Berklavörn - 01.06.1939, Síða 31
Grundvallarreglur félagsins.
1. Félagið er verzlunarsamtök neytenda í Reykjavík og nágrenni og
sainvinnufélag samkvæmt landslögum.
2. Tilgangur félagsins er að útvega félagsmönnum allskonar vörur sem
vandaðastar að gæðum á sem ódýrastan og hagkvæmastan hátt.
3. Félagið verzlar að eins gegn staðgreiðslu. Féiagsmenn bera ekki per-
sónulega áhyrgð á skuldbindingum þess fram yíir það, sem nemur
stofnsjóðseign þeirra, livers um sig. Innganga í félagið er frjáls öllum,
er gangasl vilja undir lög þess. Félagið er algerlega óháð um stjórn-
mál, trúmál og önnur mál, sem eru hlutverki þess óviðkomandi.
ó. Félagið starfar fullkomlega á lýðræðisgrundvelli og ráða félagsmenn
sjállir öllum rekstri þess, þannig, að þeir kjósa fulltrúa á aðalfund,
sem kýs félagsstjórn og endurskoðendur, en félagsstjórn ræður fram-
kvæmdastjórn. Allir félagsmenn liafa jafnan atkvæðisrétt um mál
félagsins.
(5. Til tryggingar félaginu og til þess að standa fjárhagslega undir rekstri
þess, eru sjóðir félagsins, stofnsjóður, varasjóður og aðrir sjóðir, ef
stofnaðir verða. Stofnsjóður er séreignarsjóður félagsmanna, ávaxtaður
í vörzlu félagsins, en varasjóður er sameignarsjóður allra félagsmanna.
BERKLAVÖRN