Kvennalistinn í Reykjanesi - 01.02.1985, Qupperneq 1
Hlustaðu nú á. í fyrsta lagi kastarðu of grunnt. I öðru lagi ertu með ómögulega beitu.
í þriðja lagi.......
UR MÖRGU AD VELJA
Á LISTAHÁTÍÐ KVENNA
Um þessar mundir stendur yfir
Listahátíö kvenna í tilefni þess að á
þessu ári lýkur kvennaáratug Sam-
einuðu þjóðanna. Hátíðin hófst
20. september og stendur til 13.
október.
Sérstök upplýsingamiðstöð er
starfrækt vegna hátíðarinnar í
Garðhúsinu að Vesturgötu 3. Þar er
opið frá kl. 14.00-18.00 alla sýning-
ardagana, síminn þar er 19560. Þar
er m.a. hægt að kaupa miða á kvik-
myndasýningar og veglega sýning-
arskrá.
Sýningar á vegum Listahátíðar
kvenna eru víðs vegar um bæinn.
T.d. má nefna sýningu á bygginga-
list íslenskra kvenna ( Ásmundarsal
og Vesturgötu, 3 en þar sýna nokkrir
kvenarkitektar hugmyndir sínar að
nýtingu húsanna að Vesturgötu 3. í
kjaliaranum á Vesturgötunni eða
Hlaðvarpanum eru sýningar á
Reykjavíkursögum Ástu Sigurðar í
leikgerð Helgu Bachmann.
Á Kjarvalsstöðum, í Gallerí Lang-
brók og víðar eru myndlistarsýning-
ar á vegum Listahátíðar kvenna.
í Gerðubergi er .sýning á bókum
og bókarskreytingum íslenskra
kvenna. Þar flytur Leikfélag
Reykjavíkur dagskrá úr verkum
Jakobínu Sigurðardóttur. Ljós-
myndasýning er í Nýlistasafni. í
Norræna húsinu er póstkortasýning
og svo mætti lengi telja.
Kvikmyndahátíðin stendur frá 6-
13. október og verður hún í
Stjörnubíói í báðum sölum, á öllum
sýningum. Margret Von Trotta mun
opna sýninguna og flytja fyrirlestur á
meðan á hátíðinni stendur.
Tónleikar eru víðs vegar um bæ-
inn m.a. á Kjarvalsstöðum.
Það er sem sagt nóg að gera að
A þessu ári eru liðin 70 ár frá
því að íslenskar konur fengu
kjörgengi og kosningarétt til Al-
þingis. Strax í upphafi buðu kon-
ur fram sérstakan kvennalista
sem dugði samt ekki til að hlut-
fall kvenna á Alþingi kæmist yfir
5%. Það var ekki fyrr en Samtök
um Kvennalista komu til sögunn-
ar árið 1983 sem tala kvenna á
Alþingi jókst svo um munaði.
Þetta hafa fáir nefnt sem fjallað
hafa opinberlega um þessi tíma-
mót í sögu íslenskra kvenna.
T.d. má nefna að í sjónvarps-
þættinum sem sýndur var 19.
júní þá var ekki minnst á tilkomu
Kvennaframboðs og Kvennalista
á árunum 1982 og 1983.
Tölurnar tala sínu máli. Á Al-
þingi á árunum 1979-1983 voru
3 konur á þingi eða 5% þing-
manna. Eftir kosningarnar voru
þær orðnar 9 þar af 3 frá
Kvennalistanum. Aukninguna
viljum við að sjálfsögðu þakka
okkur enda er það staðreynd að
nú eru konur þó 15% alþingis-
manna. Það er samt ekki í réttu
hlutfalli við skiptingu kynja í
þjóðfélaginu en okkar þokar
áfram þó hægt miði.
s____________________________J
fylgjast með þessu öllu nú þegar
Listahátíðin stendur sem hæst.
Framkvæmdastjóri hátíðarinnar er
Guðrún Erla Geirsdóttir, en hún fékk
konur úr öllum listgreinum til sam-
starfs við sig til að undirbúa hátíð-
ina. Þar hefur gott starf verið unnið
svo við segjum húrra fyrir listakon-