Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2016, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 23.02.2016, Page 22
18 Menning Vikublað 23.–25. febrúar 2016 Dalvegi 2, 201 Kópavogi Dalshrauni 13, 220 Hafnarfirði eldbakaðar eðal pizzur sími 577 3333 É g brosti út í annað þegar ég hlustaði á viðtal við Vigni Rafn Valþórsson, leikstjóra verksins, á leið á frumsýningu. Hann svaraði einmitt þeirri spurningu sem brann á mér og varð- aði það hvernig hægt væri að taka rúmlega 500 blaðsíðna skáldsögu í þyngri kantinum og umbreyta í tveggja tíma leikhúsverk. Svar leik- stjórans hljómaði eitthvað á þá leið að leikhópurinn klippti allt sem honum þótti leiðinlegt í burtu. Safaríkustu og skemmtilegustu kaflarnir voru síðan skeyttir saman með það að markmiði að skapa heilsteypta sýningu þar sem umfjöllunarefnið væri popúlismi og fasismi. Trú mín á verkinu óx til muna við þessi orð því þarna var augljóslega á ferðinni listamaður sem þorði að segja hlutina hreint út. Hann var ekk- ert að tipla á tánum í kringum hand- hafa Íslensku bókmenntaverðlaun- anna 2012, Eirík Örn Norðdahl og verðlaunaverk hans, Illsku. Það vant- aði bara að hann segði okkur hversu margar blaðsíður, mörg orð, hefðu þótt of leiðinleg, það hefði verið svo skemmtilega í stíl við verkið þar sem alls kyns tölfræðilegar samantektir eru alls ráðandi. Viðtalinu lauk svo á því að leikstjórinn sagði sýninguna að öllum líkindum vera mikilvægustu leiksýningu sem sést hafi á Íslandi lengi. Kokhraustur er hann, hugsaði ég með mér. Kokhraustur mátti hann vera hugsaði ég að sýningu lokinni. Nýnasískur ástarþríhyrningur Í stuttu máli fjallar sýningin um Agnesi sem vaknar upp við hliðina á Ómari á heimili sínu í Kópavogi. Ómar er íslenskufræðingur, vinalegur gaur sem þó er vinalaus eftir að hafa gengist við nauðgun nokkrum árum áður. Hann er líka atvinnulaus í upp- hafi sambands þeirra en fær síð- ar vinnu hjá Dominos. Agnes er af litháískum uppruna en hefur alist upp hér á landi. Hún er að skrifa rit- gerð um helförina og hefur uppi á nýnasistanum Arnóri, með það að markmiði að nýta sér viðhorf hans í skrifum sínum. Skoðanir Arnórs eru líkt og við má búast, veröld hans er svart-hvít og allar skilgreiningar reiðubúnar og flokkaðar í stafrófsröð. En þrátt fyrir tourette-einkennin og öfgafullar skoðanir er Arnór ágengur og girnist Agnesi. Agnes heillast af honum og saman stunda þau þokka- lega spennandi tækjum búið kynlíf. Agnes verður barnshafandi og veit ekki hvort sambýlismaðurinn Ómar eða nýnasistinn Arnór sé faðirinn. Þeir taka báðir ástfóstri við barnið og kljást að lokum um faðernið. Yfirþyrmandi en kynþokkafullur Sólveig Guðmundsdóttir fer með hlut- verk Agnesar. Hún virkaði svolítið óörugg í fyrri hluta sýningarinnar og framsögn hennar var óskýr á köflum. Það var hins vegar allt annað að fylgjast með henni eftir hlé, hún var kraftmikil, viðkvæm, angistarfull og sannfærandi þegar hún reyndi að endurvekja sam- band sitt við Ómar og koma lífi sínu á réttan kjöl. Af hálfu höfunda hefði mátt taka svolítið meiri efnivið úr bókinni til að undirbyggja hlutverkið betur. Hannes Óli Ágústsson leikur Ómar, sambýlismann Agnesar. Hann er algjörlega sniðinn í hlutverkið og skapar einstaklega trúverðugan ungan mann með hófstilltum og vönduðum leik. Stjarna sýningarinnar er þó Sveinn Ólafur Gunnarsson sem fer á kostum í hlutverki nýnasistans Arnórs. Texti hans, sem á köflum er algjörlega galinn, rann upp úr honum með svo sannfærandi hætti, að maður var far- inn að hafa áhyggjur af áhrifum sýn- ingarinnar. Tourette-kækirnir voru nánast yfir þyrmandi en samt tókst honum að skapa einn kynþokkafyllsta karlmann sem sést hefur á sviði hér í vetur. Mikilvæg sýning Sviðsmyndin er í raun einn stór stigi upp á svalir salarins, með breiðum, hvítum þrepum. Leikstjóri nýtir sviðið til hins ýtrasta og tekst oft mjög vel upp með þau atriði þar sem leik- ararnir standa í hver í sinni tröppunni og horfa fram í salinn á meðan þeir ræða saman, líkt og algengt er að sjá í sjónvarpi. Með tónlist, dans atriðum og vörpun myndefnis á þennan trölla- stiga sköpuðust óteljandi skemmti- leg minni og vísanir, nánast sýning inni í sýningunni. Þá má geta þess að öll umferð leikara um sviðið, upp og niður, fram og til baka, var einfald- lega óaðfinnanleg. Það skyggir hins vegar á, að áhorfendur sitja hringlaga í kringum sviðið og þeir sem sitja við endana hljóta að fá töluvert skerta sýn miðað við þá sem sitja fyrir miðju. Þó að leikritið sé ekki eins og bókin þá er handritið býsna gott. Samtölin eru vel slípuð og renna eðlilega og áreynslulaust. Persónur eru vel skapaðar, trúverðugar og vekja áhuga. Styrkur verksins felst í því að þrátt fyrir einarða pólitíska afstöðu höfundar þá virðir hann skoðana frelsi og ferðast langar leiðir í leit að ástæðum fyrir þeim hugsjón- um sem þessa dagana virðast því miður njóta sívaxandi fylgi. Því tek ég undir með leikstjóranum, þetta er að öllum líkindum ein mikilvæg- asta sýning leikhúsanna í nokkurn tíma og listamönnunum til mikils sóma. n Kviðmágar kljást Bryndís Loftsdóttir ritstjorn@dv.is Leikhús Illska Leikgerð: Óskabörn ógæfunnar, byggt á bók eftir Eirík Örn Norðdahl Leikstjórn: Vignir Rafn Valþórsson Leikarar: Hannes Óli Ágústsson, Sólveig Guðmundsdóttir og Sveinn Ólafur Gunnars- son ásamt Ungliðahreyfingu ógæfunnar Leikmynd: Brynja Björnsdóttir Búningar: Guðmundur Jörundsson Lýsing: Jóhann Friðrik Ágústsson Vídjó: Frosti Jón Runólfsson Hljóðmynd: Garðar Borgþórsson Sýnt í Borgarleikhúsinu Óskabörn ógæfunnar Unnu Illsku upp úr verðlauna- bók Eiríks Arnar Norðdahl. „Þetta er að öllum líkindum ein mikilvægasta sýning leikhús- anna í nokkurn tíma og lista- mönnunum til mikils sóma

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.