Kjósum konur - 03.12.1982, Side 5
- Kaupa strákar fremur en
stelpur byssur?
- Já eingöngu. Þetta hefur
alltaf verið þannig og breytist
ekki, þrátt fyrir allt þetta jafn-
réttistal.
- Er það uppeldið?
- Ja, þetta kemur bara af
sjálfu sér, við erum bara ólík.
Það er í eðli stráka að leika sér
með byssur. Stelpur leika sér þó
kannski meira með byssur nú.
- Er alltaf kynskipting í
leikfangavali?
- Já alltaf. Strákar hafa engan
áhuga á dúkkum, þeir verða
formóðgaðir, ef þeir eru spurðir
hvort þeir vilji fá dúkku!
- Hvað með Playmobil?
- Það skiptist líka í ákveðna
hópa, þar eru til stríðsleikföng,
svo sem kúrekar og dátar og
strákar kaupa það, en stelpurn-
ar frekar eitthvað í landbúnaðar-
stíl.
- Finnst þér hafa orðið breyt-
ing á leikfangavali síðustu ár?
- Nei, það koma að vísu ný og
ný leikföng, en aðaluppistaðan
er enn sem fyrr bílar handa
strákum og dúkkur handa stelp-
um. Það breytist ekkert. Smá-
barnaleikföng eru þó ekki eins
kynaðgreind.
- Heldurðu að þetta sé eðlið?
- Já. Lékuð þið ykkur
kannski að bílum?
- Já, reyndar!
- Nú segir þú að sjónvarps-
auglýsingar hafí óskaplega mikil
áhrif og stjórni því hvað börnin
kaupa?
- Ja þær stjórna því ekki
öðruvísi en svo, að það selst
meira af því sem auglýst er.
- Hlýtur það ekki að þýða að
þær stjórni vali barnanna?
- Jú, það er ekki nema lítið
brot af börnum bæjarins sem
veit hvað fæst í búðinni, en
þegar þau hafa séð tiltekin leik-
föng í sjónvarpsglugganum, þá
koma þau til að spyrja eftir
þeim.
- Færast leikfangakaup alltaf í
vöxt?
- Nei það er samdráttur í allri
verslun núna.
Guðmundur er með leikföng
fyrir alla aldurshópa, frá smá-
börnum upp í fullorðið fólk
(risastór púsluspil og flugvéla-
módel).
Við gengum með honum um
búðina og báðum hann í leiðinni
að benda okkur á hentuga gjöf
handa táningastúlku. Hann
svaraði því til að lítið væri um
slíkt, það væri þá helst skraut-
munir eða einhverjar fígúrur til
að hengja upp á vegg. Við
rákum augun í efnarannsókna-
rafeinda- og smásjársett og
spurðum hann hvort þetta væri
ekki tilvalin gjöf handa táninga-
stelpunni. Guðmundur sagði að
einungis strákar eða feður þeirra
myndu kaupa þetta. Þessi sett
virtust afar fíókin og fylgja þeim
leiðbeiningar á ensku, en Guð-
mundur sagði þó að til stæði að
þýða þau.
- Er munur á leikfangavali
menntamanna og verkamanna?
- Já, já, menntamenn velja
vandaðri vöru, þeir virðast oft
þekkja vörumerkin eða hafa
kynnt sér þau.
- Munurinn liggur þá ekki í
verðinu?
- Nei það er ekki einhlýtt.
Við staðnæmumst við hyllu
með módelum og spyrjum hvort
þetta séu ekki leikföng sem hæfi
öllum jafnt? Stelpur kaupa
nánast aldrei módel að sögn
Guðmundar, enda eru módel
venjulega bílar og flugvélar,
aðspurður sagðist Guðmundur
ekki eiga neinar eldavélar til að
setja saman!
Fram kom að leikföng geta
verið í mismunandi tollaflokk-
um, t.d. eru spil í mismunandi
tollaflokkum eftir því hvort
þeim fylgir teningur eða ekki,
þess vegna eru t.d. sjónvarps-
leiktæki í háum tollaflokki. Og
púsluspil hækka í tollaflokki ef
þau innihalda yfír 100 bita!
Það síðasta sem fyriraugu bar
áður en út var haldið, voru
töffarar í gjafaumbúðum
(dúkkur fyrir stráka) sem horfðu
á eftir okkur kaldranalegir á
svip og færir í fíestan sjó eftir
útbúnaðinum að dæma. Kvenna-
framboðskonur hörfuðu og yfir-
gáfu þar með verslun Sigurðar
Guðmundssonar maulandi
ágætis súkkulaði sem þeim hafði
verið boðið upp á.
