Kjósum konur - 21.12.1981, Side 4

Kjósum konur - 21.12.1981, Side 4
Þar sem valdið er, þar er konan ekki - þar sem konan er, þar er valdið ekki. Þessi spaklegu orð, sem upprunnin eru frá kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, og lýsa vel þeim aðstæðum, sem konur búa við hvarvetna í heiminum, og einnig þeim aðstæðum sem liggja að baki kvennaframboðs. Kvennaframboð verður ekki til að ástæðulausu. Konur finna vanmátt sinn gagnvart því þjóðfélagi, sem þær hafa átt of lítinn þátt í að móta og það knýr þær til aðgerða. Þær sjá að það þarf vald til að hafa áhrif, og að réttindi sín fá þær aldrei með lagaboðum eingöngu. Konur hafa til þessa lítið starfað innan stjórnmálaflokkanna. Eins og flokkarnir eru uppbyggðir í dag höfða þeir ekki til kvenna. Þeir eru uppbyggðir af körlum og fyrir karla og þau viðfangsefni, sem verið hafa kvenna gegnum aldir, hafa hvergi komið þar nærri. Konur hafa þar nánast verið skrautfjaðrir og þeim skömmtuð áhrif. Það er vissulega álit okkar, sem að kvennafram- boði stöndum, að konum beri að starfa í stjórnmálaflokkum, og við álítum að með því að standa saman, muni þær geta haft áhrif á innra starf flokkanna á þann hátt, að þær geti síðar starfað þar á jafnréttisgrundvelli. Kvennaframboð er ekki lausn heldur einungis til að knýja til aðgerða; til að virkja fleiri konur; til að sýna að konur eiga margt sameiginlegt út fyrir stéttir og stjórnmálaflokka; til að sanna að þær eru ekki eftirbátar annarra þegna. Konur eru helmingur bæjarbúa, og við álítum að engin mál séu þeim óviðkomandi, en forsendur og reynsla þeirra hafa til þessa verið smár þáttur í allri málsmeðferð. Þær vilja réttindi til að vera konur, án þess þó að þurfa þar fyrir að afsala sér þjóðfélagslegri þátttöku, því hvort tveggja er jafn nauðsynlegt, og bæði karlar og konur þurfa að eiga þar aðild að. Við erum ekki eingöngu að berjast fyrir réttindum kvenna, heldur er markmið okkar að koma á þeim breytingum, sem geri körlum og konum kleyft að vinna saman á jafnréttisgrund- velli. Það felur í sér, að skilyrði og reynsla beggja séu jafnt metin, og að öll uppbygging frá grunni miðist við það. Konur eiga engan þátt í að móta það atvinnulíf, sem þær eru þátttakendur í, þær þiggja þar ein- göngu mola af borðum. Þær þurfa að heyja erfiða baráttu við lág laun, lítið atvinnuöryggi, heimilis- hald og barnaforsjá, allt í senn. Með kvennafram- boði viljum við gera breytingar til batnaðar, með því að nýta reynslu og þekkingu kvenna við uppbyggingu atvinnulífs og stjórnmála, en á þann hátt að ekki komi niður á börnum eða heimili. Þessvegna viljum við hvetja konur til aukinnar þátttöku, að vera virkar, að sækja um ábyrgðar- stöður, að starfa í stjórnmálaflokkum og hafa hvarvetna sem mest áhrif. Við teljum, að konur sameiginaðar á einum lista og með sterka hreyfingu að bakhjarli, hafi góða möguleika á að móta og fylgja eftir nýjum viðhorfum, sem byggð séu á þeirra sameiginlegu reynslu. Kvennaframboðið er tilraun okkar til að skapa betra samfélag og til að búa í haginn fyrir komandi kynslóðir. Stefnan í bæjarmálum. Kvennaframboðið leggur ríka áherslu á, að hugað sé að velferð fjölskyldnanna. möguleikum þeirra til samveru og innihaldsríks lífs, og jafnari skiptingu ábyrgðar á heimilishaldi og uppeldi. Kvennaframboðið mun setja fram nánari stefnu í hinum ýmsu málaflokkum, eftir því sem tilefni gefast til og þekking okkar á bæjarmálum eykst. Við breyttar aðstæður geta komið fram breytt viðhorf og þessvegna verður stefnuskráin ávallt í mótun. Eftirfarandi atriði eru meðal þeirra fjölmörgu mála, sem okkur fmnst þarfnast úrbóta og við viljum beita okkur fyrir. 