Kvennalistinn í Reykjanesi - 01.02.1985, Qupperneq 3
Hvar eigum við að vera ? Mynd: isg.
Áhrifaleysi kvenna í fslenskum stjórnmálum
hefur veriö mörgum áhyggjuefni um langt skeiö.
Ýmsar leiðir hafa veriö reyndar til að bæta úr því,
en árangurslítið.
Leið Kvennalistans hefur tvímælalaust skilað
mestum árangri, fjölgað konum á þingi, verkað
hvetjandi á konur og karla í gömlu flokkunum og
eflt verulega alla umræðu um málefni kvenna.
í þingstörfum leggja fulltrúar Kvennalistans að
sjálfsögðu áherslu á „mjúku málin", enda megin-
stefnan að hafa áhrif á forgangsröðun verkefna,
sem okkur þykir oft ósanngjörn.
Þetta hefur verið yfirlýst stefna okkar frá upp-
hafi og því ankannalegt, þegar þingmenn og aðrir
fárast yfir áherslumálum Kvennalistans, trúir sinni
gömlu skoðun, að skattamál og orkumál séu ólíkt
merkilegri og brýnni viðfangsefni en fóstrun og
uppfræðsla barna, svo að eitthvað sé nefnt.
Hér fer á eftir listi yfir þau mál, sem Kvenna-
listakonur hafa lagt fram á þingi á þessu kjörtíma-
bili:
AHERSLAN ER A
„MJÚKU MÁLIN“
Frumvörp til laga:
— um fæðingarorlof, þar sem gert er ráð fyrir
óskertu lágmarksorlofi í 6 mánuði til allra
kvenna án tillits til atvinnuþátttöku.
— um, að framlag atvinnurekenda til lífeyris-
trygginga verði hækkað um 1% til að afla
tekna til aukinna fæðingarorlofsgreiðslna.
— um átak í dagvistarmálum barna. Því var vís-
að til ríkisstjórnarinnar með tilmælum um úr-
bætur.
— til útvarpslaga, þar sem gert var ráð fyrir mikilli
valddreifingu innan Ríkisútvarpsins og greið-
ari aðgangi landsmanna að því, enda þótt
Ríkisútvarpið héldi einkarétti til útsendingar.
— um breytingu á lögum um Húsnæðisstofnun,
þar sem lögð er til fjölgun aðila, sem rétt eigi
til leiguhúsnæðis, byggðu á félagslegum
grunni.
Tillögur til þingsályktunar:
— um könnun á rannsókn og meðferð nauðgun-
armála og tillögur til úrbóta í þeim efnum.
Þessi tillaga var samþykkt, og 5 manna nefnd,
skipuð 4 konum og 1 karli, vinnurnú umfangs-
mikið starf, sem við væntum okkur mikils af.
— um friðarfræðslu í skólum og á dagvistar-
heimilum.
— um frystingu kjarnorkuvopna.
— um kennslugagnamiðstöðvar í öllum fræðslu-
umdæmum. Þessi tillaga var samþykkt á sl.
vori örlítið breytt.
— um kerfisbundna leit að brjóstakrabbameini
hjá konum. Þessi tillaga varsamþykktsl. vor.
— um athvarf fyrir unga fíkniefnaneytendur.
Þessari tillögu var vísað til ríkisstjórnarinnar.
— um endurmat á störfum kennara.
— um að meta heimilisstörf til starfsreynslu á
vinnumarkaði.
— um staðgreiðslu skatta.
— um úthlutunarreglur húsnæðislána vegna ein-
ingahúsa.
— um fjárframlög til níunda bekkjar grunnskóla.
— um átak í byggingu leiguhúsnæðis, sem verði
fjármagnað með sérstökum hátekjuskatti.
— um bætta aðstöðu hreyfihamlaðra f Þjóð-
leikhúsinu.
— um, að verðtrygging langtíma lána vegna
náms eða byggingar eigin húsnæðis verði
miðuð við vísitölu kauptaxta í stað lánskjara-
vísitölu.
— um eflingu ferðaþjónustu.
Hér er ekki rúm til að fjalla nánar um einstök
mál, rökstuðning fyrir þeim eða viðtökur á þingi.
Hér er heldur ekki rúm til að telja upp fyrirspurnir
til ráðherra, mál, sem Kvennalistakonur hafa stutt
og unnið að, án þess að eiga beint frumkvæði,
breytingartillögur við fjáriög og ýms önnur
þingmál, þátttöku í umræðum um ótal málefni, né
heldur störf Kvennalistakvenna í nefndum og ráð-
um á þingi og utan þings.
Því miður hefur okkur þótt fara lítið fyrir fréttum
af þróttmiklu starfi Kvennalistans í fjölmiðlum
landsins. Þar eiga aðrir greiðari aðgang og vísari
umfjöllun. En öll þingskjöl og frekari upplýsingar
um málefni Kvennalistans má fá á skrifstofu okk-
ar á Reykjavíkurvegi 16, Hafnarfirði, s. 651250,
hjá Kristínu Halldórsdóttur eða á skrifstofu þing-
flokksins, s. 11560. Viljum við eindregið hvetja
fólk til að hafa samband, leita upplýsinga og
koma eigin sjónarmiðum á framfæri.
K. H.
KÓPAVOGSKAUPSTAÐUR
Samband frá skiptiborði við: Bæjarskrifstofur, © 41570
AÐALSKRIFSTOFU, Félagsheimilinu 4. hæð. Opið kl. 8.30-15.00. Bæjarfulltrúar, viðtalstímar 1. og 3.
fimmtudag hvers mánaðar kl. 20-21. Bæjarstjóri, viðtalstímar mánudaga, þriðjudaga og föstudaga kl.
11-12. Bæjarritari, viðtalstímar mánudaga til fimmtudaga kl. 11-12. Bæjarlögmaður, viðtalstímar eftir
samkomulagi. Fjármála- og hagsýslustjóri, viðtalstimar mánudaga, miðvikudagaog föstudaga kl. 11-12.
TÆKNIDEILD, Félagsheimilinu 3. hæð. Opið kl. 9.30-15.00. Bæjarverkfræðingur, viðtalstímar þriðjudaga
til fimmtudaga kl.11-12. Aðrir viðtalstímar mánudaga til föstudaga kl. 11-12.
HEILBRIGÐISEFTIRLIT, Fannborg 3-5. Heilbrigðisfulltrúi, viðtalstímar mánudaga til föstudaga kl.11-12.
FÉLAGSMÁLASTOFNUN, Digranesvegi 12. Opið kl. 9-12 og 13-15. Viðtalstímar mánudaga til föstu-
daga kl. 11-12.
SKÓLASKRFISTOFA, Digranesvegi 12, sími 41863. Opið kl. 9-12 og 13-15. Skólafulltrúi, viðtalstímar
þriðjudaga og fimmtudaga kl. 11-12.
Parket og
gömul
viðargólf
Snyrtíleg og
fljótvlrk aðferð
sem auðveldlega
breytlr
gamla gólflnu
þínu í nýtt.
upplýslngar
í síma
91-51243
■ 92-3558 M