Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna - 01.07.1927, Page 5

Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna - 01.07.1927, Page 5
rauöann lit, yrði látinn £ herbergi með rauðum veggjum og minnti Þá nokk- uð mikið á hina Þektu bók Strindbergs. Veggjalitir í sjúkraherbergjum er að sömnu ekki Ijettasta viðfangsefnið að leiða til lykta. &rái eða grábrúni liturinn er, eins og áður er á vikið, enginn heppilegur litur í baksýn fyr- ir fölar og veiklulegar manneskjur,og varla getur hjá Því farið, að slíkir litir hafi ömurleg áhrif á sjúklinginn sem oft er dapur í bragði og líður illa. Á sjúkrastofu, Þar sem alt á að vera hægt að Þvo, hanga engar myndir á veggjum, enginn sólargeisli endur- speglast í gyltum umgjörðum, Þess vegna verður Það að vera sjálfur lit- urinn á veggjunum er lífgar upp,verð- ur hann að vera skýr og bjartur, Þó ekki of sterkur svo að hann Þreyti,en heldur ekki of blandaður svo hann sýn- ist óhreinn. Ef valdir væru grænir eða bláir litir yrði að gæta Þess,að Þeir væru ekki kuldalegir, heldur yrði Þvert á móti aö keppa að Því,að litirnir væru sem hlýastir og við- feldnastir. Blái liturinn ætti helst að vera vatnsblár og sá græni ljós- mosgrænn. Fyrir rúmum 20 árum kom jeg til Stockhólms til að kynnast síðústu nýj- ungum og framförum á sviði hjúkrunar m.m. Jeg var Þá nýkomin frá hinu mikla Eppendorfer-sjúkrahúsi í Ham- borg og stóðu mjer fyrir hugskotssjón- um fölu andlitin í gráu rúmunum £ hin- um afarstóru grámáluðu sjúkrasölum, Yfirgnæfandi dapurlegt.1 Á Mar£u sjúkrahúsinu £ Stockholm sá jeg svo alt £ einu ljósgræna veggi og rauöa lista og Það voru sannarlega Þægileg viðbrigði eftir alt Þetta endalausa gráa. Yfirlæknir sjúkrahússins kvaðst hafa gert nokkrar tilraunir með liti og numið staðar viö Þann græna, sem væri einna hlýlegastur og mest hvild fyrir augað, Á "Kirurgiska sjukhuset" £ Helsing- fors, voru skömmu siðar gerðar sömu tilraunir. Allar sjúkrastofur'voru málaðar ljósgrænar, en borðstofur og gangar allir hvitir, Þótti sá litur heppilegastur, Þvi strax sáust óhrein- indi, sem hægt var að ráða bót á. Með Þessum lita-athugunum viö hæfi hinna ýmsu sjúklinga, álit jeg að stórt spor hafi verið stigið £ áttina til að gera sjúkrahúsdvölina svo vist- lega sem frekast er unt. Þátttakendur £ alheimssjúkramótinu £ Helsingfors 1925, er skoðuðu "Kirur- giska sjukhuset", dáðust mjög að hinum upplifgandi litum. Þó eru Þeir til enn sem halda Þv£ fram, aö grái liturinn eigi afarvel heima á sjúkrahúsum, en Þeir reikna ekki með næmleik sjúkra á Þessu sviði. Hve sterk sl£k áhrif geta verið, sjest best af eftirfarandi sönnum við- burði^ Sjúklingur einn, sem átti skamt eft_ ir ólifað, að Þvi er álitið var, og sjálf var Þrotin að viljaÞreki og mót- stöðuafli, var á "Kirurgiska sjukhuset" flutt úr herbergi sinu, sem Þá var með hinum gamla grábrúna "sjúkrahúslit",£ eitt af herbergjunum sem nýbúið var að mála ljósgrænt. Fyrst i stað tók hún ekki eftir neinni breytingu, en morg- uninn eftir, Þegar hún lauk upp augun- um, skein sólin inn £ herbergið, hún leit forviða kringum sig og sagði: "Mjer finnst jeg vera komin út á tún £ sólskini" Og upp frá Þeirri stundu hófst bati hennar. Ef jeg með Þessum linum gæti vakið athygli Þeirra, er hafa yfirráð á sjúkrahúsum vorum, til íhugunar, hversu afarnauðsynlegt Það sje að gefa gaum að áhrifum lita, Þegar máluð eru her- bergi sjúkrahúsanna, væri tilgangi min- um náð. Frk. Martha G-uðnadóttir hefir frá 1.júli fehgið stöðu sem aðstoðarhjúkr- unarkona við sjúkrahúsið á Isafirði, Frk. Elsa Kristjánsdóttir, er hefir lokið námi s£nu við Fredriksberg spit- ala £ Khöfn, hefir verið ráðin aðstoð- arhjxkrunarkona (Vikar) að heilsuhælinu á Vifilsstöðum sumarlangt.

x

Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna
https://timarit.is/publication/1235

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.