1. Jafnréttismál. Við teljum að brýnt sé, að nú þegar verði stofnuð á vegum bæjarins jafnréttisnefnd, eins og kveðið er á um í samþykkt jafnréttisráðs frá 1975. Hlutverk slíkra nefnda er skýrt í þessari samþykkt, en við leggjum áherslu á, að hún beiti sér fyrirumræðum, fræðslu og upplýsingastarfsemi um jafnréttismál og stuðli jafnframt að því, að aflétt verði því misrétti kynjanna, sem ríkir á vinnumarkaði með tilliti til launa. starfsvals og atvinnuöryggis. 2. Jafnrétti og lýðræði í stjórnun. Mikið skortir á, að jafnrétti kynja ríki við skipan nefnda, ráða og stjórna bæjarins og fulltrúa bæjarins í hin ýmsu ráð. Við leggjum til að bæjarstjórn setji sér þá reglu, að konur eigi að jafnaði helming sæta í öllum fastanefndum, ráðum og stjórnum. Sama regla ætti að gilda um kosningu fulltrúa bæjarins í nefndir, stjórnir og ráð, sem bærinn á aðild að. I framhaldi af þessu teljum við að endurskipu- leggja verði fundartíma hjá bæjarstjórn, bæjarráði og nefndum, þannig að konum verði gert auðveldara um vik að starfa í þeim, án þess að þurfa að vanrækja heimili og fjölskyldulíf, líkt og karlar hafa gert hingað til. Við teljum að almenningur þurfí að hafa betra tækifæri til að hafa áhrif á ákvarðanatekt í bæjarmálum og betri aðstöðu til að fylgjast með störfum bæjarfulltrúa. Við leggjum því til, að haldnir verði opnir fundir um bæjarmál, a.m.k. tvisvar á ári. Einnig verði fræðsla um bæjarmál aukin og gefið út fréttabréf, sem sent yrði öllum bæjarbúum. Einnig teljum við, að koma þurfi á vel auglýstum viðtalstíma bæjarfulltrúa og for- manna nefnda. Komi upp ágreiningur um mál sem skipta miklu, skal höfð um þau almenn atkvæða- greiðsla. Einnig verði reynt að virkja fólk til aukinnar þátttöku með því að mynda hverfasamtök. Við teljum rétt og nauðsynlegt, að starfsfólk stofnana og fyrirtækja í eigu bæjarins (eða bærinn á hlutdeild í) kjósi úr sínum hópi einn eða fleiri fulltrúa í viðkomandi ráð, nefnd eða stjórn, og séu þeir ekki úr hópi æðstu stjómenda viðkomandi istofnunar eða fyrirtækis. Við leggjum áherslu á að jafna aðstöðu fólks vegna kynferðis, aldurs, heilsufars o.s.frv. Þar á móti verður að draga úr annarskonar útgjöldum, og tejum við að minnka megi ýmsan stjórnunar- kostnað, svo og útgjöld vegna ferðalaga, veislu- halda og risnu, þó á þann hátt, að bæjarfélagið haldi reisn sinni á opinberum vettvangi. 3. Dagvista-og uppeldismál. Við viljum að dagheimilum verði íjölgað í samræmi við eftirspum, þannig að foreldrar, sem þurfa eða vilja vinna utan heimilis, fái aðstöðu til þess. Um leið verður að gæta þess, að dagvistir verði ekki geymslustaðir, heldur góð aðstaða til leikja og náms. Þess vegna er nauðsynlegt að búa vel að þessum stofnunum og starfsfólki þeirra fjárhagslega, og skal starfsfólk haft í ráðum varðandi allan búnað þeirra. Gæta verður þess að ofbjóða ekki börnum með of langri dvöl þeirra á hverjum