Morgunblaðið - 14.12.2016, Side 3
ÍÞRÓTTIR 3
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016
Kjartan HenryFinn-
bogason, fram-
herji Horsens, er
í liði umferð-
arinnar í dönsku
úrvalsdeildinni í
knattspyrnu hjá
danska blaðinu
Tipsbladet.
Kjartan Henry skoraði eitt mark og
átti stóran þátt í öðru í 3:0 sigri Hor-
sens gegn AaB um síðustu helgi.
Kjartan hefur skorað 6 mörk í 20
leikjum með Horsens á tímabilinu en
liðið er í sjöunda sæti deildarinnar
nú þegar gert hefur verið hlé í deild-
inni fram í miðjan febrúar.
Gunnhildur Gunnarsdóttir ogMartin Hermannsson hafa ver-
ið valin körfuknattleiksfólk ársins
2016 af KKÍ. Gunnhildur er einn
mikilvægasti leikmaður íslenska
landsliðsins og hún var fyrirliði og
lykilleikmaður Snæfells á síðastliðnu
tímabili þar sem liðið vann tvöfalt,
varð bikar- og Íslandsmeistari.
Martin var einn af betri leikmönnum
íslenska landsliðsins sem tryggði sér
sæti á EM, fékk viðurkenningar fyr-
ir frammistöðuna með háskólaliði
LIU Brooklyn og hefur farið mjög
vel af stað sem atvinnumaður með
Charleville í Frakklandi.
Juan AntonioPizzi, lands-
liðsþjálfari Síle í
knattspyrnu
karla, hefur valið
leikmannahópinn
sem leikur í Kína-
bikarnum í knatt-
spyrnu eftir tæp-
an mánuð. Um er
að ræða fjögurra þjóða æfingamót
þar sem Kína og Króatía taka einnig
þátt. Eins og búast mátti við er stór-
stjarnan Alexis Sánchez, leikmaður
Arsenal, ekki í hópnum, en ekki er
leikið á sérstökum landsleikjadögum
á mótinu og því geta félög leikmanna
neitað að hleypa þeim á mótið. Flest-
ir í síleska hópnum leika því í heima-
landi sínu, en í hópnum eru þó Edu-
ardo Vargas, framherji Hoffenheim
í Þýskalandi, Carlos Carmona úr
Atalanta á Ítalíu, og þeir Ángelo
Henríquez og Junior Fernandes
sem leika með Dinamo Zagreb í
Króatíu. Síle mætir Króatíu 11. jan-
úar en Ísland mætir Kína degi fyrr.
Sigurliðin mætast í úrslitaleik en
tapliðin í leik um brons.
Robert Lewandowski, pólskimarkaskorarinn í þýska knatt-
spyrnuliðinu Bayern München, hef-
ur framlengt samning sinn við félag-
ið til ársins 2021. Lewandowski
hefur skorað 58 mörk í 77 leikjum
fyrir Bayern í þýsku Bundesligunni
en hann kom til félagsins frá Dort-
mund sumarið 2014 og þar hafði
hann þá skorað 74 mörk í 131 leik í
deildinni. Enginn erlendur leik-
maður hefur verið eins fljótur og
hann að skora hundrað mörk í deild-
inni.
Fólk folk@mbl.is
Í EGILSHÖLL
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Eftir mikinn spennuleik í Egilshöll-
inni í gærkvöldi hafa Akureyringar
náð í fimm stig gegn Grafarvogsbúum
á nokkrum dögum í Hertz-deild karla
í íshokkí. Skautafélag Akureyrar
hafði betur gegn Birninum, 4:3, eftir
framlengdan leik. Jóhann Már Leifs-
son gerði út um leikinn í framlenging-
unni með skoti af fremur löngu færi
eftir aðeins ellefu sekúndur. Liðin
höfðu þá fengið sitt stigið hvort og
eins og stigagjöfin kveður á um fékk
SA aukastigið fyrir að hafa betur í
framlengingunni.
Akureyringar náðu 2:0 forskoti í
fyrsta leikhluta með mörkum frá
Andra Má Mikaelssyni og Birni Má
Jakobssyni. Áður en leikhlutinn var
allur hafði Adam Rosenberg minnkað
muninn fyrir Björninn. Öll mörkin
komu úr „power play“ eða með öðrum
orðum í stöðu þar sem liðið sem fékk á
sig mark hafði misst mann út af í 2
mínútur.
