SÍBS fréttir - 01.02.1985, Blaðsíða 5
leggist í kör. Grálegt er t.d. að vita til þess
að einstaklingar selji íbúðir sínar of snemma
bara til að losna við að ganga 1-2 stiga.
Stigagöngur geta nefnilega verið ágætis
þjálfun fyrir hjarta og æðakerfi og þannig
viðhaldið þreki og úthaldi. Þrekleysi fer
því vaxandi og vöðvarnir rýrna. (Sjá
mynd).
Lyfjameðferð sjúklinganna er flókin og
nauðsynlegt er að þeir kunni nokkur skil á
til hvers lyfin eru ætluð og hvernig á að taka
þau. Rétt notkun lyfjanna getur án efa oft
komið í veg fyrir dýrar og óþægilegar spít-
alavistir.
Þá má nefna að sumir sjúklinganna þurfa
súrefnis með annað hvort að næturlagi eða
allan sólarhringinn. Rétt notkun súrefnis
getur bætt líðan sjúklinganna verulega og
aukið þrek þeirra og úthald. Jafnvel eru
dæmi þess að menn geta stundað vinnu sína
þrátt fyrir súrefnisnotkun. Samt er þekking-
arleysi og fáfræði um súrefni og notkun
þess mjög algengt. Hversu mörg ykkar hafa
t.d. séð mann með súrefniskút í eftirdragi á
götum úti? Ég býst við að menn yrðu ekki
minna forviða við þá sjón en t.d. að mæta
geimfara í fullum herklæðum. Tugir manna
hérlendis nota súrefni að staðaldri og í
Bandaríkjunum má nefna að yfir Vi milljón
manna eru meira eða minna háðir súrefnis-
notkun.
Eftirfarandi setningar eru úr ritgerð eftir
bandaríska konu sem notar súrefni að stað-
aldri: ...„lengi var ég hikandi við að sýna
mig úti við með súrefnisslönguna í nefinu
dragandi kútinn á eftir mér. Fatlaðir t.d. í
hjólastól eða með hækju vekja litla sem enga
athygli en með plastslöngu í nefi og súrefn-
iskút í eftirdragi fannst mér hins vegar að ég
væri vart af þessum heimi, svo mikið var
horft og pískrað. Nú héf ég yfirstigið þessa
erfiðlcika og súrefnisslangan er jafn sjálf-
sagður hluti af sjálfri mér og yfirhöfnin —
mér finnst ég varla vera klædd án hennar."
Vonleysi, kvíði, þunglyndi og einangrun
eru eðlilega meðal þeirra vandamála sem
SÍBSfréttir
5