degi. Nauðsynlegt er, að börn geti verið sem lengst hjá foreldrum sínum í frumbernsku, til dæmis með því ■ K VENNA FRA MBOi að lengja fæðingarorlof í sex mánuði, sem foreldrar gætu skipt á milli sín að eigin ósk. Einnig er hugsanleg leið, að foreldrar sem væm heima hjá börnum sínum, fengju borgaða þá upphæð sem bærinn annars greiddi til dagvistar, ef börnin dveldu þar. Einkum væri þetta nauðsynlegt fyrir einstæða foreldra, en mjög er brýnt að aðstæða þeirra verði bætt, þannig að börn þeirra búi við svipað öryggi og önnur börn. , Við viljum lýsa yfir stuðningi okkar við það forvarnarstarf, sem hafið er á vegum fræðsluyfir- valda og við teljum afar nauðsynlegt að auka alla almenna fræðslu og umræðu um uppeldismál og þarfír barna. 4. Skólamál Verulegra umbóta er þörf í skólamálum bæjarinS' Þar teljum við fyrst og fremst að auka þurf* umræðu um innra starf og markmið skóla og auka samvinnu milli þeirra og heimilanna. Æskilegteb að foreldrar hafí umsagnarrétt um námsefni og kennslutilhögun. Námsefni þarf að vera í mein tengslum við umhverfí og atvinnuvegi og auka þarf fræðslu um notkun fíkniefna, um kynferðis' mál og getnaðarvarnir, um uppeldis- og sambúð- armál, um uppbyggingu og stjórnun bæjarfélagS' ins og þjóðfélagsins alls. Mikil þörf er á að jafna aðstöðu nemenda 1 hinum mismundandi skólum bæjarins, hvað varðar útivistarsvæði, kennslutæki, bókasöfn- íþróttaaðstöðu og aðstöðu til stuðnings og sérkennslu. Nauðsynlegt er að sérkennsludeildií fái viðunandi aðstöðu í hinum almennu skólum. Þó teljum við, að til þess að ytri búnaðuí skólanna nýtist sem best þurfí að verða miklaí breytingar á innra starfí þeirra. Skólar eru oi íjölmennir, bekkir og stórir og allan sveiganleik vantar í námsefni og kennslu. Við teljum að nám verði eðlilegra og árangursríkara, ef nemandinf fær að velja námsefnið sjálfur að einhverju leyti og geti stundað nám sitt með þeim hraða sem honufli hentar. Við teljum afar mikilvægt, að skólar séu smáif og dreifðir um íbúðahverfi. Þeir ættu ekki að vera fjölmennari en svo, að persónuleg tengsl myndis1 milli kennara, nemenda og foreldra, og vera staðsettir þannig að böm þurfí ekki yfmmiklm umferðargötur á leið til skóla. Samfelldur skólatími og mötuneyti er að okkaf áliti afar brýnt mál og sérstaklega fyrir mæður og börn. Því viljum við hvetja foreldra til aðstuðla að stofnun mötuneyta, sem foreldrar gætu ef til viH rekið sjálfír að einhverju leyti. Ráða þarf skólafulltrúa, sem hefði umsjóa með kennslu og skólahaldi í umboði skólanefndat' Við álítum einnig að auka þurfí og fullorðinsfræðslu og mætti hafa um það samvinm' milli menntastofnana í bænum. Jafnframt þarf a£l vera hægt að veita starfsþjálfun samhlið1' bóknámi. Einnig er nauðsynlegt að meta þátttöko1 atvinnulífínu til jafns við prófgráður. 5. Félags-og heilbrigðismál. Við viljum leggja áherslu á, að fólki sé ekki stía^ sundur eftir aldri, kynferði, heilsufari eða efnahag heldur beri beinlínis að blanda fólki sem mes saman í því skyni að skapa fjölbreyttara mannlí^ Því ber að stefna að því, að komið verði upP 4 - KJÓSUM KONUR

x

Kjósum konur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjósum konur
https://timarit.is/publication/1251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.