Fréttatíminn - 30.12.2015, Qupperneq 50
Kringlan 4–12 103 Reykjavík www.reitir.is 575 9000
TIL LEIGU
Myndir, teikningar og nánari upplýsingar má nálgast á www.reitir.is
og hjá Halldóri Jenssyni sölustjóra í 840 2100 eða halldor@reitir.is.
Skeifan 17
Skrifstofuhúsnæði til leigu
Til leigu 218 m² skrifstofuhúsnæði á 3. hæð í Skeifunni 17. Skrifstofurýmið er nýlega uppgert, um 200 m²
auk 18 m² starfsmannaaðstöðu á jarðhæð. Rýmið er bjart og skiptist í þrjú herbergi, opið vinnurými og kaffistofu.
Laust til afhendingar í byrjun janúar 2016.
Brynhildur
Guðjóns-
dóttir fer
með eitt
aðalhlut-
verkanna í
Njálu. Ljós-
mynd/Hari
S ænska leikskáldið Jonas Hassen Khemiri hefur verið nefndur einn af mikilvæg-
ustu rithöfundum sinnar kynslóðar
í Svíþjóð. Hann er fæddur árið 1978
í Stokkhólmi en á ættir að rekja til
Túnis. Hann lagði stund á alþjóðlega
fjármálahagfræði í París og bók-
menntafræði í Stokkhólmi. Bækur
hans hafa notið mikilla vinsælda,
unnið til verðlauna og verið kvik-
myndaðar. Má þar nefna að fyrsta
skáldsaga hans Ett öga rött, sem
kom út árið 2003, hefur selst í yfir
200.000 eintökum, og verið bæði
kvikmynduð og sett á svið. Skáld-
saga hans Montecore – en unik ti-
ger frá árinu 2006 hefur verið þýdd
á fjölda tungumála. Skáldsagan Jag
ringer mina bröder vakti jafnframt
mikla athygli. Nýjasta skáldsaga
Khemiris Allt jag inte minns hlaut
á dögunum sænsku Augustpriset
bókmenntaverðlaunin.
Khemiri skrifaði sitt fyrsta leik-
rit, Invasion!, árið 2006. Verkið var
samið að beiðni Borgarleikhússins
í Stokkhólmi og í kjölfarið sett upp
víða um heim, meðal annars Frakk-
landi, Þýskalandi, Noregi, Bretlandi
og Bandaríkjunum, þar sem verkið
hlaut Obie verðlaunin. Árið 2009
hlaut Khemiri norsku Heddu Gabler
leiklistarverðlaunin fyrir leikritið Vi
som är hundra. Hann skrifaði leik-
ritin Fem gånger Gud og Apatiska
för nybörjare, og hlaut Ibsenverð-
launin árið 2011.
Í verkum sínum fjallar Khem-
iri meðal annars um flóttamanna-
vandann og stöðu innflytjenda.
Hversdagsleg átök sem fylgja hinu
sænska fjölmenningarsamfélagi
eru í forgrunni og Khemiri skrifar
af næmni og húmor um sjálfsmynd
þeirra sem alast upp í fjölskyldum
þar sem mismunandi menningar-
heimar rekast á. Í verkum hans
reynir á mörkin milli skáldskapar
og raunveruleikans og eru uppsetn-
ingar á leikritunum fjölbreyttar og
frelsi leikstjóra til að leika sér með
textann á mismunandi hátt mikið.
Leikritið ˜ [ungefär lika med] eða ˜
um það bil var frumsýnt á Dramaten
í Stokkhólmi á síðasta ári og hefur
notið fádæma vinsælda en jafnframt
vakið umtal og deilur. Það hefur nú
þegar verið sett upp í Thalia leik-
húsinu í Hamborg, Borgarleikhús-
inu í Nürnberg og er væntanlegt á
svið í Schaubühne í Berlín og Þjóð-
leikhúsinu í Osló.
Uppsetning Þjóðleikhússins á
verkinu er sú fyrsta á Norðurlönd-
unum fyrir utan frumuppfærsluna í
Svíþjóð. Með helstu hlut verk í Þjóð-
leikhúsinu fara þau Þröstur Leó
Gunnarsson, Stefán Hallur Stefáns-
son og Guðrún Gísladóttir.
Hannes Friðbjarnarson
hannes@frettatiminn.is
LeikhúS NjáLa frumSýNd í BorgarLeikhúSiNu
Forvitnileg, ögrandi
og litrík leikhúsveisla
Jólaleikrit Borgarleikhússins verð-
ur frumsýnt í kvöld, miðvikudaginn
30. desember, og er það leikverkið
Njála, nýtt íslenskt leikverk sem
byggir á Brennu-Njálssögu, einni
ástsælustu sögu okkar Íslendinga.
Sagan hefur lifað með þjóðinni í sjö
hundruð ár, lesin í öllum mennta-
skólum landsins og sjaldan verið
vinsælli en einmitt nú. Leikhópur-
inn undir stjórn Þorleifs Arnar Arn-
arssonar ásamt Ernu Ómarsdóttur,
danshöfundar og dansara, munu þau
tjalda öllu til og nýta ótakmarkaða
töfra leikhússins til að takast á við
þessa stórbrotnu sögu í sýningu sem
verður í senn forvitnileg, ögrandi og
litrík leikhúsveisla. Bardagar, ástir,
hefndir og völd en umfram allt Njála
eins og hún hefur aldrei sést áður.
Njáluhátíð hefst í forsal Borgar-
leikhússins fyrir hverja sýningu
klukkan 18 með ýmsum uppákom-
um. Þar verður hægt að fá lánaða
búninga, fá húðflúr, hitta leikara
á vappi, kaupa kjötsúpu, sjá beina
útsendingu frá leikurum í hár og
förðun og fylgjast með undirbún-
ingi á Stóra sviðinu. Jafnframt verð-
ur boðið upp á fyrirlestur um Njálu
klukkan 19.
Þorleifur Örn Arnarson hefur get-
ið sér gott orð sem leikstjóri hérlend-
is og erlendis og hefur meðal annars
unnið leikgerðirnar að Englum al-
heimsins og Sjálfstæðu fólki. Einnig
hefur hann vakið mikla athygli fyrir
umdeildar sýningar sínar erlendis.
Erna Ómarsdóttir er vafalaust
einn virtasti dansari og danshöfund-
ur Íslendinga og hafa verk hennar
verið sýnd á hinum ýmsu dans- og
listahátíðum víða um heim. Erna
hefur víða vakið athygli fyrir sinn
einstaka stíl og hlotið mikið lof fyr-
ir verk sín, núna síðast fyrir verkið
Black Marrow sem hún samdi ásamt
Damien Jalet, en það verk var ein-
mitt tilnefnt til Grímuverðlaunanna
2015 sem Sýning ársins. -hf
LeikhúS ÞjóðLeikhúSið frumSýNir um Það BiL
Hversdagsleg átök í Kassanum
Þjóðleikhúsið frumsýndi í gær, þriðjudagskvöld, verkið Um það bil, í Kassanum. Leikritið varð til
eftir að Dramaten leikhúsið í Stokkhólmi bað Jonas Hassen Khemiri um að skrifa nýtt leikrit fyrir
húsið. Leikritið átti að fjalla um Frankenstein – ófreskjuna sem Mary Shelly gerði ódauðlega. En
skrifin leiddu Khemiri í aðra átt. Leikstjóri verksins er Una Þorleifsdóttir.
Guðrún Gísladóttir í hlutverki sínu í Um það bil. Ljósmynd/Þjóðleikhúsið
50 menning Áramótin 30. desember 2015-1. janúar 2016