Staðan var því 2:1 þar til annar leik-
hluti var hálfnaður. Þá komst SA í
góða stöðu þegar spilandi þjálfari
þeirra, Jussi Sipponen, smellti pökkn-
um upp í fjærhornið á 30. mínútu. Öll
mörk SA í venjulegum leiktíma komu
þegar liðið var manni fleira á ísnum.
Fyrir síðasta leikhlutann var staðan
3:1 en það átti eftir að breytast.
Þungar sóknir
Björninn skoraði ekki mark í tæpan
hálftíma en þá komu tvö mörk eftir
þungar sóknir. Í báðum tilfellum voru
leikmenn Bjarnarins grimmari í frá-
köstunum, fengu nokkrar skottilraun-
ir og það bar árangur. Edmunds Ind-
uss minnkaði muninn á 45. mínútu og
Falur Birkir Guðnason jafnaði 3:3 á
50. mínútu. Finnski markvörðurinn
Jussi Suvanto hafði þá varið í tvígang
mjög vel í sömu sókninni en þurfti að
sætta sig við að fá á sig mark en Finn-
inn átti góðan leik í marki SA.
Á þessum tíma virtist meðbyrinn
vera með Birninum en liðinu tókst
ekki að gera sér frekari mat úr því og
ná öllum stigunum.
Fyrir nokkrum dögum var Björn-
inn tveimur stigum á undan SA en SA
hafði betur á laugardaginn á Akur-
eyri, 4:3, og nú með sömu markatölu
en eftir framlengdan leik. Fyrir vikið
er SA nú tveimur stigum á undan
Birninum í öðru sæti deildarinnar
með 19 stig. Allt skiptir þetta miklu
máli því annað sætið gefur sæti í úr-
slitakeppninni um Íslandsmeistaratit-
ilinn.
Esja langefst í deildinni
Esja er á góðri leið með að tryggja
sér sæti í úrslitunum en liðið er lang-
efst í deildinni með 32 stig. Esja vann
SR í gærkvöldi 4:1 í Laugardalnum en
leikmenn liðanna hafa væntanlega
nálgast leikinn með öðrum hætti en á
laugardaginn þegar Esja vann 13:6.
SR komst yfir í leiknum í kvöld líkt
og á laugardag, þegar Styrmir Maack
skoraði strax á annarri mínútu.
Styrmir hefur verið nokkuð atkvæða-
mikill í vetur en þetta var hans sjötta
mark í deildinni. Það tók Esju hins
vegar ekki nema átján sekúndur að
jafna metin, en þar var að verki Björn
Sigurðarson.
Í öðrum leikhluta náði Esja forystu
þegar Matthías Sigurðsson skoraði,
en í þriðja og síðasta hluta gulltryggði
Esja sigurinn með mörkum Steindórs
Ingasonar og Egils Þormóðssonar.
Útlit fyrir mikla baráttu
Morgunblaðið/Golli
Mark Björn Már Jakobsson sendir pökkinn í mark Bjarnarins í Egilshöllinni í gærkvöldi.
Akureyringar komu vel út úr leikjunum tveimur gegn Birninum Eru tveimur
stigum fyrir ofan Esja heldur áfram að safna stigum Vann SR aftur
Frjálsíþróttasamband Íslands fékk 1 milljón
króna í styrk þegar úthlutað var úr styrktar-
sjóði Íslandsbanka og ÍSÍ í gær. FRÍ var eina
sérsambandið sem fékk styrk en aðrir styrkir
voru stílaðir á einstaklinga og nam heildar-
upphæðin 2,5 milljónum króna. Peningarnir
eru ætlaðir til að auðvelda íþróttafólkinu að
fara til útlanda í æfinga- og keppnisferðir.
Samkvæmisdansparið Kristinn Þór Sig-
urðsson og Lilja Rún Gísladóttir fékk 500.000
krónur, en þau unnu meðal annars sterkt, al-
þjóðlegt mót í Englandi á árinu sem er að líða.
