Fréttablaðið - 10.02.2017, Page 6
Snjóar mikið á vesturströnd Bandaríkjanna
Þessi maður var að hreinsa göngustíga í New York-borg með snjóblásara eftir mikla snjókomu á vesturströnd Bandaríkjanna í gær. Búist var við að
30 sentímetra snjólag myndi falla í New York og 45 sentímetrar í Boston. Þúsundum flugferða var aflýst í gær vegna óveðurs. Fréttablaðið/EPa
Rússland Rússneski stjórnarand-
stæðingurinn Alexei Navalní ætlar
ekki að láta dómsúrskurð stöðva
framboð sitt til forseta. Hann hlaut
dóm fyrir spillingu, en segir dóm-
inn sprottinn af pólitískum rótum
og ætlar að áfrýja.
Fyrir fjórum árum hlaut Navalní,
sem hefur verið í fararbroddi bar-
áttu gegn spillingu í Rússlandi,
sams konar dóm en þeim dómi
var síðar hnekkt. Í réttarsalnum á
miðvikudag gerði hann mikið grín
að dómaranum, sagði hann endur-
taka sömu mistökin og fyrri dómari
hefði gert, enda væri úrskurðurinn
nánast samhljóða eldri dómnum.
Samkvæmt rússneskum lögum
má enginn, sem hefur dóm á
bakinu, bjóða sig fram til forseta.
Navalní segist þó ekki ætla að láta
það stöðva sig, því stjórnarskráin
kveði á um að einungis þeir sem
sitji í fangelsi megi ekki bjóða fram.
Hann hafi ekki setið af sér neinn
dóm. – gb
Stefnir ótrauður á
framboð gegn Pútín
alþingi Að minnsta kosti fjórir
þingmenn höfðu flutt frumvörp um
afnám á einkarétti ríkisins til smá-
sölu áfengis áður en Teitur Björn
Einarsson, þingmaður Sjálfstæðis-
flokksins, lagði sitt frumvarp fram
fyrir helgi. Sumir hafa flutt frum-
vörpin oftar en einu sinni. Fyrstur
til að flytja slíkt frumvarp var Vil-
hjálmur Egilsson árið 2001. Á eftir
honum komu svo Guðlaugur Þór
Þórðarson, Sigurður Kári Kristjáns-
son og svo Vilhjálmur Árnason.
Frumvörpin hafa verið með
ólíkum áherslum. Ýmist er lagt til
að einungis verði afnuminn einka-
réttur á sölu léttvíns og bjórs eða
þá að einkaaðilar eigi að geta selt
allar tegundir áfengis í smásölu til
jafns við ÁTVR. Þá er ýmist lagt til að
afnema einkarétt ÁTVR á smásölu
áfengis eða að leggja ÁTVR hrein-
lega niður. Nú er hins vegar verið
að leggja frumvarpið fram í sama
búningi og í þriðja skiptið. Lagt er
til að afnema einkarétt ÁTVR á smá-
sölu áfengis. Meðflutningsmenn
Teits Björns eru þingmenn úr Sjálf-
stæðisflokki, Viðreisn, Pírötum og
Bjartri framtíð.
Unnur Brá Konráðsdóttir, for-
seti Alþingis, segir fjölmörg þing-
mannamál vera lögð fram á Alþingi
án þess að þau séu afgreidd. Það hafi
komið til umræðu að bregðast við
þessu með því að breyta löggjöfinni
þannig að þingmál lifi á milli þinga.
„Það er að segja að mál sem eru
komin inn í nefnd og til umfjöllunar
haldi áfram í þeirri umfjöllun,“ segir
Unnur en tekur jafnframt fram að
slík breyting hafi þó ekki náð fram
að ganga.
Þegar Unnur Brá tjáði sig um
sambærilegt áfengisfrumvarp árið
2014 fagnaði hún því að frumvarpið
hefði verið lagt fram. „Ég vona svo
sannarlega, herra forseti, að þetta
mál komist það langt að það fari
í atkvæðagreiðslu í þingsalnum,“
sagði hún þá í þingræðu.
Nú segist Unnur Brá í samtali
við Fréttablaðið ekki geta beitt sér
fyrir því að þingmálið verði afgreitt
frá Alþingi, hvort sem það yrði sam-
þykkt eða fellt. „Forseti Alþingis
er forseti allra þingmanna. Hann
beitir sér ekki fyrir einu máli frekar
en öðru eftir því hvaða persónu-
legu skoðanir hann hefur.“ Áherslur
þingflokkanna skipti meira máli
varðandi það hvaða þingmannamál
verði tekin á dagskrá.
jonhakon@frettabladid.is
Hafa barist fyrir sama
málinu í sextán ár
Teitur Björn Einarsson verður fimmti þingmaðurinn til að leggja fram frumvarp
um afnám á einkarétti ríkisins til að selja áfengi. Forseti Alþingis segir fjölmörg
þingmannamál vera lögð ítrekað fram. Áherslur þingflokkanna skipti máli.
Stöðugar breytingar verða á verslunarneti ÁtVr, en verslanirnar eru nú tæplega 50.
Þessi mynd var tekin þegar ný verslun var opnuð í Spönginni. Fréttablaðið/VilhElm
Forseti Alþingis er
forseti allra þing-
manna. Hann beitir sér ekki
fyrir einu máli
frekar en öðru
eftir því
hvaða per-
sónulegu
skoðanir hann
hefur.
Unnur Brá Konráðsdóttir, forseti Alþingis
dómsmál Guðmundur Spartakus
Ómarsson hefur stefnt nokkrum fjöl-
miðlamönnum fyrir fréttaflutning af
sér á síðasta ári. Í gær var fyrirtaka í
máli hans gegn Sigmundi Erni Rún-
arssyni, dagskrárstjóra sjónvarps-
stöðvarinnar Hringbrautar.
Fréttamönnum Ríkisútvarpsins,
Jóhanni Hlíðari Harðarsyni, Rakel
Þorbergsdóttur fréttastjóra, Pálma
Jónassyni og Hjálmari Friðriks-
syni, hefur einnig verið stefnt ásamt
Magnúsi Geir Þórðarsyni útvarps-
stjóra. Í báðum stefnunum er þess
krafist að ærumeiðandi ummæli
verði ómerkt og Guðmundur fái
miskabætur greiddar.
Stefnan gegn Sigmundi Erni tekur
til níu ummæla sem birtust á hring-
braut.is. Sex þeirra ummæla snúa að
fullyrðingum um meint fíkniefnavið-
skipti Guðmundar, þá er fullyrt að
„hann sigli undir fölsku vegabréfs-
flaggi“.
Stefnan gegn starfsmönnum RÚV
er mun umfangsmeiri, eða samtals
fjórtán blaðsíður, og tekur til alls 28
ummæla sem féllu í útvarpsfréttum
og á vef Ríkisútvarpsins í janúar og
maí 2016. Farið er fram á samtals tíu
milljónir króna í bætur fyrir ummæl-
in sem flest snúa að áðurnefndum
meintum fíkniefnaviðskiptum. – snæ
Sigmundi stefnt vegna
ummæla um Spartakus
Í gær var fyrirtaka í máli Guðmundar
gegn Sigmundi Erni, dagskrárstjóra
hringbrautar. Fréttablaðið/StEFÁn
Viðskipti Landsbankinn hagnaðist
um 16,6 milljarða króna eftir skatta
á síðasta ári samkvæmt ársupp-
gjöri sem var kynnt í dag, en hagn-
aður bankans á árinu 2015 nam 36,5
milljörðum króna.
Lagt verður til við aðalfund að
greiddur verði 13 milljarða króna
arður til hluthafa en bankinn er að
langstærstum hluta í eigu ríkisins.
Til viðbótar hyggst bankaráð leggja
til sérstaka arðgreiðslu á aðalfundi
þann 22. mars næstkomandi.
Eigið fé bankans var 251,2 millj-
arðar króna í árslok 2016 og eigin-
fjárhlutfallið var 30,2 prósent af
áhættugrunni. Í tilkynningu vegna
uppgjörsins kemur fram að arðsemi
eigin fjár hafi verið 6,6 prósent í
fyrra, samanborið við 14,8 prósent
árið áður.
Hreinar vaxtatekjur voru 34,7
milljarðar króna og hreinar þjón-
ustutekjur námu 7,8 milljörðum
króna. Aðrar rekstrartekjur námu
6,1 milljarði króna. Virðisbreyting-
ar útlána voru neikvæðar um 318
milljónir króna. Rekstrarkostnaður
var 23,5 milljarðar króna. – skh
Greiðir
ríkinu 13
milljarða
16,6
milljarða hagnaður varð á
rekstri Landsbankans eftir
skatt í fyrra.
Alexein Navalni ætlar
ekki að láta ásakanir og dóm
um spillingu stöðva sig í
framboði til forseta.
1 0 . f e b R ú a R 2 0 1 7 f Ö s t U d a g U R6 f R é t t i R ∙ f R é t t a b l a ð i ð
1
0
-0
2
-2
0
1
7
0
4
:2
4
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
0
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
C
3
5
-5
9
6
C
1
C
3
5
-5
8
3
0
1
C
3
5
-5
6
F
4
1
C
3
5
-5
5
B
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
B
F
B
0
4
0
s
_
9
_
2
_
2
0
1
7
C
M
Y
K