Embla - 01.05.1986, Side 9
EMBLA
9
lengur í heimahúsum. Byggðar
verði fleiri íbúðir fyrir
aldraða og framkvæmdum hraðað
við langlegudeild við Sjúkrahús
Suðurlands.
Menningar- og tómstundamál
Hvers konar listsköpun og menn-
ingarlíf þarf að fá að njóta sín,
t.d. með því að menningaráhugi
barna og unglinga sé glæddur, t.d.
með aukinni menningarstarfsemi í
skólum. Þar gæti verið um að ræða
aukna kennslu í leiklist, myndlist,
tónlist og bókmenntum, auk þess sem
bjóða mætti rithöfundum og öðrum
listamönnum að heimsækja skóla og
kynna verk sín.
Kvennalistinn vill
* að myndlistar- og leiklistar-
námskeið verði haldin i tengslum
við námsflokka eða öldunga-
deild.
* að húsnæði sem fyrir hendi er í
bænum verði betur nýtt til hvers
konar lista- og menningar1ífs,
t.d. salur Barnaskólans, anddyri
og kjallari Gagnfræðaskó1ans og
gamli Iðnskólinn.
* að kvikmyndasalur nýja Félags-
heimilisins verði sem fyrst
tekinn í notkun.
* að hraðað verði undirbúningi
svæðisútvarps fyrir Suðurland
með aðsetri á Selfossi.
* að Selfossbær veiti ekki áfenga
drykki við nein tækifæri.
Skipulag og umhverfi
Við viljum að raunveruleg áhrif
íbúa Selfossbæjar komi í stað þess
sýndarlýðræðis sem nú ríkir. Haft
skal samráð við íbúa um
skipulagningu nýrra hverfa og
endurskipulagningu eldri hverfa.
Við skipulag nýrra hverfa á að taka
mið af daglegum þörfum fólks;
atvinnu, dagvistum, innkaupum,
tómstundum og hvíld. Ibúðir og
atvinnufyrirtæki geta átt samleið
ef atvinnureksturinn spillir ekki
umhverfi sínu vegna mengunar eða
umferðar eða veldur íbúum öðrum
óþægindum.
Kvennalistinn vill
* að framkvæmdir verði í samræmi
við vilja íbúa við þéttingu og
blöndun byggðar.
* að lögð verði rækt við eldri
hverfi og fullnýttir þeir
möguleikar sem þau búa yfir. Við
endurnýjun þeirra ber að taka
tillit til byggðar, gróðurs,
náttúru og menningarverðmæta.
* að gerðar verði ráðstafanir til
að koma í veg fyrir að rusl og
ýmis úrgangur spilli umhverfi
bæjarins. Sérstaklega þarf að
sýna aðgát gagnvart viðkvæmu
lífríki Ölfusár.
* að lögð verði alúð við að búa
til skjólgóð útivistarsvæði og
reynt með öllum ráðum að gera
útiveru aðlaðandi og örugga
fyrir alla aldurshópa, t.d. með
bættri aðstöðu fyrir börnin
(hverfisvelli, boltavelli og
starfsvelli).
* að gatnakerfi nýrra hverfa verði
þannig hönnnuð að gönguleiðir
skólabarna verði sem öruggastar.
Iðkun hjólreiða er meiri á
Selfossi en víðast annars stað-
ar, og því er ástæða til að huga
að því sérstaklega hvernig
öryggi þeirra sem ferðast á
reiðhjólum verði best tryggt.
Sérstakir hjólreiðastígar væru
ákjósanleg lausn.
* að mörkuð verði framtíðarstefna
í húsnæðismálum þar sem áhersla
yrði lögð á félagslegar lausnir
og framboð á fjölbreyttu húsnæði
(m.a. leiguíbúðir) og tekið mið
af þörfum aldraðra og fatlaðra
og fjölskyldufólks með lítil
e f n i .
* að húsnæðissamvinnufélögum og
einstaklingum verði gert jafn
hátt undir höfði hvað lóðaút-
hlutun varðar.