Berklavörn - 01.06.1939, Side 16
Oddur Olafsson:
Tuberculosis C-vitamin.
Vísindamenn úti í löndum hafa á und-
anförnum árum gert víðtækar rannsókn-
ir á C-vitamínþörf manna, háttum C-vita-
mínsins og eðli.
Þeir hafa komizt að raun um, að C-
vitamín er lífsnauðsynlegt mönnum. Mað-
urinn verður að fá C-vitamín í fæðunni
til þess að halda lífi og heilsu. C-vitamín
verður að vera stöðugt í fæðunni, vegna
þess að líkaminn safnar ekki forða af
efnum, heldur skilar því, sem hann hefir
ekki not fyrir, gegn um nýrun. Um nauð-
synlegan dagskammt en skiptar skoðanir,
flestir ætla að 20—40 mg. sé nægilegt.
Þörf manna fyrir efnið er misjöfn, þann-
ig þurfa menn með hitasótt eða langvinna
sjúkdóma meira C-vm. en heilbrigðir,
börn meira en gamalmenni, konur meira,
þegar þær eru vanfærar. Breytt ástand
í maga og þörmum getur einnig valdið
því, að C. í fæðunni -hagnýtist ekki að
þessa viðleitni eftir megni, og það er
læknanna, að ... það er annars óþarfi að
segja þeim, hvað þeirra er, það vita þeir
sjálfir bezt.
Þessir aðilar eiga að gera með sér
hernaðarbandalag gegn berklunum á Is-
landi, með fullu trausti á hvers annars
hlutverki. Á meðan nágrannaþjóðir okkar
spúa eldi og dauða hver á aðra og eyða
til þess fjárhæðum, sem íslenzkur hugur
á erfitt með að meta á raunhæfan mæli-
kvarða, eigum við, vopnlausasta þjóðin í
heimi, að leggja grundvöllinn að íslenzku
hernaðarbandalagi, hefja innanlandsstyrj-
öld við berklana með því bjarta markmiði
að þeir láti af strandhöggi sínu á hendur
hinni íslenzku fátækt, hinu íslenzka fá-
menni.
fullu. Búi menn við C.-skort til lang-
frama, fá þeir skyrbjúg, en löngu áður
en greinileg einkenni skyrbjúgs koma
fram, er líkaminn farinn að líða, vegna
C.-fátæktar. Hin óljósu einkenni C.-fá-
tæktarinnar, sem er miklu algengari en
skyrbjúgurinn, hafa mikla þýðingu, vegna
þess að líkami, sem líður af C.-fátækt,
hefir minna viðnámsþol gegn öðrum sjúk-
dómum en heilbrigður líkami. Andlegt og
líkamlegt starfsþol lamast. Ríkulegt C.
er aftur á móti talið auka viðnámsþol
manna gegn sjúkdómum. Þetta hefir mik-
ið verið rannsakað á dýrum, og t. d. er
talið, að marsvín, sem fá C.-auðugt fóður,
sýkist seinna og vægar af berklaveiki
en dýr á venjulegu fóðri.
Rannsóknir á berklasjúklingum hafa
leitt það í ljós, að þeir þurfa meira C.
en heilbrigðir, og talið er líklegt, að C.-
fátækt tefji bata þeirra. — Veturinn
1938 gerði ég meltunarrannsóknir á sjúkl-
ingum í Vífilsstaðahæli, en þær byggjast
á þeirri staðreynd, að líkaminn skilar aft-
ur gegnum nýrun því C., sem hann get-
ur ekki hagnýtt. Það má því með mæling-
BERKLAVÖRN
ia