Kvennalistinn í Reykjanesi - 01.02.1985, Page 5
Kvennalistinn
líði vegna óöryggis og illra launa, heldur er
þessi láglaunastefna farin að hrekja vant
starfsfólk frá þessari atvinnugrein, sem aftur
kemur fram í lakari vinnslugæðum. Sem
betur fer virðist nú loksins vaxandi skilning-
ur á því, hvílíkt alvörumál þetta er, hvernig
sem á það er litið, og verður naumast öðru
trúað en úr verði bætt fyrr en síðar.
En þótt sjávarútvegur sé og verði áfram
meginundirstaða í atvinnulífi Suðurnesjafer
nú vaxandi hlutdeild annarra greina. Ber þar
fiskiræktina hæst, enda skilyrði góð, ekki
bara á Suðurnesjum, heldur einnig víðar í
kjördæminu. Hlutdeild þjónustu og ýmiss
konar iðnaðar eykst hægt og sígandi, og
ferðaþjónusta er vaxandi atvinnugrein á
Suðurnesjum sem annars staðar á landinu.
■ Bjartasta framtíðarvonin
í því efni hljótum við m.a. að binda vonir
við jarðhitann og Bláa lónið. Þar er nú risið
lítið hótel, sem hefur þegar sannað tilveru-
rétt sinn og dregur að sér erlenda gesti í
meira mæli en það annar. Það þarf ekki að
vera fjarlægur draumur, að þarna rísi al-
hliða heilsustöð með fjölbreyttri lækninga- og
heilsuræktaraðstöðu. ( ferðaþjónustu eiga
íslendingar ýmsa möguleika ónýtta, t.d. að
bjóða upp á heilsurækt í umhverfi svo gjöró-
líku því sem annars staðar þekkist. Sú litla
reynsla, sem fengin er við Bláa lónið, lofar
góðu.
Jarðhitasvæðin í Svartsengi og Eldvörp-
um eru bjartasta framtíðarvon Suðurnesja,
því að í tengslum við þau eru möguleikarnir
mestir til nýsköpunar í vinnslu sjávarafurða,
fiskeldi, ylrækt, ferðaþjónustu og ýmsum
iðnaði. Er því eitt mesta hagsmunamál
kjördæmisins, að þessi svæði verði rann-
sökuð á fullnægjandi hátt sem allra fyrst.
í öðrum byggðum kjördæmisins má með
nokkrum rétti segja að hlutirnir gerist og
gangi rneira sjálfkrafa, auk þess sem íbúar
þar sækja atvinnu mikið til Reykjavíkur. Þar
er þó engu síður þörf á, að konur haldi vöku
sinni og standi fast á rétti sínum til atvinnu-
þátttöku og réttmætra launa. Og þar erum
við komin að kjarna málsins, eins og stjórn-
málamennirnir segja gjarna: Þátfíöku
kvenna og rétti þeirra til að hafa áhrifá mót-
un og uppbyggingu atvinnulífsins.
■ Konur mega ekki sætta
sig við áhrifaleysi
Við göngum nú í gegnum tímabil erfið-
leika og breytinga í atvinnuháttum. Fá orð
hafa líklega heyrst oftar nefnd í opinberri
umræðu undanfarin 2-3 ár en „nýsköpun"
og „uppbygging" í atvinnulífinu. í þeirri um-
ræðu hafa konur verið hljóðar, alltof hljóðar.
Þátttaka kvenna í atvinnulífinu hefur vax-
ið gífurlega síðustu tvo áratugi, og þær bera
nú uppi að miklu eða öllu leyti fjölmargar
starfsgreinar. Þar er náttúrlega fyrst og
fremst um að ræða hin hefðbundnu kvenn-
astörf, sem lúta að umönnun, uppeldi og
fræðslu, svo og fiskvinnsluna. Konur hafa þó
haslað sér völl á nánast öllum sviðum at-
vinnulífsins, en þær hafa hins vegar lítinn
þátt átt í mótun þess — enda aldrei spurðar.
Þetta þarf að breytast. Konur mega ekki
sætta sig við áhrifaleysi sitt og bíða þess
eins sem verða vill. Það er áríðandi, að þær
séu virkar í mótun og uppbyggingu atvinnu-
lífsins, en láti ekki karlana eina um það.
■ Hvað vilja konur?
Hvernig vilja konur, að atvinnulíf þróist á
næstu árum og áratugum?
Eru þær sáttar við þá áherslu, sem lögð
hefur verið á byggingu orkuvera og aukinn
þungaiðnað? Eða vilja þær efla smáiðnað
af ýmsu tagi?
Eru konur sammála því, að atvinnuþróun-
inni sé stýrt með mismunun í lánakjörum,
niðurfellingu gjalda eða á annan hátt?
Er staðið rétt að eflingu loðdýraræktar og
fiskeldis, sem nú njóta mestrar hylli stjórn-
valda?
Á hvað ber okkur að leggja áherslu við
GARÐABÆR Sveinatungu við Vífilstaðaveg
________________________________________5
eflingu útflutningsgreina? Vörur úr innlendu
eða innfluttu hráefni? Matvæli? Ullarvörur?
Húsgögn? Hugbúnað? Þekkingu, t.d. í
sjávarútvegi? Vilja konur stuðla að eflingu
ferðaþjónustu og þá á hvern hátt?
Óttast konur samdrátt í fiskvinnslu, og
hvernig er rétt að mæta þeim vanda?
Þetta er aðeins brot af þeim spurningum,
sem konur verða að spyrja sjálfar sig og
hver aðra. Og þær verða að koma skoðun-
um sínum á framfæri. Annars geta þær ekki
vænst þess að hafa áhrif á mótun og upp-
bygginigu atvinnulífsins.
■ Framtíð barnanna okkar
Við Kvennalistakonur höfum spurt okkur
þessara spurninga og margra annarra. í
svörum okkar leggjum við áherslu á þrjú
meginatriði: Við teljum íslendinga fyrst og
fremst matvælaframleiðendur og aö okkur
beri að leggja áherslu á framleiðslu úr inn-
lendu hráefni. Við viljum varðveita landið
okkar fyrir mengun og náttúruspjöllum og
erum sannfærðar um, að einmitt sú stefna
sé arðvænlegri til langframa en stóriðju-
stefnan. Við viljum, að mannlegi þátturinn sé
ekki minna metinn við mótun atvinnulífsins
en fjárhagslegur hagnaður.
Það er einnig bjargföst skoðun okkar, að
menntun og þekking sé grundvöllurinn að
uppbyggingu atvinnulífsins, og því beri að
leggja megináherslu á menntun og rann-
sóknarstarfsemi. Góð menntun uppvaxandi
kynslóðar er öllu öðru mikilvægara og raun-
verulega það eina, sem við getum ekki með
nokkru móti sparað við okkur.
Kvennalistinn heitir á allar konur að
hugsa um þessi mál, ræða þau og láta til
sín taka. Við megum ekki gleyma því, að
við erum að leggja grunninn að framtíð
barnanna okkar, framtíð, þar sem konur
eiga að vera jafnvirtir þátttakendur í at-
vinnulífinu og karlar.
Rekjum upp — byrjum aftur.
SNERRA HF.
Pósthólf 20 — 270 Varmá
Sími666620