Morgunblaðið - 14.12.2016, Page 4

Morgunblaðið - 14.12.2016, Page 4
4 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. DESEMBER 2016 Það er sárt að vera sagt upp störfum eftir að hafa lagt sig fram af bestu getu og hreinlega helgað sig starfinu daginn út og inn, mánuðum og árum saman. Kröfurnar eru miklar og álagið á tíðum gífurlegt í nýju umhverfi þar sem nauðsynlegt er að læra nýtt tungumál og halda um leið um alla þræði. Árangur þessarar vinnu hefur verið afar góður. Margir sigrar unnist og verðlaun, af- rakstur erfiðis, falla í skaut. Sig- urstundirnar eru sætar og bæta upp vonbrigðin sem eru einnig óhjákvæmileg. Í gær var íslenskum þjálfara sagt upp hjá þýsku handknatt- leiksliði. Fyrstu fréttir voru óljós- ar og óstaðfestar. Var þá ekki rétt að leita staðfestingar af fyrstu hendi? Það var ekki eins og svona nokkuð hefði ekki átt sér stað áður eða að skilning vantaði hjá þeim sem hringdi á að aðstæður þess sem hringt var í væru ekki eins og best yrði á kosið. Í stað þess að fá skýrt svar við einfaldri spurningu sem kurt- eislega var borin var fram var svarað með ónotum sem komu málinu ekki við. Sá sem hringdi hefur svo sem oft á ferli sínum staðið í sömu sporum áður. Þetta eru ekki ánægjulegustu símtölin, svo sannarlega. Stundum biðjast menn undan því að tjá sig. Ekk- ert er sjálfsagðara en að verða við þeirri ósk. Aðrir hafa slökkt á símum sínum eða eru með hann opinn og staðfesta fregnirnar en vilja e.t.v. ekki tjá sig að öðru leyti. Til eru þeir sem vilja heldur senda skilaboð eða óska eftir umþóttunartíma. Aðrir brosa gegnum tárin. Reyndur þjálfari sagði eitt sinn að enginn yrði al- vöruþjálfari nema að hafa verið rekinn a.m.k. einu sinni. BAKVÖRÐUR Ívar Benediktsson iben@mbl.is FÓTBOLTI Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is Hjörtur Hermannsson, hinn 21 árs gamli leikmaður danska liðsins Bröndby, hefur svo sannarlega stimplað sig vel inn í dönsku úr- valsdeildina á tímabilinu. Hjörtur, sem gekk í raðir liðsins í sumar eftir stutta viðveru hjá Gautaborg í Svíþjóð, hefur verið fastamaður í hjarta varnarinnar hjá Bröndby- liðinu, sem er í öðru sæti nú þegar skollið er á vetrarhlé í deildinni. Bröndby er níu stigum á eftir meistaraliði FC Köbenhavn eftir 21 umferð og hefur tíu stiga forskot á Midtjylland og Randers sem eru í 3.-4. sætinu. Hefur gengið vonum framar ,,Það hefur gengið vonum framar hjá okkur á tímabilinu. Bröndby hefur verið í lægð síðustu árin og í sumar voru gerðar umtalsverðar breytingar á nær öllum sviðum. Það var skipt um þjálfara, það kom nýr formaður og það urðu miklar breytingar á leikmannahópnum. Það má segja að ég hafi komið inn í nýtt umhverfi hjá liðinu í sumar og þetta hefur bara gengið virki- lega vel. Við erum kannski aðeins lengra frá FC Köbenhavn en við vildum vera en við höfum komið okkur vel fyrir í öðru sætinu. FC Köbenhavn er í algjörum sérflokki í ár. Mannskapurinn þar er hreint ótrúlega sterkur og það sést best á því að margir landsliðsmenn hafa ekki einu sinni náð að komast á bekkinn. Við virðumst þó vera eina liðið sem getur haldið í við FC Kö- benhavn,“ sagði Hjörtur við Morg- unblaðið. Hjörtur gekk til liðs við Bröndby eftir Evrópumótið í Frakklandi í sumar og gerði þriggja ára samn- ing við liðið. Hann var í láni hjá Gautaborg í nokkra mánuði frá hol- lenska liðinu PSV en ungur að ár- um fór hann til Hollands frá Fylki, sem hann er uppalinn hjá, og lék með unglingaliði PSV og svo með varaliði félagsins í næstefstu deild. Eiga erfitt með pressu- fótboltann okkar Hjörtur er mjög ánægður í her- búðum Bröndby og segist hafa komið sér vel fyrir í Kaupmanna- höfn. ,,Við spilum pressufótbolta út um allan völl. Við erum með þýsk- an þjálfara sem leggur línurnar, en hann var áður með Leipzig í Þýskalandi. Flest liðin í deildinni hafa átt í erfiðleikum að spila gegn þessari miklu pressu þar sem við hlaupum eins og óðir menn út um allan völl. Persónulega hefur mér gengið mjög vel. Eftir góðan tíma hjá Gautaborg langaði mig að halda áfram að spila. Ég sá möguleika hjá Bröndby og ég var fljótur að aðlagast hlutunum. Ég hef spilað nánast alla leiki og við höfum feng- ið á okkur næstfæst mörk af öllum liðum í deildinni. Við höfum spilað vel saman sem ein heild í öftustu línu og mér líður mjög vel í þessu umhverfi. Það er frábært tækifæri að fá að spila á Bröndby Stadion og ég tel að við eigum eina bestu stuðningsmennina á Norðurlönd- unum. Maður finnur að Bröndby er sögufrægt félag sem á sér mikla hefð og ég er virkilega ánægður að vera hluti af þessu liði og í þeim uppgangi sem á sér stað hjá liðinu. Það