Kvennalistinn í Reykjanesi - 01.02.1985, Page 4

Kvennalistinn í Reykjanesi - 01.02.1985, Page 4
Kvennalistinn 4 Kristfn Halldórsdóttir: Atvinnumál eru líka kvennamál Eins og vera ber hjá grasrótarsamtökum sátum viö saman 15-20 konur og ræddum efni þessa blaðs, sem við höfðum ákveðið að gefa út. Ritstýrur settu upp ábúðarfullan svip, litu á þingkonu sína og sögðu: Við ætl- um að biðja þig að skrifa um atvinnumál í kjördæminu! Jahá, sagði undirrituð og fann að sjálfsögðu til mikillar ábyrgðar. Er ekki að orðlengja það, að verkefnið var innt af höndum, en við yfirlestur læddust efasemdir að skrifara. í þeirri grein, sem skrifuð hafði verið, var að finna helstu stað- reyndir um atvinnulífið í kjördæminu, hvern- ig það væri nú og hvernig það mundi að lík- indum þróast. Svolítið rembingsleg og þurr grein, ekkert vond sem slík, en hefði getað verið eftir hvaða pólitíkus sem var. Aha, farin að taka lit! Niðurstaða: Greinin var lögð til hliðar. Vissulega er frumskilyrði að gera sér grein fyrir ástandinu eins og það er og jafn- framt líklegri þróun. En þurfum við enn einn langhund um það? ■ Reykjaneskjördæmi þrískipt í örstuttu máli er ástandið svona: Reykja neskjördæmi skiptist í rauninni í þrennt, þ.e. Suðurnesjabyggðir, sveitir Kjalarness og Kjós og þéttbýlið í kringum höfuðborgina. Þegar rætt er um atvinnumál kjördæmisins beinist athyglin yfirleitt fyrst og fremst að Suðurnesjabyggðum, og má með nokkrum rétti segja, að þar séu vandamálin stærst — en með jafnmiklum rétti, að þar séu mögu- leikarnir ekki sístir. Suðurnesjabyggðir urðu útundan við framkvæmd byggðastefnu á 8. áratugnum, var neitað um fyrirgreiðslu á sömu kjörum og aðrir staðir úti um land nutu. Afleiðingin varð hægari uppbygging og endurnýjun í sjávarplássum Suðurnesja, sem aftur olli því, að þessir staðir eru að ýmsu leyti verr búnir undir það erfiðleikatímabil, sem yfir okkur hefur dunið og sér ekki fyrir endann á. Þá er herstöðin á Keflavíkurflugvelli annar þáttur, sem tafið hefur fyrir uppbyggingu at- vinnulífs á Suðurnesjum. ■ Fiskurinn blívur í Suðurnesjabyggðum er sjávarútvegur- inn meginundirstaða atvinnulífsins, og svo verður áfram, en augljóslega að ýmsu leyti í breyttri mynd. Allar líkur benda blessunar- lega til aukinnar fiskneyslu í heiminum og heldur ólíklegt, að við verðum í vandræðum með markaði, hvort sem er fyrir ferskan fisk eða unninn, ef gæðin verða sett ofar öllu. Auk þess sem allra færa verður að neyta til að bæta nýtingu sjávaraflans og auka fjöl- breytni í fiskvinnslunni er jöfnun vinnslutím- ans sameiginlegt áhugamál allra, bæði með tilliti til aukins atvinnuöryggis og betri mögu- leika til hagkvæmrar nýtingar. í því efni líta margir vonaraugum til þeirra rannsókna, sem nú fara fram á tvífrystingu og áhrifum hennar á gæði fisks. ■ Brýnast að bæta kjörin Brýnast alls er þó að bæta kjör fiskvinnslu- fólks, því það er ekki aðeins að fólkið sjálft ír =\ (S ELPV ARNIR s/f Reykjavíkurvegi 16- Pósthólf 159 - 220 Hafnarfjörður-Sími 651675 Veitum einnig eftirtalda þjónustu: - Fast eftirlit. - Ráðleggingar við val og staðsetningu tækja. - Viðtöl hjá viðkomandi aðilum. - Staðsetningarskýrslurtækja. - Skráningu og merkingu eldvarnarbúnaðar o.fl. ÖLL ELDVARNARÞJÓNUSTA FYRIR ÍBÚÐIR - FYRIRTÆKI - STOFNANIR - SKIP HÖFUM TILSÖLU • Reykskynjara • Eldvarnarteppi • Handslökkvitæki, allar gerðir • Sigkaðla • Brunaslönguhjól • Gasskilti • Ut-ljos • Neyðarlýsingar • Eldvarnar- viðvörunarkerfi • Slökkvikerfi • Reykköfunartæki o.m.fl.

x

Kvennalistinn í Reykjanesi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kvennalistinn í Reykjanesi
https://timarit.is/publication/1244

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.