SÍBS fréttir - 01.02.1985, Blaðsíða 8

SÍBS fréttir - 01.02.1985, Blaðsíða 8
Rannveig Löve: Fróðlegt og þróttmikið þing 24. þing SÍBS var haldið að Reykjalundi dagana 29. og 30. scpt. í haust (1984). Skólahljómsveit Mosfellssveitar stóð á hlaðinu og fagnaði þingfulltrúum með hressilegri tónlist þegar þá bar að garði. PINGSETNING Kjartan Guðnason formaður SÍBS setti þingið með hátíðarræðu. Hann bauð full- trúa velkomna til þingstarfa, vakti athygli á hinum nýja vistlega fundarsal og þakkaði framkvæmdastjóra Reykjalundar og starfs- fólki hans frábæran undirbúning þingsins, sem að mestu hvíldi á þeirra herðum. Ping- heimur tók undir orð hans með lófataki. ÞEMA PINGSINS: ATVINNULEG ENDURHÆFING 24. þingi SÍBS hafði verið valið leiðarefni eða þema, sem var atvinnuleg endurhcefing allra þeirra sem af aðskiljanlegum orsökum hafa skert vinnuþrek eða hæfni til fyrri starfa. Frummælandi var Oddvar Sande frá Arbeitsdirektoratet í Osló. Flutti hann fróð- legt erindi um aðgerðir og starfshætti Arbeitsdirektoratsins sem annast hvort- tveggja í senn: endurhæfingu til starfs og vinnumiðlun. Enda hefur skrifstofan á að skipa sérhæfðu starfsliði á mörgum sviðum, sem vinnur saman að lausn mála. Má þar til nefna lækna, félagsráðgjafa, sálfræðinga og aðra sérfræðinga í endurhæfingarmálum. Áhersla er lögð á að öryrkinn eða hinn starfshamlaði einstaklingur, sem um er rætt hverju sinni, sé virkur þátttakandi í með- ferðaráætluninni svo og fjölskylda hans ef því er að skipta. Sérstakur starfsmaður skrifstofunnar (att- föringstjenestemann) sér síðan um fram- kvæmd allra áætlana, hvort sem um er að ræða endunnénntun einstaklingsins, endurltæf- ingu til annarra eða sömu starfa við breytt skilyrði eða starf á vernduðum vinnustað. Og að lokum að finna honum starf við hæfi á hinum opna vinnumarkaði, en það er hið endanlega markmið. Haukur Pórðarson yfirlæknir á Reykja- lundi og Steinar Gunnarsson framkvæmda- stjóri Múlalundar fluttu síðan upplýsandi erindi um þessi mál hér á landi. Athygli vakti umfjöllun Hauks um hugtakið „verndaður vinnustaður“ kosti þess og galla. Væntanlega gefst síðar kostur á að ræða það mál hér eða á öðrum heppilegum vettvangi. Að loknum framsöguerindum hófust umræður um þau og spurningum var svarað. Verkefnisnefnd var síðan falið að draga saman áhersluatriði og senrja ályktun um aðgerðir sem miða að markvissri endurhæf- ingu öryrkja eða starfshamlaðra einstak- linga. 8 SÍBSfréttir

x

SÍBS fréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SÍBS fréttir
https://timarit.is/publication/1221

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.