Kvennalistinn í Reykjanesi - 01.02.1985, Qupperneq 7
Kvennalistinn
7
Breytt verdmætamat er það sem þarf
„Áfram stelpur, standa á fætur,
slítum allar gamlar rætur, þúsund
ára kvennakúgunar á þennan
hátt byrjar eitt kunnuglegt lag frá því
á Kvennaárinu 1975. Við í Kvenna-
listanum ætlum svo sannarlega að
halda átram og reyna að sjá til þess
að orð eins og kvennakúgun þurfi
ekki að heyrast í sönglagatextum
framtíðarinnar.
Kvennalistinn valdi þá leið að
bjóða fram til Alþingis eins og frægt
er orðið. Þar höfum við margt nýtt að
segja og öruggt má telja að með til-
komu Kvennalistans hafi málefni
kvenna og umræður um þau orðið
mun meiri en ella hefði orðið.
Hvað er svo sem nýtt við okkar
málaflutning. Jú, hið mannlega er
númer eitt. Peningar og dauðir hlutir
koma númer tvö. Já skrítið ekki satt,
en samt hið rétta að okkar mati. Ef
einhver skyldi halda að með þessu
væri meint að við viljum ekkert hafa
að segja um efnahagsmál þá er það
regin misskilningur. Þar viljum við
nefnilega koma með okkar reynslu
t.d. af stjórnun heimila, en eins og
allir vita þá hefur það löngum verið í
höndum kvenna að sjá um heimilis-
bókhaldið og reyna að láta enda ná
saman. Þar röðum við verkefnum
eftir því sem okkur finnst vera mikil-
vægast t.d. ef velja ætti á milli nýrra
teppa á heimilið eða að gera eitt-
hvað fyrir börnin, myndum við velja
að hugsa um velferð barnanna. Eins
má segja um rekstur þjóðarbúsins
við myndum frekar hafa gert eitt-
hvað fyrir börnin eins og t.d. láta
fjármagn renna til menntamála held-
ur en að byggja flugstöðina og hvað
þá Seðlabankahöllina.
Það er þetta sem við eigum við
þegar við tölum um breytt verð-
mætamat og þar af leiðandi aðra
forgangsröðun verkefna. Hið síðast
nefnda er einmitt megin atriði í
stefnu Kvennalistans.
Verðmætamatið sem nú ríkir
kemur skýrt fram í þeirri launastefnu
sem ríkir hér á landi og það hlýtur
að vera eitt áþreifanlegasta dæmið
sem allir skilja og sjá í kringum sig.
Konur hafa lægri laun almennt á
vinnumarkaðinum og störf sem þær
sinna eru yfirleitt lægra metin en
störf karla. Þessu viljum við breyta
og teljum að störf kvenna séu engu
síður mikilvæg en störf karla. Það
að konur séu ekki fjárhagslega sjálf-
stæðar er algjörlega óviðunandi að
Látum okkur nú sjá. Já ég sé hér að þú
hefur verið húsmóðir í 26 ár og alið upp
4 börn. En hvenær vannstu eiginlega
síðast?
okkar mati. Við viljum að konur hafi
tækifæri til að nýta sér menntun
sína á þann hátt er þær telja réttast-
an. Þær eiga líka að geta unnið
heima ef þær vilja. í dag er ekki um
neitt val að ræða og enn er litið á
konur sem varavinnuafl, sem hægt
er að senda inn og út af vinnumark-
aðinum eftir aðstæðum. Hingað til
hafa störf með dauða hluti t.d. um-
sjón peninga verið meira metin en
umönnun lifandi fólks, hjá hinu opin-
bera eru einmitt konur í störfum sem
tengjast heilbrigðis- og uppeldismál-
um og með réttu kallast láglauna-
störf. Þarna gæti ríkisvaldið lagt sitt
að mörkum og hækkað iaun allra
kvenna í störfum hjá ríkinu, sem
væru fyrir neðan ákv. tekjumark
þannig að þær hefðu sömu laun og
karlarnir. Það er nefnilega ekki nóg
að samþykkja lög um jöfn laun, eða
sáttmála um afnám alls misréttis
gagnvart konum ef hlutunum er ekki
fylgt eftir.
Til að ná fram meiri áherslu á þau
málefni sem standa okkur konum
næst, þarf hugarfarsbreytingu hjá
okkur öllum. Ekki bara stjórnmála-
mönnum heldur líka hverjum ein-
stökum. Við Kvennalistakonur vilj-
um að hið mannlega gildi sé sett
ofar auðgildi, að vinnuframlag ein-
staklingsins sé metið eftir því hvaða
áhrif það hefur á líf fólksins í landinu
bæði í dag og fyrir komandi kyn-
slóðir.
Blað
fyrir
konur,
skrifad
af
konum!
Vera, málgagn kvenfrelsisbaráttu
Áskriftarsími VERU er 22188
Marja Entrich ^ t*rj \
- græna línan t í
%JVA
Heilsuvörur fyrir húðina; andlit, hendur, fætur, líkam-
ann, hár, neglur og tennur auk vítamína og steinefna
í töfluformi.
Marja Entrich húðvörurnar hafa rétt hlutfall milli jurta-
fitu, jurtaolíu, vítamína, steinefna, collagen og elast-
ín.
Allt efni sem húðin þarfnast daglega.
Þessi vara hefur ekki verið prófuð á dýrum, en er
ofnæmisprófuð við Karolinska sjúkrahúsið og það á
mönnum.
Full ábyrgð og skilaréttur. - Persónuleg þjónusta.
„Ekkert á húðina
sem ekki má borða. “
NUNA
Sími 44721
%
JJ