Pilsaþytur: málgagn Kvennalistans Norðurlandi vestra - 01.02.1991, Qupperneq 3
3
Ágústa Eiríksdóttir, hjúkrunarfr.
Sauöárkróki
42 ára
Stefna Kvennalistans er
heil í gegn.
Anna D. Antonsdóttir, kennari
Frostastöðum, Skagafirði
38 ára
Með lífssýn kvenna
að leiðarljósi.
■L Jóhanna R. Eggertsdóttir, verkakona
Þorkelshóli, V-Hún.
if* 52 ára
Rekjum upp- byrjum aftur.
pL_____________________________
Ingibjörg Jóhannesdóttir húsmóðir
Miðgrund, Skagafirði.
61 árs
Munum allar að glóðin kulnar
ef ekki er kynt undir.
LANDBÚNAÐUR
SÆTTIR ÞÚ ÞIG VIÐ:
-Að fullkomin sláturhús standi ónotuð
meiri hluta ársins?
-Að konur séu ekki hafðar með í
ráðum við mótun landbúnaðar-
stefnunnar?
-Hversu lítið unnar þær sauðfjárafurðir
eru sem finnast í kæliborðum og frysti-
kistum verslana?
-Að geta ekki fengið meira af hollu
íslensku grænmeti?
-Þá yfirbyggingu og miðstýringu sem
ríkir í landbúnaði?
-Hversu lítið er komið til móts viö
bændakonur við fækkun ársverka í
landbúnaði?
KVENNALISTINN VILL:
+ Bætta meðferð og nýtingu Iand-
búnaðarafurða og fullvinnslu þeirra
innan hvers svæðis.
+Að nýtt sé sú aðstaöa sem fyrir hendi
er til fullvinnslu afurða.
Hvetja til aukinnar lífrænnar ræktunar
og efla grænmetisframleiðslu.
+Auka áhrif kvenna á mótun og
stjórn landbúnaðar.
+Að dregið verði úr yfirbyggingu og
miðstýringu landbúnaðar og valdið flutt
heim í hérað.
+Styðja við frumkvæði bænda-
kvenna sem miðar að atvinnusköp-
un í sveitum.
Vorið er að koma!
Erum að fá mikið
úrval af vorfatnaði.
Fyrir krakka á
öllum aldri.
Alltaf eitthvað NÝTT.
GRUND VALLARATRIÐI:
ER ÞOLANDI:
-Að dagvinnulaun skuli ekki duga til
framfærslu?
-Að laun fiskverkafólks séu helmingi
lægri en reiknuð framfærsluþörf ein-
staklings?
-Að heildartekjur kvenna í fullu starfi
séu aðeins 60% af heildartekjum
karla?
-Að laun séu lækkuð með lögum og
kjarasamningar hafðir að engu?
VEISTU:
+Að Kvennalistinn fór ekki í stjórn vor-
ið 1987 þar sem ekki var gengið að skil-
yrði Kvennalistakvenna um lögbindingu
lágmarkslauna.sem vorið 1990 sams-
varaöi kr.73.000,-.
+Að launafrysting og fjötrun sam-
ningsréttar launafólks var óyfistígan-
legur þröskuldur að mati Kvennalista-
kvenna þegar tæla átti til fylgilags viö
núverandi ríkisstjórn.
S JÁVARÚTVEGUR:
VEISTU:
Að nokkrir einstaklingar og útgeröar-
aðilar ráða yfir helstu auðlindum
þjóðarinnar?
Að fiskverkendur kaupa fisk erlendis
dýrum dómum til vinnslu hérlendis?
Að afkastahvetjandi launakerfi í fisk-
vinnslu er heilsuspillandi og getur stefnt
mörkuðum fyrir fiskafurðir í hættu?
KVENNALISTINN VILL:
Að 80% heildarafli verði úthlutaö til
byggðarlaga sem ráðstafi honum eftir
eigin reglum.
Að 20% heildarafa renni í veiöileyfa-
sjóð og verði til leigu sölu eða til ráð-
stöfunar vegna sérstakra ráðstafana.
Að ekki sé heimilt að sigla með aflann
til sölu erlendis án þess að íslenskum
fiskkaupendum gefist kostur á að
bjóða í fiskinn til vinnslu hérlendis.
Að gæða-og nýtingarbónus leysi af-
kastahvetjandi launakerfi af hólmi.
Þegar ég var í sveitinni hérna í den, þá
óttaðist ég fátt meira en að detta niður
um flórgatið, ofan í skíthúsið, og
drukkna þar í öllum ósómanum. í dag
sýnist mér við öll vera á góðri leið með
að drukkna í heimsósóma miklum. En
sjá,til bjargar kemur Kvennalistinn með
öll sfn góðu mál. Því segi ég:
X-V!
Sigga.
Steinulk Tele iS arvert fax 35 smiðjan 106
35000
óna Eetgrei ndum stuðningska rl manni
k.mn mOr ei lengur nein l.ult
allt ljómar í glampandi sól
Sigga er i oruggu s.eti
og .svífur í raðherra stol
Jæja Búkolla mín,nú verður
aldeilis tekið til hendinni í
þjóðarflórnum!