Embla - 01.05.1986, Blaðsíða 8
8
EMBLA
* að mötuneyti verði komið á fót í
öl lum skólum.
* að athvarf og athvarfsiðja verði
fyrir alla bekki grunnskólans.
* að öll fötluð börn fái að njóta
þeirrar umönnunar og kennslu sem
nýtist þeim best.
* að jafnréttisviðhorf ríki í
skólum, svo stúlkur og drengir
séu jafn vel búin undir að lifa
og starfa í nútímaþjóðfé1agi.
* að Námsflokkar Selfoss verði
endurvaktir.
* að haldið verði áfram upp-
byggingu Fjölbrautaskóla Suður-
lands og byggð verði heimavist
fyrir skólann.
* að boðið verði upp á verkmenntun
jafnt og bóklegt nám í öldunga-
deild við Fjölbrautaskóla Suð-
urlands.
Æskulýðsmál
Virða ber þörf unglinga fyrir að
vera út af fyrir sig. Koma verður
upp félagsmiðstöð sem unglingar fá
sjálfir að taka þátt í að móta og
bera ábyrgð á. Þar verði ekki
eingöngu boðið upp á leiktæki og
myndbandasýningar, heldur hópvinnu
og uppákomur af ýmsu tagi.
Unglingarnir velji sjálfir fram-
kvæmdanefnd fyrir stutt tímabil í
einu, svo allir geti verið virkir í
star fi.
Um leið þarf að vinna að því að
rjúfa einangrun unglinga sem hóps
og tengja þá betur atvinnu og
félagslífi. Bæjarfélagið verði lát-
ið annast atvinnumiðlun fyrir ungl-
inga á sumrin, jafnframt því sem
það rekur vinnuskóla og skólagarða.
Mikla áherslu þarf að leggja á að
hvetja unglinga til að stunda
heilbrigt skemmtana1íf, án vímu-
efna. Koma þarf upp öflugu for-
eldrasamstarfi og fræðslu sem
stefni að breyttum viðhorfum til
neyslu vímuefna. Jafnhliða því sem
kapp yrði lagt á fyrirbyggjandi
starf þurfa þeir unglingar sem eru
í vandræðum að eiga kost á félags-
ráðgjöf og stuðningi.
Heilbrigðismál
Kvennalistinn legg-
ur höfuðáherslu á
heilsuvernd með
fyrirbyggjandi að-
gerðum og telur
brýnt að gert verði
átak í málefnum
aldraðra.
Kvennalistinn vill
* stórauka fræðslu í skólum um
heilbrigt líferni, rétt matar-
æði, holla líkamsrækt og skað-
semi hvers konar vímuefna.
* gera heilsufræði að sérstakri
skyldunámsgrein, einnig í efri
bekkjum grunnskóla og fram-
haldsskóla. Jafnframt að auka
fræðslu um kynlíf og getn-
aðarvarnir í tengslum við þessa
námsgrein. I leikfimikennslu
verði fyrst og fremst lögð
áhersla á líkamsrækt og holla
hreyfingu; samkennd og leik-
gleði í stað keppnisanda.
* að ráðnir verði til starfa við
Heilsugæslustöð Selfoss sjúkra-
og iðjuþjálfar sem hafi það
verkefni að líta eftir aðstæðum
á vinnustöðum og í skólum og
vinna að forvörnum sem stuðla að
bættri heilsu og heilbrigði.
Allir fái leiðbeiningar um rétt-
ar vinnustellingar og allir sem
þurfa fái sjúkraþjá1fun.
* að ráðinn verði kvenlæknir og
fæðingalæknir við Sjúkrahús Suð-
urlands og Hei1sugæs1ustöð Sel-
foss.
* að ráðinn verði félagsráðgjafi
við Heilsugæslustöðina.
* að sérstakt tillit verði tekið
til aldraðs fólks og það eigi
kost á reglubundinni læknis-
skoðun og heimilishjálp. Komið
verði á fót dagvistun fyrir
aldraða sem gætu þá dvalið