Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna - 01.07.1927, Page 8

Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna - 01.07.1927, Page 8
-e- ingstíma fyrir hjúkrunarnemana og var talin mikil framför. Við nánari athugun varð jeg Þess vör, að hjúkr- unarnemarnir á Þessum 6 mánaða undir- búningstíma voru aðallega notaðir til Þess að halda hjúkrunarkvennabústaðn- um hreinum - 03 var Þar innifalinn uppÞvottur á matarílátum, stigaÞvott- ur 0.fl. um leið og jurtagarðurinn umhverfis bústaðinn áttf algjörlega að vera undir Þeirra umsjón, Tvisvar í viku höfðu Þær kenslustund, £ tíma í hvert sinn, og var Þeim Þar aðallegá kent, hvernig Þær ættu að hegða sjer sem hjúkrunarkonur. Þetta er ekkert sjerstakt dæmi um, hversu hjúkrunar- nemarnir oft eru misnotaðir í starfi sí nu. Önnur aðferð er oft notuð í sama augnamiði, og er hún sú, að andlegir kraftar Þeirra eru beygðir, með Því að sýna Þeim hversu auðvirðilegar og vankunnandi Þær sjeu í byrjun námsins. Afleiðingarnar verða oft Þær, að hjúkrunarkonurnar missa starfsgleði sína og sjálfstraust. Þætti mjer lík- legt að Þessar aðferðir hjúkrunar- námsins sjeu orsökin til Þess,hversu sáraféum leiðtogum hjúkrunarkvenna- st jettin, í mörgum löndum. hefir á að skipa. Starfsgleði og trú á framför- um Þess eru tveir eiginleikar sem leiðtoginn verður að hafa. Til Þess að mæta kröfum nútímans, verðum við að hafa vakandi aug'a á breytingum og. nýjum hreifingum,Þeim, er nú ganga yfir heiminn. Við verðum að færa okkur í nyt alt Það heil- brigða og góða, sem vísindin og notk- un Þeirra hafa á boðstólum, t,d. hvað stjórnsemi og uppeldismál snertir. Okkur verður aó vera Það ljóst að hjúkrunarnám, sem var ágætt fýrir 10 árum síðan, er ekki nothæft nú. Tím- inn eykur Þroskaj ef viö óskum eftir góðum framförum fyrir hjúkrunar- kvennas t j e t tina, verða állir Þeir er hafa nám og uppeldi hjúkrunarr.ema með höndum, að gera að skyldu sinni að auka ment sína stöðugt og víkja eigi af Þroskabraut sinni á meðan Þeir haf- a Þessum störfum að sinna. Ein af stærstu skyldum og störfum hjúkrunarkonunnar er að kenna.'Þetta gildir fyrst 03 fremst heilbrigðis- hjúkrunarkonuna, sem á að vera, eins og sagt er í Ameríku "a missionary of healthj' Einnig á heimilishjúkrunarkon- an og spítalahjúkrunarkonan að skoða Það sem aðalskyldu sína, að hjálpa sjúklingnum til að öölast heilsu sína og síðan kenna honum að varðveita hana - hún má ekki ganga alveg upp í hjúkr- unaraðgerðum, sem veita sjúklingnum ró aðeins um stundarsakir; sjóndeild- arhringur hennar verður að vera víður. Og ekki síst verða Þær hjúkrunarkonur, er hafa undir höndum hjúkrunarnema,að vera kennarar bæði í orði og verki. Jeg hugsa mjer að Það sjé aðeins tímaspursmál, áður en Þess verður kraf- ist, að allar hjúkrunarkonur, sem hafa ábyrgð á námi ungu s túlknanna, að með- töldum deildarhjúkrunarkonum og aðstoð- arhjúkrunarkonum, verði að hafa fengið sjerstakt námskeið að hjúkrunarnáminu loknu. Þetta námskeið ætti að auka Þekkingu Þeirra á Þeirri sjergrein hjúkrunar er Þær velja sjer, og um leið gefur Það Þeim uppeldisfræðslu. Hin fullkomnasta hjúkrunarkensla er jeg hefi sjeð, er á Professor Pir- quets "Kinderklinik" í Wien, Þar sem hjúkrunarnemarnir við hið mikla "All- gemeines Krankenhaus" verða að vera 9 mánuði af hinum 3.ára námstíma sínum. Hjer verða deildir hjúkrunarkonunnar að bæta við sig sjerstöku námi, áður en Þær fa stöðu og kenna Þær síðan bæöi á sjúkradeildunum og í skólastofunura. Næsta blað kemur út í byrjún okt. Greinar og auglýsingar í Það verða að vera komnar til ritstjórnarinnar fyrir 1. okt. Samkvæmt brjefi,er Pjel,ísl.hjúkrun- arkvenna hefir borist frá "Dansk Syge- plejeraad" í Khöfn,getum vjer tilkynt, að meðlimir P.X.H. njóta framvegis sömu rjettinda og danskar hjúkrunarkon- ur á sumarbústað D.S. R. í Vedbæk. Staðurinn er tilvalinn til sumar- dvalar,húsið stendur á mjög fallegum stað,Eyrarsund blasir við og miklir skógar umhverfis. Boðið hefir verið Þakksamlega með- tekið frá fjelagsins hálfu og látum Það hjermeð berast,ef einhverjar ísl. hjúkrunarkonur vildu athuga Þetta. Afar heppilegt fyrir Þær sem dvelja í Danmörku.

x

Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Fjelags íslenskra hjúkrunarkvenna
https://timarit.is/publication/1235

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.