SÍBS fréttir - 01.02.1985, Page 11
Stjórn SÍBS
Kjartan Guðnason var kosinn formaður og meðstjórnendur þau Rannveig Löve, Garðar
P. Jónsson (og hann er varaformaður), Guðmundur Guðmundarson og Davíð Gíslason
til tveggja ára.
Fyrir í stjórninni voru þeir Hjörtþór Ágústsson og Björn Ólafur Hallgrímsson.
í varastjórn voru kosin Ingibjörg Friðriksdóttir, Þorvaldur Jónsson, Hafsteinn Stefáns-
son og Skúli Jensson.
Oddur Ólafsson gafekki kost á sér til endurkjörs í stjórn SÍBS og voru honum þökkuð
farsæl störf í þágu sambandsins.
Ályktun Allsherjarnefndar 24. þings
SÍBS vegna hækkunar á göngudeildar-
þjónustu, lyQakostnaði og læknisþjón-
ustu:
Á undanförnum áratugum hefur markvisst
verið unnið að því hér á landi að tryggja
öllum sem á þurfa að halda sem besta læknis-
hjálp án tillits til efnahags. Jafnframt hefur
verið unnið að því að tryggja þeim þolanlega
afkomu sem standa höllum fæti vegna sjúk-
dóma eða aldurs.
Á svipstundu hefur þessu verið hrundið.
Við höfum færst áratugi aftur í tímann og
efnalítið fólk þarf nú að hugsa sig um tvisvar
áður en það leitar læknis. Kostnaðarhluti
sjúklinga í læknishjálp og lyfjakostnaði hefur
þre- til fjórfaldast á sama tíma og grunnlíf-
eyrir örorku- og ellilífeyrisþega hefur
hækkað um 14%.
Eins og áður greiða elli- og örorkulífeyris-
þegar hálft gjald fyrir þessa þjónustu. Einn er
þó sá hópur öryrkja sem ekki fær neina
lækkun. Það eru börn (eða foreldrar fyrir
þeirra hönd). Sú regla er óbreytt að því aðeins
fái börn lækkun að bæði foreldrar séu
öryrkjar!
Þeir sem oftast þurfa á læknishjálp að halda
eru sjúklingar með langvarandi sjúkdóma.
Öryrkjar, eldra fólk, barnmargar fjölskyldur
og þeir sem verða fyrir slysum. Þetta fólk
greiðir í dag fyrir bráðnauðsynlega læknis-
hjálp fjórfalda og jafnvel fimmfalda þá upp-
hæð sem það greiddi í maí s.l.
Þessi sérskattlagning sjúklinga sem átti að
vera til sparnaðar í heilbrigðisþjónustunni
hlýtur að verka öfugt. Þegar svo er komið að
það er efnalitlu fólki fjárhagslega um megn að
greiða læknishjálp og á stofum og göngu-
deildum hlýtur innlögnum að fjölga á sjúkra-
hús. Sparnaður ríkissjóðs af þessum reglu-
gerðarbreytingum er því hæpinn.
Hér verður því að verða breyting á, sam-
viska þjóðarinnar krefst þess að allir geti án
tillits til efnahags fengið þá læknishjálp sem
þeir þurfa.
SÍBSfréttir
11