Embla - 01.05.1986, Blaðsíða 12
BLAÐ KVENNALISTANS A SELFOSSI - 1. tbl. 1. árg
Abyrgðarmaður: Rannveig 01a dó 11ir
Senn líður að kosningum, það fer
áreiðanlega ekki fram hjá neinum.
Hvað er þá helst til marks um það?
Græni liturinn fyrst og fremst.
Þetta finnst víst einhverjum skrýt-
ið. Hvaða samband er nú á milli
græna litarins og kosninganna?
Jú, kosningarnar fara oftast fram
að vori til og á vorin fær jörðin á
sig langþráðan grænan lit. Að vísu
gerist það sem betur fer á hverju
vori, líka þegar ekki eru kosn-
ingar. Núna vorið 1986 er móðir
náttúra hins vegar komin á fullt í
kosningaundirbúningi og íklæðist
græna litnum áreiðanlega með sér-
stakri ánægju. Þannig styður hún
dætur sínar í Kvennalistanum sem
hafa valið græna litinn sem sinn
táknræna lit.
Græni liturinn er að tvennu leyti
einkennandi fyrir Kvennalistann. I
fyrsta lagi stefnir Kvennalistinn
að samfélagi þar sem virðing fyrir
lífi er undirstöðuatriði. Samfélagi
þar sem lifað er í sátt og jafn-
vægi við náttúruna. I öðru lagi er
græni liturinn táknrænn fyrir
starfsaðferðir Kvennalistans sem er
það sem kallað hefur verið gras-
rótarsamtök. Þar er enginn öðrum
meiri frekar en stráin í gras-
rótinni, og starfið byggist á
þátttöku og samvinnu. Hvorki er
kosin stjórn né formaður, heldur
framkvæmdanefndir þar sem engin
kona situr mjög lengi í senn.
Fleiri litir en sá græni minna á
kosningarnar. Að minnsta kosti sá
svarti; í formi prentsvertu. Flóð
af prentsvertu skellur í póst-
kassana og inn um bréfalúgur þessa
dagana. Flokksblöð koma út með æ
styttra millibili og frambjóð-
endur blasa við á hverri síðu.
Kvennalistinn, sem býður nú fram
í fyrsta sinn til bæjarstjórnar-
kosninga hér á Selfossi, hefur ekki
tekið þátt í þessu blaðakapp-
hlaupi. I þessu eina blaði sem
dreift er til allra bæjarbúa
birtist framboðslisti og stefnu-
skrá Kvennalistans. Þó stutt sé til
kosninga vonumst við til að fólk
geti gefið sér tóm til að kynna sér
sjónarmið okkar, áður en það gerir
upp hug sinn.
Kosningaskrifstofa Kvennalistans
á Tryggvagötu 18, sími 1503.
Lítið inn - ræðið málin og fáið
ykkur kaffisopa.
I----------------------------------1
FRAMBOOSFUNDUR ALLRA LISTA
Haldinn í íþróttahúsi
Gagnfræðaskóla Selfoss
miðvikudagskvöldið 28. maí
kl. átta.
(Stefnt er að því að útvarpað
verði frá fundinum)
Konur! Komum allar!
Verum virkar - veljum V
Fjölrítun Prentsel