með 21 stig eftir 13 leiki, þremur stigum á eftir Viðari Erni Kjart- anssyni og félögum í Maccabi Tel Aviv. Hapoel Be’er Sheva er þó langefst með 34 stig. Þjálfari Maccabi Haifa, síðan í sumar, er René Muelensteen, sem sennilega er þekktastur fyrir að hafa verið aðstoðarmaður Sir Alex Ferguson hjá Manchester United. sindris@mbl.is Hólmar til Ísraels fyrir 130 milljónir? Hólmar Örn Eyjólfsson Eftir þrettán leiki í röð án taps í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu, síðan 14. ágúst, varð Arsenal að sætta sig við 2:1-ósigur gegn Everton á útivelli í gærkvöld. Það er þó nánast með ólíkindum að Arsenal skyldi ekki ná í stig úr leiknum því liðið fékk tvö dauðafæri í uppbótartíma til að jafna metin, en varnarmenn Everton komust fyrir boltann nánast á marklínu. Arsenal er því þremur stig- um á eftir toppliði Chelsea sem á leik til góða. Ashley Williams skoraði sigurmark Everton fimm mínútum fyrir leikslok, eftir að Alexis Sánchez hafði komið Arsenal yfir með sínu tólfta marki á leiktíðinni og Séamus Coleman jafnað metin í fyrri hálfleik. Fyrsta tapið í fjóra mánuði Ashley Williams Eyjólfur Sverrisson hefur skrifað undir tveggja ára fram- lengingu á samningi sínum og verður því áfram landsliðs- þjálfari U21 árs landsliðs karla. Eyjólfur tók við liðinu árið 2008, en hann stýrði því einnig á árunum 2003-2005. Árið 2011 fór liðið í loka- keppni EM í Danmörku, og var hársbreidd frá því að tryggja sig inn á lokamótin 2015 og á næsta ári 2017. Þá hefur Þorvaldur Örlygsson einnig framlengt samn- ing sinn um að stýra U19 ára landsliði karla. Samningur hans gildir einnig næstu tvö árin, auk þess sem Þorvaldur mun starfa að fræðslumálum hjá KSÍ. Eyjólfur og Þor- valdur eru báðir fyrrverandi landsliðsmenn. Eyjólfur áfram í brúnni Eyjólfur Sverrisson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar: Íþróttir (14.12.2016)
https://timarit.is/issue/393063

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.

Íþróttir (14.12.2016)

Gongd: