Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2016, Blaðsíða 11

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2016, Blaðsíða 11
Fréttir 11Vikublað 23.–25. febrúar 2016 JEEP WRANGLER UNLIMITED RUBICON ← Fyrsta skráning 2/2010. Diesel. Ekinn aðeins 61 þús km. Dana 44 hásingar. Aftengjanlegar jafnvægisstangir. Læst drif. Dráttarkrókur. Harður toppur sem hægt er að taka femsta hluta af. Bíllinn er boðinn á innflutningsverði. Okkar verð: 6.900.000 KR. Gerðu daginn eftirminnilegan Kökulist | Firði Hafnarfirði og Valgeirsbakarí | Hólagötu 17 í Reykjanesbæ Bakarameistari & Konditormeistari Skoðaðu tertuúrvalið á heimasíðunni www.kokulist.is Kaupa út minni hluthafa Bakkavarar Bakkavararbræður bjóða 900 milljónir fyrir 1,5% hlut B ræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir hafa ásamt bandaríska vogunarsjóðnum Baupost Group gert tilboð í um 1,5% hlut í breska matvæla­ fyrirtækinu Bakkavör Group Lim­ ited. Hluturinn er í eigu 2.800 ís­ lenskra hluthafa og er metinn á 900 milljónir króna. Samkvæmt upplýsingum DV munu allir hluthafar í Bakkavör Group fá sent kauptilboð á næstu dögum. Tilboðið, sem kemur frá Bakkavör Group og Bakk AL Holdings Limited, félagi í eigu bræðranna og sjóða í stýringu hjá Baupost, hljóðar upp á um 500 krónur á hlut. Verður þeim sem taka tilboðinu, fram að 15. mars næstkomandi, greitt í krónum inn á bankareikninga sína. Það er sama tilboð og greitt var í janúar síðast­ liðnum til íslenskra lífeyrissjóða og BG12 sem seldu þá 50,1% í breska matvælafyrirtækinu. DV greindi í lok janúar frá því að Arion banki og ýmsir íslenskir líf­ eyrissjóður myndu bókfæra hagnað upp á samtals tæplega 16 milljarða króna við sölu á 46% hlut BG12 slhf. í Bakkavör Group. Stærstu eigendur BG12 eru Arion banki, Lífeyrissjóð­ ur verzlunarmanna, Gildi­lífeyris­ sjóður, ásamt fleiri lífeyrissjóðum og fagfjárfestum. n haraldur@dv.is Náðu aftur yfirráðum Bræðurnir Ágúst og Lýður Guðmundssynir stofnuðu Bakkavör árið 1986. Virðist hafa Vaktað húsið n Konan var ein í hálftíma í fyrsta skipti eftir fyrri árásina þegar seinni árásin var gerð n Móabarðs- málið vekur mikinn óhug „Það er mjög ólíklegt að maðurinn sé að fremja kynferðisglæp í fyrsta skipti,“ segir Kristján Guðmundsson, sálfræði- kennari við Kvennaskólann og starfandi sálfræðingur, um gerandann í málinu. Hann segir enn fremur að maðurinn virðist vera eldri en gengur og gerist í svona glæpum. Mennirnir séu yfirleitt undir þrítugu en lögreglan hefur lýst eftir manni á aldrinum 35 til 45 ára. Tekið skal fram að Kristján þekkir umrætt mál ekki nema af fjölmiðlaum- fjöllun. Hann þekkir hins vegar vel til afbrotafræðinnar og segir að þeir sem fremji svona alvarlega glæpi byrji ekki afbrotaferil sinn með jafn alvarlegum glæp. „Það þróast upp í þetta, byrjar smærra og vex síðan. Hann segir að svona mál geti hæglega farið á versta veg, takist ekki að hafa hendur í hári þess sem svona gerir. Kristján segir að ástæð- una fyrir því að menn fremji svona glæpi megi oft rekja til einhverra áfalla eða einhvers atburðar sem verði kveikjan að svona hegðun. Hann nefnir að hann gæti til dæmis hafa upplifað nýlega höfnun, til dæmis frá kærustu. Hins vegar geti líka verið að skýringin sé læknisfræðilegs eðlis. Þekkt sé að framheilaskaði geti haft ófyrirséða hegðun í för með sér. „Svo er það auðvitað þetta alþekkta dóp.“ Kristján segir að það hvernig fyrri árásin hafi borið að minni hann á hátta- lag eins frægasta raðmorðingja sögunn- ar, Alberts DeSalvo, sem myrti 13 konur í Boston á sjötta áratugnum. DeSalvo, eða The Boston Strangler, var að sögn Kristjáns ekki kærður fyrir nauðganir eða morð heldur fyrir að brjótast inn í húsin. Hann hafi villt á sér heimildir með því að þykjast ætla að lesa af mælum. Stundum hafi hann sagst vera að leita að fyrirsætum og sannfærði konur um að leyfa honum að taka af sér mál. Hann hafi því ekki verið ógnvænlegur við fyrstu viðkynningu. Kristján segir að mál sem þessi séu afar erfið þar sem lögreglan hafi takmarkaðar upplýsingar. Það leiði til orðróms og kjaftasagna sem stundum spinnist upp þar til lögreglan sjái ástæðu til að leiðrétta. Hann segir ljóst að konan, sem fyrir árásinni varð, þurfi verulega mikla hjálp. Þá hafi rannsóknir sýnt að þeir sem komi að því að hjálpa fólki við þessar aðstæður þurfi ekki síður á aðstoð að halda; áfallahjálp eða annarri meðferð. Spurður hvaða áhrif þessi atvik komi til með hafa á nágranna konunnar eða konur í sambærilegri stöðu, segir hann varhuga- vert að draga of miklar ályktanir. „Svona glæpir eru með ólíkindum sjaldgæfir.“ baldur@dv.is Líklega ekki fyrsta árásin Sálfræðingur rýnir í Móabarðsmálið geti ekki upplýst um aðgerðir sínar. Heimildir DV herma þó að ekkert slíkt eftirlit hafi verið til staðar fyrir síðari árásina. „Við erum að leita að hinum grunaða og vonumst til að fá ein­ hverjar nýtilegar vísbendingar,“ segir Árni Þór. Í tilkynningum frá lögreglunni hefur manninum verið lýst þannig að hann sé um 180 sentí­ metrar á hæð, fölleitur, var dökk­ klæddur, með svarta húfu og svarta hanska þegar hann réðst á konuna í fyrra skiptið. Hann er talinn vera á aldrinum 35–45 ára. Þeir sem geta veitt upplýsingar um manninn eða ferðir hans eru beðnir að hafa sam­ band við lögreglu í síma 444­1000 eða á netfangið abending@lrh.is. n

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.