Kjósum konur - 03.12.1982, Side 4
HVERS KONAR LEIKFONG?
Þetta eru einhverjir fordómar í fólki ennþá
Þuríður Sigurðardóttir og Inga G. Tryggvadóttir
Við byrjuðum á því að heim-
sækja verslunina LEIKFANGA-
LAND, sem er ný verslun í
Sunnuhlíð. Þar hittum við að
máli Þuríði Sigurðardóttur, sem
afgreiðir þar, ogfengum góðfús-
lega leyfi hennar til að skoða
okkur um í búðinni og spyrja
hana nokkurra spurninga.
Þegar komið er inn í búðina,
verður fyrst fyrir augum
Playmobil og Legokubbar í
hyllum, og virðist mjög mikið af
því en einnig eru dúkkur talsvert
áberandi. Öllu er vel fyrir komið
og snyrtilega og greiðuraðgang-
ur að leikföngunum. Við spurð-
um Þuríði fyrst hvaða leikföng
seldust best:
- Enn sem komið er selst
pleimóið og legókubbarnir best,
og ýmsir hutir sem börn geta
glímt við, s.s. púsluspil.
- Er meira um það að börn
komi ein en i fylgd með
foreldrum?
- Ef börnin eru lítil koma
foreldrarnir með, en stærri börn
koma oft ein og þá venjulega til
að skoða eða kaupa eitthvert
smádót.
- Finnst þér foreldrarnir reyna
að hafa áhrif á val barnanna?
- Yfirleitt fá börnin að velja
sjálf og foreldrarnir kaupa það
sem þau benda á, sérstaklega ef
um ungt fólk er að ræða. Eldra
fólk spekúlerar meira í verðinu.
- Taka foreldrar alltaf fram
hvort þeir eru að kaupa fyrir
strák eða steipu?
- Já alltaf.
- Eru þá hér í búðinni
algjörlega skipt leikföng fyrir
stráka og stelpur?
- Nei mér finnst það ekki, en
foreldrunum finnst það, held ég.
Þetta eru einhverjir fordómar í
fólki ennþá. Það hefur til dæmis
aldrei komið fyrir að einhver
hafi sagst ætla að kaupa dúkku
handa strák.
- Eru dúkkurnar hérna kven-
kyns eða karlkyns?
- Við höfum aðeins eina gerð
af karlkyns dúkkum. Fólk
kaupir oftast dúkkur, sauma-
vélar o.þ.h. handa stelpum en
bíla og hasardót handa strákum.
Þó kemur fyrir að bílar eru
keyptir handa stelpum. Aftur á
móti er ,,Pleimóið“ keypt fyrir
bæði kynin jafnt.
- Seljið þið stríðsleikföng?
- Já við seljum meðal annars
riffla með púðurskotum og
vatnsbyssur. Svo eru við með
byssusett, sem eru eftirlíkingar
af útbúnaði frægra sjónvarps-
hetja.
- Hvers vegna seljið þið
stríðsleikföng?
- Eigendum verslunarinnar
var sagt að það yrði bara fretað á
leikfangaverslun sem ekki seldi
byssur, en þó er frekar lítil sala í
þeim. Fólk kemur ekki hingað
gagngert til að kaupa þessa hluti
og margir foreldrar virðast vera
á móti þeim, einkum konur og
yngri karlmenn.
Vinsældir
Ýmislegt hefur verið ritað um
leikföng. Um hvers konarleik-
föng séu æskileg á hverju
aldursstigi fyrir sig og hvernig
þau skuli stuðla að þroska
barna. En hverskonarleikföng
vilja börn? Kæra þau sig
eitthvað um öll þessi góðu leik-
föng? Hvað ræður helst óskum
þeirra?
Aður en við leitum svara við
þessum spurningum, skulum
við velta fyrir okkur hvað
leikur er og hve lengi börn
leika sér. Oft er sagt að leikur-
inn sé vinna barnsins. Betur
verður leikur ungra barna ekki
skýrður, því í leik læra þau um
veröldina og uppgötva sína
sérstöku hæfileika. Til 7 eða 8
ára aldurs er leikur og vinna
eitt og hið sama hjá börnum.
En þegar þauhafa náð valdi á
lestrartækninni verða bækur
og skóli aðaluppspretta fróð-
leiks. Gildi leikfanganna
breytist. Fyrir 9-10 ára börn
þýða leikföng, eins og fyrir
fullorðna, afslöppun og
skemmtun.