eru mjög jákvæðir straumar í kringum félagið og nú verðum við bara að halda áfram á sömu braut og innsigla í það minnsta silfrið á næsta ári,“ segir Hjörtur. Fékk góða kennslu í Hollandi Hjörtur segir að sá skóli sem hann fékk í Hollandi hafi komið honum vel. ,,Menn hér tala um það að ég hafi fengið góða kennslu í Hollandi en einhvern tímann verða drengir að verða að mönnum. Þetta er svolítill drengjafótbolti á köflum í Hollandi. Hér er harkan meiri og maður hefur þurft að taka skref fram á við og ég á eftir að taka fleiri skref. Það er erfitt fyrir mig að segja hvort danska deildin er sterkari en sú sænska, þar sem ég var stutt í Svíþjóð. Deildin hér í Danmörku er jafnari og færri áber- andi slök lið. Til að mynda höfum við misst af nokkrum stigum á móti botnliðunum í deildinni og það hafa fleiri lið gert, eins og Randers sem tapaði um síðustu helgi fyrir Esb- jerg. Hér getur allt gerst nema að FC Köbenhavn tapar ekki leik,“ sagði Hjörtur. Keppni eftir vetrarhlé hefst rétt eftir miðjan febrúar og fyrsti leikur Bröndby verður á Parken í Kaup- mannahöfn á móti toppliði FC Köbenhavn. ,,Nú er svona innan gæsalappa smá sumarfrí hjá okkur. Við fáum tíma fram í miðjan janúar til að hlaða batteríin. Við förum svo í lok janúar í æfingaferð til Dubai þar sem við búum okkur undir seinni hlutann af tímabilinu,“ segir Hjört- ur, sem ætlar að eyða jólunum á Íslandi. ,,Það eru engin jól nema þau séu íslensk,“ segir Hjörtur. Alltaf verið að fylgjast með manni Spurður hvort hann sjái fyrir sér að spila með Bröndby næstu árin segir Hjörtur; ,,Það verður bara að koma í ljós. Maður veit aldrei hvað framtíðin ber í skauti sér. Það er undir manni sjálfum komið hvað tekur við. Það er alltaf verið að fylgjast með manni svo ef maður spilar vel er aldrei að vita hvað gerist. Mér líður afskaplega vel hjá Bröndby og get alveg séð fyrir mér að vera hérna áfram. Það er alveg klárt mál að ég get tekið mörg skref áfram sem fótboltamaður hérna en hvort ég verð hjá liðinu í þrjú ár verður bara að koma í ljós. Ég hef komið mér rosalega vel fyr- ir í Kaupmannahöfn og ég er ekk- ert að flýta mér að fara eitthvert annað. Nú, ef eitthvað kemur inn á borðið þá skoða ég það.“ Hef áhuga á því að verða landsliðsmaður Hjörtur var fyrirliði U21 árs landsliðsins sem missti naumlega af sæti í úrslitakeppni Evrópumótsins en hann hefur fengið smjörþefinn af A-landsliðinu og var í EM- hópnum sem tók þátt í ævintýrinu í Frakklandi í sumar. Hjörtur hefur komið við sögu í þremur A- landsleikjum, sem allir hafa verið vináttuleikir. ,,Það helst í hendur að spila vel með félagsliði sínu og fá tækifæri með landsliðinu. Ég fer ekkert leynt með það að ég hef áhuga á að verða landsliðsmaður. Ég hef að- eins fengið að kynnast landsliðinu og ég finn fyrir því að ég er nálægt því en ég geri mér grein fyrir því að við Íslendingar eigum marga frábæra fótboltamenn og sam- keppnin er gríðarlega hörð. Ég vil vera í þessari samkeppni og hafa betur í henni. Meiðsli voru svolítið að loða við mig í upphafi ferilsins en ég hef verið nánast meiðslalaus á þessu ári, er bara í toppstandi og iða í skinninu að byrja að spila aft- ur með Bröndby í febrúar,“ sagði Hjörtur. Einhvern tímann verða drengir að verða að mönnum  Hjörtur Hermannsson hefur stimplað sig vel inn í dönsku úrvalsdeildina  Fastamaður í Bröndby sem er í öðru sæti  Fljótur að aðlagast  Jákvæðir straumar í kringum félagið Ljósmynd/Bröndbyernes IF Bröndby Hjörtur Hermannsson á fullri ferð í leik með Bröndby í úrvalsdeildinni. Hann vann sér strax fast sæti í vörn Kaupmannahafnarliðsins, sem er í öðru sætinu í Danmörku, á eftir grönnum sínum í FC Köbenhavn. Hjörtur Hermannsson » Hann er 21 árs, fæddur 8. febrúar 1995, og kom 16 ára inn í lið Fylkis árið 2011. » Hjörtur spilaði 12 leiki í úr- valsdeildinni og skoraði eitt mark en var seldur til PSV í Hollandi sumarið 2012. » Hann lék hálft þriðja tímabil með Jong PSV, varaliði félags- ins, í næstefstu deild en var lánaður til Gautaborgar snemma á þessu ári. » Hjörtur gekk síðan til liðs við Bröndby í júlí og samdi til þriggja ára. Hann hefur spilað 19 af 21 leik liðsins í úrvals- deildinni á tímabilinu, alla í byrjunarliði, og skorað eitt mark. » Hjörtur var í EM-hópi Ís- lands í sumar. Hann hefur spil- að þrjá A-landsleiki og 59 leiki með yngri landsliðunum og verið fyrirliði þeirra allra. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Frakkland Hjörtur Hermannsson var í landsliðshópnum á EM í sumar og er hér á leið til sætis á varamannabekknum fyrir leikinn gegn Frökkum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.