Kylfingarnir Saga Traustadóttir og Ingvar Andri Magnússon
fengu 250.000 krónur hvort, líkt og badmintonspilarinn Kristófer
Darri Finnsson og skylmingakappinn Andri Nikolaysson Mateev,
en öll þykja þau afar efnileg í sinni grein. sindris@mbl.is
FRÍ fékk milljón í styrk
Andri Nikolaysson
Mateev
Afrekskylfingurinn Ólafía Þórunn Krist-
insdóttir mun gangast undir aðgerð á
fimmtudaginn og tekur sér frí frá æfingum
yfir jól og áramót.
Frá þessu er greint á vef Golfsambandsins.
Ólafía tjáði mbl.is á dögunum að hún hefði
greinst með skakkt bit þegar hún var 19 ára.
Ekki er talið ráðlagt að láta laga slíkt með
aðgerð fyrr en fólk er orðið fullvaxta.
Síðustu misserin hefur Ólafía leitað að
heppilegum tímapunkti til að fara í aðgerð án
þess að það myndi trufla atvinnumennskuna í
íþróttinni um of.
Hún mun því taka það rólega yfir jól á áramót en heldur utan
í janúar og keppir væntanlega í fyrsta skipti á LPGA-mótaröð-
inni í lok janúar. kris@mbl.is
Fer í aðgerð á morgun
Ólafía Þórunn
Kristinsdóttir
Marvin Valdimarsson verður frá keppni næstu
4-6 vikurnar eftir að hafa handarbrotnað í leik
með Stjörnunni gegn Haukum í Dominos-
deildinni í körfubolta síðastliðinn föstudag.
Þetta staðfesti Hrafn Kristjánsson, þjálfari
Stjörnunnar, við vefmiðilinn Karfan.is í gær.
Marvin missir því af stórleiknum við KR ann-
að kvöld og sennilega af að minnsta kosti
fyrstu leikjum Stjörnunnar eftir jólafríið, gegn
Þór Akureyri 5. janúar og ÍR viku síðar.
Stjarnan hefur hins vegar fengið Tómas
Þórð Hilmarsson aftur í sínar raðir, eftir hálfs
árs dvöl í Bandaríkjunum þar sem hann lék með liði Francis Mar-
ion-háskólans. Tómas er strax gjaldgengur með Garðabæjarlið-
inu því hann er enn skráður leikmaður Stjörnunnar þar sem ekki
þarf félagaskipti yfir í bandaríska háskóla. sport@mbl.is
Án Marvins í stórleik
Marvin
Valdimarsson
Norska kvennalandsliðið í handbolta,
undir stjórn Þóris Hergeirssonar,
getur slakað á í dag þegar liðið mætir
Tékklandi í lokaumferð milliriðla-
keppninnar á EM í Svíþjóð. Noregur
hefur þegar tryggt sér efsta sætið í
millriðli 2, með því að vinna alla fjóra
leiki sína til þessa. Liðið mátti hafa
fyrir sigrinum á Ungverjalandi í gær
en leikurinn endaði 24:23.
Það er því ljóst að Noregur mætir
liðinu úr 2. sæti milliriðls 2 í undan-
úrslitunum, en það verður Holland,
Frakkland eða Þýskaland.
„Þetta er flott. Við höfum náð yfir-
lýstu markmiði okkar, sem er það að
kvennalandsliðið skuli keppa um verð-
laun á öllum mótum,“ sagði Þórir við
VG. „Svo veit ég að bæði þjálfarar og
leikmenn eiga sér draum um meira,
en þá þurfum við meiri stöðugleika og
betra flæði í okkar leik,“ sagði Þórir.
Vonir ólympíumeistara Rússa um
að komast í undanúrslitin urðu að
engu þegar liðið gerði jafntefli við
Danmörku í gær, 26:26. Rússar fengu
tækifæri til að tryggja sér sigurinn í
sjö sekúndna lokasókn en köstuðu
boltanum frá sér.
Danir mæta Rúmenum í dag kl.
17:30 í leik sem ræður úrslitum um
það hvort liðið fer með Noregi í und-
anúrslit mótsins. Rúmenum dugir
jafntefli eftir að hafa unnið þrjá af
fjórum leikjum sínum. Þeir unnu
Tékka í gær, 30:28, þar sem Cristina
Neagu skoraði 10 mörk fyrir Rúmen-
íu, þriðja leikinn í röð. sindris@mbl.is
Þórir fær andrými
fyrir undanúrslit
AFP
Mark Emilie Hegh Arntzen fagnar einu fimm marka sinna fyrir Noreg í gær.