Ef spurður er stór hópur
barna.hvaða leikfangs þau óski
sér helst kemur fljótt í ljós að í
þeim efnum ríkir ákveðin tíska
hverju sinni ekki síður en á
öðrum sviðum. Auglýsingar
hafa gífurleg áhrif á barns-
sálina, börn láta mata sig
gagnrýnilaust á því hvað séu
flottustu og skemmtilegustu
leikföngin. Þetta kom greini-
lega fram í könnun, sem undir-
rituð gerði ásamt fleiri kennara-
nemum, í nokkrum islenskum
grunnskólum, fyrir fáum
árum. Þau leikföng, sem mest
höfðu verið auglýst vikurnar á
undan, voru efst á vinsælda-
listanum þegar á heildina var
litið og börnunum höfðu einnig
helst verið gefin þessi sömu
leikföng. Fóru þar sjaldnast
saman vinsældir og gæði.
Til samanburðar voru börn-
in spurð að því eftir hvaða
leikfangi þau myndu best
þegar til lengri tíma væri litið.
leikfanga
Þá kom önnur mynd í ljós,
allólík hinni fyrri. Þau leik-
föng, sem börnin mundu best
eftir, voru bangsar og brúður,
sem þau höfðu tengst tilfinn-
ingalegum böndum og kubbar
eða sambærileg leikföng, sem
gefa mikla möguleika á sjálf-
stæðri sköpun. Einnig leik-
föng, sem juku á tengsl barn-
anna við einhvern fullorðinn.
Til nánari skýringar skulum
við líta á svör nokkurra barna
við því af hverju þau myndu
best eftir viðkomandi leikfangi:
,,af því að hún svaf alltaf hjá
mér“,
„mér Hefur alt af þikið svo
vænt um Hann Bangsa Litla“.
„af því að mér þikir svo
gaman að búa til allt mögu-
legt úr þeim“,
„af því að ég fór oft í
hjóltúra með afa“.
Af þessum svörum tel ég
óhætt að álykta að óskir barna,
og það af hverju þau hafa
raunverulega mesta ánægju,
fari alls ekki alltaf saman.
Könnunin náði einnig til
leikfangaverslana á Akureyri
og í Reykjavík. I ljós kom að
við innkaup í verslanirnar ráða
uppeldissjónarmið litlu, gróða-
sjónarmiðin eru sett ofar öllu
öðru. Þar við bætist að af-
greiðslufólkið hefur oft litla
sem enga þekkingu á þeirri
vöru, sem það á að selja og er
því ekki fært um að ráðleggja
fólki um val á leikföngum. Því
hvílir mikil ábyrgð á foreldrum
og öðrum aðstandendum
barna að kynna sér tilgang
leikfanga og reyna að gera sér
grein fyrir því hvaða leikföng
henti því barni best, sem gefa á
i hvert skipti. Ýmislegt hefur
verið ritað um góð leikföng og
það er fullkomlega þess virði
að leita þá lesningu upp. Leik-
föng skipta miklu máli fyrir
þroska barna og unglinga, það
má segja að þau skipti mann-
inn máli frá vöggu til grafar.
Elín Stephensen
Innan Kvennaframboðsins hefur farið fram talsverð umræða um
uppeldismál og áhrif leikfanga á þroska og viðhorf barna. Þess vegna
lék okkur hugur á að kanna hvernig þeir aðilar sem stjórna
leikfangakaupum bæjarbúa, rækja hlutverk sitt og hvert sé viðhorf
þeirra til leikfanga.
Jafnframt vildum við kanna hversu mikið væri selt af leikföngum
sem hugsanlega hafi æsandi áhrif á börn og geti stuðlað að árásar-
hneigð, t.d. stríðsleikföng; hvort mikið er um leikföng, sem stuðla beint
eða óbeint að því að viðhalda hefðbundnum viðhorfum um hlutverk
kynjanna og stuðli að misrétti; hvort fræðsla og aukin þekking á gildi
leikfanga hafi haft áhrif á leikfangaval; og hvort fólk hafi einhvern
möguleika á að fá upplýsingar og leiðbeiningar um leikföng og
leikfangakaup, ef þess er óskað.
Með þessi atriði í huga fórum við undirritaðar á stjá og ákváðum að
heimsækja Gullasafnið og nokkrar leikfangaverslanir í bænum. Vegna
tímaskorts komumst við aðeins yfir að heimsækja tvær leikfanga-
verslanir, annars vegar alveg nýja verslun og hins vegar gamalgróna,
annars vegar ræddum við við afgreiðslustúlku og hins vegar
kaupmann. Afraksturinn af þeim samræðum sjáið þið hér á siðunni, við
látum lesendum eftir að dæma niðurstöðurnar og draga sínar
ályktanir.
