Kvennalistinn í Hafnarfirði - 01.02.1986, Page 2
Kvennalistinn
Utgefandi:
Kvennalistinn í Hafnarfirði
Ábyrgð:
Ása Björk Snorradóttir
Guðrún Guðmundsdóttir
Myndskreyting:
Ása Björk Snorradóttir
Póstfang:
Austurgata 47
220 Hafnarfjörður
Blaðið er unnið í
Prentsmiðju Hafnarfjarðar hf.
Hvað vilt þú?
í kosningunum 31. maí munu bæjarbúar
velja fulltrúa til setu í Bæjarstjórn Hafnar-
fjarðar næstu fjögur árin. •
Fulltrúar Kvennalistans bjóða nú í fyrsta
sinn fram krafta sína í þágu bæjarfélagsins.
Þau mál sem við munum leggja áherslu á
í bæjarstjórninni næsta kjörtímabil eru með-
al annars:
— Að reynsla og menning kvenna og karla
verði metin að jöfnu sem stefnumótandi
afl í samfélaginu.
— Að valddreifing í stjórnkerfi bæjarins
verði aukin.
— Að áhrif bæjarbúa á mótun umhverfis
síns verði tryggð.
— Að kjör kvenna í bænum verði bætt og
störf þeirra endurmetin til launa.
— Að dagvistarþörfinni verði fullnægt.
— Að skóladagur barna verði samfelldur
og komið verði á léttum málsverði í öll-
um skólum.
— Að sérstakt átak verði gert í æskulýðs-,
tómstunda- og atvinnumálum unglinga í
bænum.
— Að þjónusta við aldraða, fatlaða og ör-
yrkja verði stórbætt.
— Að leiguíbúðum á vegum bæjarins verði
fjölgað.
— Að uppbyggingu heilsugæslustöðvar
verði hraðað og megin áhersla lögð á
fyrirbyggjandi heilsugæslu.
— Að tryggt verði blómlegt menningar- og
tómstundastarf í bænum.
— Að tryggt verði fjölbreytt atvinnulíf og
atvinnuöryggi í bænum.
— Að lífríki og náttúra bæjarins verði virt.
— Að mannleg verðmæti sitji ávallt í fyrir-
rúmi við ákvarðanir í bæjarmálum.
Til þess að við Kvennalistakonur getum
unnið að þessum málum í bæjarstjórn þurf-
um við stuðning ykkar Hafnfirðinga.
Það eruð þið kjósendur góðir, sem getið
ráðið því hvort við fáum tækifæri til að vinna
að þeim málum sem við teljum til hagsbóta
fyrir bæjarfélagið.
AUKUM ÞVÍ ÁHRIF KVENNA
VELJIÐ V-LISTANN
V-LISTINN ER LISTI KVENNALISTANS
Ragnhildur Eggertsdóttir:
Kvennalistinn býður fram
Þegar Kvennalistinn haföi tilkynnt fram-
boö sitt til bæjarstjórnarkosninga í Hafnar-
firði, komu eðlilega upp ýmsar spurningar.
Þar á meðal hvað hefði valdið þessari á-
kvörðun. Kvennalistinn varð upphaflega til
vegna þess að konur voru ekki sáttar við
áhrifaleysi sitt í stjórnmálum. Síðan eru liðin
rúm þrjú ár og hlutur kvenna á opinberum
vettvangi hefur aukist. Það er vissulega
fagnaðarefni fyrir okkur Kvennalistakonur
enda enginn vafi á að þar er um bein áhrif
Kvennalistans að ræða.
Konur á framboðslistum
Þegar þetta er skrifað eru hér í Hafnarfirði
komnir fram fimm framboðslistar auk fram-
boðslista Kvennalistans. Á engum þessara
fimm lista skipar kona efsta sætið. Hver er
ástæðan? Gæti hún ekki verið sú að þeir
fimm flokkar sem standa að umræddum
listum, eru byggðir upp af körlum, þar er
unnið eftir leikreglum karla og út frá for-
sendum karla.
Jafnræði
Nú má enginn skilja orð mín svo að sjón-
armið og reynsla karla eigi ekki rétt á sér,
það eiga bara sjónarmið og reynsla kvenna
líka. Annað getur ekki talist réttlátt né eðli-
legt, bæinn byggja jú bæði konur og karlar.
Á því kjörtímabili sem nú er að Ijúka sitja í
bæjarstjórn ellefu bæjarfulltrúar þar af þrjár
konur. Ég efast ekki um að þessar þrjár
konur hafa lagt sig fram um að vekja athygli
á sjónarmiðum kvenna, en auðvitað hafa
störf þeirra verið bundin þeim flokkum sem
þær eru fulltrúar fyrir.
Þess vegna sérframboð kvenna
Við Kvennalistakonurálítum bestu leiðina
til að koma á jafnrétti í stjórnun bæjarins, að
koma með sérframboð kvenna á vegum
Kvennalistans. Þar eru virtar leikreglur og
starfshættir kvenna og í okkar hugum er
enginn efi um að það verður ekki aðeins til
að koma á jafnrétti heldur einnig til að auka
víðsýni, þegar teknar eru ákvarðanir um öll
þau mál erkomatil umfjöllunarog afgreiðslu
hjá bæjaryfirvöldum.
Konur höfum áhrif
Konur eiga ekki og mega ekki sætta sig
við áhrifaleysi. Reynsla þeirra og sjónarmið
verða að komast til skila, hvort heldur sem
er í stjórnmálum eða á öðrum vettvangi. Á-
hrifin sem konur geta haft í kjörklefanum
eru mikil en duga skammt ef þeim er ekki
fylgt eftir að afloknum kosningum.
Öll mál eru „kvennamál"
Það má heldur ekki gleymast að öll mál
koma okkur konum við. Það eru engin af-
mörkuð „kvennamál" né „karlamál". Það er
hins vegar forgangsröðun málanna eins og
hún er nú, sem við Kvennalistakonur erum
ekki sáttar við og bæði viljum og ætlum að
breyta. Öll viljum við aðbúnað bæjarbúa
sem bestan og veg bæjarins sem mestan.
Valddreifing og virkara lýðræði er undirstaða
þess að svo megi verða. Það er einmitt á
þeim forsendum sem Kvennalistinn starfar.
Kjósum því V-listann:
Kvennalistann