Pilsaþytur: málgagn Kvennalistans Norðurlandi vestra - 01.02.1991, Síða 2

Pilsaþytur: málgagn Kvennalistans Norðurlandi vestra - 01.02.1991, Síða 2
2 Vaffið er tímans krafa ! Útgefandi: Kvennalistinn Noröurlandi-vestra. Ábyrgö: Ágústa Eiríksdóttir. Ritstjórn: Sigríöur J. Friðjónsdóttir Steinunn E. Friöþjófsdóttir. Heimili: Grána Aðalgötu 21 Sauðárkróki. Blaðið er unnið í Húnaprenti. Oft var þörf en nú er nauðsyn á að koma konum að,á þeirra eigin for- sendum,því hart er í heimi.Þeir tímar er við nú lifum geta með sanni kallast vindöld og vargöld.Við Kvennalista- konur höfnum alfarið þeirri hagvaxtar- pólitík sem karlar hafa fundiö upp og ástunda af kappi,öllu lífi til tjóns. - Þeirri pólitík sem misbýður Móður Jörð og mannfólki svo freklega,að jafnvel höfundur Völuspár hefði skort orð til að lýsa þeim hörmungum. Á1 í öll mál hrópa þeir í kór og vekja upp villta drauma vítt og breitt um landsbyggðina, að minnsta kosti hjá þeim mönnum,sem ekki vilja vakna og líta augum þann auð er við blasir. Snúum nú baki við álgabbinu og öðr- um álíka patentlausnum stjórnarher- ranna en hugum þess í stað að raun- hæfum kostum varðandi framtíð byggðar í þessu gjöfula landi. Dýrmætasta auðlind hverrar þjóðar er fólkið sjálft og hugvit þess. Við Kvennalistakonur viljum að byggða- þróunin ráðist af vilja og getu fólksins sem landið byggir. Við teljum mjög brýnt að efla sjálfsstjórn og forræði byggðarlaga. Ekki er síður mikilvægt að ýta undir frumkvæði einstaklingan- na og fylgja eftir hugmyndum þeirra. Konur á landsbyggðinni skortir ekki hugmyndir þegar rætt er um atvinnu- mál,en það sem vantar er ráðgjöf og fjármagn til framkvæmda. Kvenna- listinn vill því að komið verði á fót sér- stakri kvennadeild við Byggöastofnin þannig að hugmyndir kvenna í at- vinnumálum mæti meiri skilningi og að- gangur að fjármagni verði konum auð- veldari. Eigi að færa valdið heim í hérað verður til að koma jal'nari skipting gæðanna. Sjávarfangið er okkar stærsta gullkista, en þar er gæðunum misskipt, svo ekki sé meira sagt. Núverandi kvótakerfi bitnar illa á einstökum svæðum auk þess sem það veldur óviðunandi ör- yggisleysi hjá því fólki sem byggir af- komu sína á sjávarútvegi, einkum fisk- verkakonum. Því vill Kvennalistinn að 80% leyfös heildarafla verði úthlutað til byggðarlaga með hliðsjón af lönd- uðum afla liðinna ára. Hvert byggðar- lagúthluti svo eftir sínum eigin reglum. í landbúnaöi viljum við koma upp svæöabúskap þar sem tekið tillit til landgæðar og nálægðar við markaöi. Með bættri meöferð og nýtingu land- búnaðar- og sjávarafurða og aukinni- fullvinnslu þeirra innan hvers svæðis, sköpum við störf og fjármuni. Aðstaðan er víða fyrir hendi og nægir þar að nefna sláturhús og skólaeldhús. Við teljum litlar einingar hagkvæm- astar í þessum efnum og því ber að ráðast gegn milliliðakerfinu sem drepur í dróma framkvæmdagleði fólksins í landinu. Á noröurlandi vestra eru að auki vannýttir ýmsir þeir möguleikar í atvinnumálum sem heita vatnið skapar. Ferðaþjónusta á mikla framtíð fyrir sér hér sem annarstaðar á landinu, ef menn flýta sér hægt. í Skagafirði á að stórauka ylrækt enda er markaður fyrir hollt íslenskt grænmeti langt frá því að vera mettaöur. Og næsta skref er að sjálfsögðu útflutningur afurða úr öllu kjördæminu frá Alexandersflugvelli. Ekkert af framangreindu getur orðið að veruleika ef við flækjumst í neti Brusselherranna því þá getum við með öllu kvatt íslenskan landbúnað og sjáv- arútvegi. Spyrnum því við fótum þar til Evrópubáknið hrynur undan eigin þunga eða gliðnar í sundur vegna ósættanlegra hagsmuna þjóða sem vilja halda áfram að vera þjóðir. Guðrún L. Ásgeirsdóttir, kennari Prestbakka Hrútafirði 50 ára Kvennalistinn setur manngildi ofar auðgildi. Sigríður Friðjónsdóttir, lögfræðingur Sauðárkróki 29 ára Konur ! Munið að það er fleira sem sameinar okkur en sundrar. Anna H. Bjarnadóttir, þroskaþjálfi Egilsá Skagafirði 31 árs Steipur, dustum rykið af ráðherrastólum. Kristín J. Líndal, húsmóðir Holtastöðum A-Hún. 41 árs. Milliliðalausan landbúnað ! Steinunn E. Friðþjófsdóttir, húsmóðir Sauðárkróki 40 ára Konur tökum til í eitt skipti fyrir öll ! Inga Jóna Stefánsdóttir, bóndi Molastöðum Fljótum 42 ára Verður er verkamaður launanna.

x

Pilsaþytur: málgagn Kvennalistans Norðurlandi vestra

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Pilsaþytur: málgagn Kvennalistans Norðurlandi vestra
https://timarit.is/publication/1237

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.