Stelpumar íá eitthvað
í landbúnaðarstíl
Næst varferðinni heitið í verslun
Sigurðar Guðmundssonar. Það
sem fyrst bar fyrir augu er inn
var komið, var annars vegar
stórt sælgætisborð og hins vegar
gríðarlegt úrval af bílum af
öllum stærðum og gerðum. Við
hittum að máli verslunarstjór-
ann, Guðmund Sigurðsson, og
inntum hann eftir því hverju
þetta bílaúrval sætti:
- Þetta er svolítið skipt niður,
núna höfum við bílana og annað
strákadót aðallega frammi, svo
og ýmislegt smádót, en inni
erum við með stelpudót og
smábarnaleikföng.
- Þú gerir sem sagt greinarmun
þar á?
- Já það þýðir ekkert annað.
- Hvaða leikföng seljast best?
- Það er misjafnt eftir árstíð-
um og fer líka eftir því hvað
auglýst er í sjónvarpinu.
- Hefur það sömu áhrif ef þið
auglýsið eitthvað sjálf, t.d. í
blöðum?
- Nei, börnin lesa ekki blöðin,
sjónvarpsauglýsingar hafa lang
mest áhrif.
- Er munur á hvort foreldrar
eru að kaupa handa eigin börnum
eða annarra?
- Já fólk kaupir dýrari gjafir
handa eigin börnum og venju-
lega það sem þau benda á.
Stundum benda þó börnin á
eitthvað sem foreldrunum finnst
of dýrt og reyna þá að hafa áhrif
á þa§. Annars erum við ekki
með mikið af verulega ódýrum
leikföngum, við reynum að vera
með vandaða vöru en ekkert
drasl sem strax verður ónýtt.
Við erum t.d. með tréleikföng,
en það er nokkuð erfitt að fá
þau, það er lítið flutt inn af
þeim, vegna þess að þau seljast
ekki mikið og eru dýr.
- Eruð þið í einhverri samvinnu
við Gullasafnið?
- Já við höfum pantað fyrir
safnið.
- En fáið þið ráðleggingar frá
þeim um hvaða leikföng séu
heppileg?
- Við verðum að vera með þá
vöru sem selst best, þótt það
væri gaman að vera með meira
- Hvernig er salan í þroska-
leikföngum?
- Við höfum lítið af þeim eins
og er, en eigum von á Fisher-
Price, sem eru afar sterk leik-
föng og vinsæl, sennilega vegna
þess hve þau eru auglýst mikið.
- Finnst þér sjónvarpsauglýs-
ingar hafa mikil áhrif á leikfanga-
val?
- Já mjög mikil.
- Hver er dýrasti hluturinn í
búðinni?
- Það er dúkkuvagn á 1757,-
og pleimókassi á 1153.-. Odýr-
asti hluturinn er snuð á eina
krónu!
- Reynir þú að hafa áhrif á
valið?
- Ef fólk er óákveðið, bendi ég
á eitthvað sem ég veit að er
vinsælt.
- Finnst þér vera munur á
umgengni stráka og stelpna í
búðinni?
- Nei enginn, og þau koma
alltaf vel fram og eru tillitssöm
hér inni.
- Til hvers erum við að kaupa
öil þessi leikföng handa börnum
að þínu áliti?
- Þau eru ýmist keypt til að
hafa ofan af fyrir börnunum eða
til að þroska hæfileika þeirra.
Guðmundur Sigurðsson
af góðum leikföngum, en þau
seljast bara ekki eins vel.
- Reynið þið að hafa áhrif á
leikfangaval?
- Við reynum að leiðbeina
fólki með tilliti til þess hvað
varan má kosta.
- Bendið þið fólki á hvað sé
vinsælt eða þroskandi?
- Ja, þroskandi, það getur nú
verið tvíeggjað og má túlka á
ýmsa vegu.
- Hvert er gildi leikfanga að
þínu áliti?
- Börnin eira við þetta a.m.k.
einhverja stund, leikurinn er
þeirra vinna.
- Álítur þú þá að öll leikföng
séu þroskandi?
- Nei að ,vísu ekki, en
þroskandi að ákveðnu marki,
t.d. geta byssur verið þroskandi
að ákveðnu marki. Það var einn
góður læknir sem sagði að börn
sem léku sér með byssur fengju
útrás af því.
- Af hverju skyldi það vera
nauðsynlegt?
- Ja ég veit ekki, þetta virðist
vera eðli mannsins.
- Geta það verið áhrif frá
sjónvarpinu. Nú sjá börn hér ekki
fólk með dinglandi byssur úti á
götu?
- Nei, börn léku sér með
byssur í mínu ungdæmi, þegar
ekki var neitt sjónvarp. Núna
stendur þetta í kringum ösku-
daginn. Byssur eru yfírleitt ekki
keyptar í jólagjafir. Þetta breyt-
ist ekkert, hefur hvorki aukist
né minnkað. ........
Framhald a bls. 5
4 - KJÚSUM KONUR