Kvennalistinn í Reykjanesi - 01.02.1985, Page 2
Kvennalistinn
2
Hvers vegna Kvennalisti?
— Já, hvers vegna kvenna-
listi?
— Vegna þess aö þjóöfélagið
hefur ekki efni á því aö nýta ekki
reynslu kvenna og taka tillit til sjón-
armiða þeirra.
— Já, en standa ekki gömlu
flokkarnir opnir öllum konum?
— Jú, en þeim er boðiö að starfa
þar á forsendum karla til stuðnings
sjónarmiðum karla og samkvæmt
þeim leikreglum, sem karlar hafa
sett fyrir karla.
— Eru forsendur og sjónarmið
og leikreglur karla þá eitthvað
verri en kvenna?
— Nei, en þær virðast henta
fáum konum, þær njóta sín ekki við
þessi skilyrði, eins og þátttaka
kvenna í stjórnmálum sýnir.
— En hafa ekki allir gömlu
flokkarnir helstu baráttumál
kvenna á stefnuskrám sínum?
— Jú, en þeir sýna þeim litla
rækt, enda alltof fáar konur í áhrifa-
stöðum til að fylgja þeim eftir.
— Hvers vegna leggur
Kvennalistinn ekki áherslu á neitt
annað en svokölluð „kvenna-
mál“?
— í fyrsta lagi eru svokölluð
„kvennamál“ svo mikilvæg að dómi
Kvennalistans, að réttlætanlegt og
sjálfsagt er að leggja mesta áherslu
á þau. í öðru lagi vill Kvennalistinn
skilgreina öll mál sem kvennamál,
þ.e.a.s. að konum beri að láta til sín
taka í öllum málum, og það gerir
Kvennalistinn sannarlega, þótt hinu
gagnstæða sé gjarnan haldið fram.
— Eru ekki öll helstu baráttu-
mál Kvennalistans dæmigerð
eyðslumál? Þið viljið lengra fæð-
ingarorlof, aukið dagvistarrými,
hærri laun fyrir konur, samfelldan
skóladag, fullorðinsfræðslu,
bættar tryggingar heimavinnandi
kvenna. Þetta kostar allt peninga.
— Þetta eru ekki dæmigerð
eyðslumál að okkar mati, heldur
fjárfesting. Menntun er t.d. arðbær-
asta fjárfesting sem hugsast getur.
Heilbrigður og sjálfstæður einstakl-
ingur er þjóðfélaginu meira virði en
sjúkur og vansæll. Og mörg þessara
mála eru einfaldlega spurning um
jafnan rétt. En auðvitað kostar það
peninga, og þá komum við að for-
gangsröðinni. í hvað viljum við eyða
sameiginlegu fé okkar allra?
— Enhvaráaðfápeningana?
— / fyrsta lagi: Við viðjum breyta
forgangsröðun verkefna, og aðeins
sem eitt dæmi má nefna, að okkur
þykja virkjanaframkvæmdir hafa
notið alltof mikils forgangs undan-
farin ár, enda er meira en helmingur
rr........—....... \
VALHUS
FASTEIGNASALA
Reykjavíkurvegi 60
S: 651122
Mikid úrval eigna
á söluskrá
Pó vantar eignir
Verðmetum samdægurs
Gjörið svo vel að líta inn
■ Valgeir Kristinsson hdl.
■ Sveinn Sigurjónsson sölustj.
erlendra skulda þjóðarbúsins vegna
framkvæmda í orkumálum. / öðru
lagi teljum við mögulegt að auka
sparnað hins opinbera. Margar
utanlandsferðir og veislur eru t.d.
gjörsamlega óþarfar, og oft er það
bara spurning um að þora að brjóta
hefðir. / þriðja lagi teljum við enga
synd að skatta þá, sem eiga eignir
umfram hóflegt mark. Og / fjórða
lagi verður að byggja upp atvinnu-
greinar, sem skila okkur auknum
gjaldeyri, án þess að alltof miklu sé
kostað til, svo sem ferðaþjónustu og
smáiðnað af ýmsu tagi.
— Hvers vegna hefur Kvenna-
listinn engan formann?
— Þetta eru grasrótarsamtök,
þar sem allir eiga að hafa jafnan rétt
og aðstöðu til áhrifa og ábyrgðar.
— En ekki geta allir ráðið öllu?
— Hvers vegna ekki? Þær geta
a.m.k. reynt! í Kvennalistanum er
verkefnum og ábyrgð dreift eins og
frekast er unnt, og ákvarðanir eru
teknar sameiginlega á fundum
samtakanna. Það eru tíðir fundir í
þingflokki, þingráði og fram-
kvæmdaráði, og það eru félags-
fundir og svo auðvitað árlegur
landsfundur. Og allir þessir fundir
eru opnir öllum í Kvennalistanum.
— Hvernig hafa konur tíma til
að sækja alla þessa fundi?
— Hvernig hafa karlar tíma til að
sækja fundi? Fá þeir kannski aldrei
svona sþurningu? Auðvitað eiga
konur misjafnlega auðvelt með að
helga sig félagsmálum, og Kvenna-
listakonur þurfa oft að taka sér
„pólitískt frí“. Það skiljum við hinar
mæta vel og fögnum þeim, þegar
þær snúa aftur.
— En er ekki Kvennalistinn
bara lokaður klúbbur mennta-
kvenna með „allt á hreinu“?
— Langt því frá! Reyndu bara!
Útgefandi:
Samtök um Kvennalista í
Reykjaneskjördæmi
Ábyrgð:
Ragnhildur Eggertsdóttir
Sigrún Jónsdóttir
Pósfang:
Reykjavíkurvegur 16
210 Hafnarfjörður
Setning, prentun, bókband:
Prentsmiðja Hafnarfjarðar hf.