LU
Q
Vönduð leikföng:
Playmobil - Lego - Fischer price
Efnafræðisett - Smásjársett
Raffræðisett
Dúkkur - dúkkuvagnar - dúkkukerrur
Fjarstýrðir bílar - bílabrautir
Leikfangaúrvalið
er hjá okkur
Verið velkomin
að líta inn
marmburinnm
HAFNARSTRÆTI 96 SIMI 96*24423 AKUREYRI
Afvopnum uppeldisstöðvarnar
„Það ætti jafnvel að banna
leikfangahermenn. Vér verð-
um að afvopna uppeldisstöðv-
arnar“. . . .
P. Luisi, urugayanskur
stjórnarerindreki. . ..
Um fátt er meira rætt og ritað
þessa dagana en friðarhreyf-
ingar þær, sem skjóta nú
hvarvetna upp kollinum og
andstæður þeirra, styrjaldirn-
ar, sem háðar eru víðsvegar á
jörðiúni. Allir virðastsammála
um að stríð séu af hinu illa og
að tími sé kominn til að þjóðir
heimsins sameinist í baráttu
fyrirfriði. Spurningin eraðeins
hvernig verði best að slíkri
baráttu staðið.
Eitt af því, sem nefnt hefur
verið sem liður í baráttunni
fyrir friði er útrýming stríðs-
leikfanga, sbr. ummælin hérað
ofan. En hverjar eru ástæðurn-
ar fyrir því að fólk vill láta
banna stríðsleikföng? Nú vita
allir, sem umgangast börn, að
þau hafa mjög gaman af byssu-
leikjum og öðrum drápsleikj-
um og verður ef til vill ekki í
fljótu bragði séð að þau verði
verra fólk fyrir vikið. Er þá
nokkur ástæða að taka þessa
ánægju frá börnunum? Ymsir
aðilar hafa leitað svara við
þessari spurningu með
rannsóknum á því hvaða áhrif
eftirlíkingar morðtóla hafa á
leiki barna. Niðurstöður þeirra
eru flestar á einn veg: Stríðs-
leikföng auka árásargirni
barna. Auk þess benda ýmsar
athuganir til þess að stríðs-
leikföng.sem og stríðsmyndir
sjónvarps og kvikmyndahúsa,
eigi sinn þátt í að sljóvga þá
andúðartilfinningu fyrir of-
beldi og drápum, sem nauðsyn-
leg er íbúum jarðarinnar ef
friður á jörðu á að verða að
veruleika. Þar með höfum við
tvær gildar ástæður fyrir því að
gefa börnum okkar ekki stríðs-
leikföng:
Við verndum þau fyrir óæski-
legum áhrifum á ómótaða
huga þeirra
og
við leggjum okkar af mörkum
til baráttunnar fyrir friði í
heiminum með því að afvopna
uppeldisstöðvarnar.
Elín Stephensen
Ritgerð um stríðsleikföng
Stríðsleikföng eru tildæmis vélbyssur, skammbyssur, lugerar,
rifflar, handsprengjur og margt fleira. Það eru líka til litlir
hermenn sem kallast tindátar.
Eg keypti mikið af stríðsleikföngum en síðast þegar ég var í
Reykjavík heyrði ég sögu af strák, svo að ég missti allan áhuga á
striðsleikföngum. Sagan hljóðaði svona:
Það var einu sinni strákur, sem hafði leikið sér of mikið með
stríðsleikföng. Eitt sinn þegar hann var með strák tók hann
haglabyssuna sem pabbi hans átti Pabbi hans hafði verið á
rjúpuveiðum og hafði ekki tekið skotið úr. Hann þóttist ætla að
skjóta vin sinn og hleypti af og skaut hann.
Óttar, 10 ára.
UM BARNAFOT
Afar okkar og ömmur stóðu
ekki frammi fyrir þeim
vanda sem við gerum í
dag á vali barnafatnaðar, þá
var ekkert val. Með tilkomu
alls kyns gerviefna er okkur
vandi á höndum, öll viijum
við það besta fyrir börnin.
En hvaða kröfur eigum við
að gera til barnafatnaðar?
Fötin verða að vera þægileg,
hindra ekki hreyfingar barns-
ins og vera í samræmi við
hitastig umhverfisins. Auðvelt
að klæða börnin í og úr, vera
heldur við vöxt.
Fötin þurfa að . vera
auðveld í þrifnaði, slitsterk
og þola síendurtekinn þvott.
Loðin föt líta oft vel út í
búðarglugganum en oft
kemur annað í ljós í fyrstu
þvottum. Auk þess þurfa
barnaföt að vera litekta og
hlaupa sem minnst.
Besta efnið er án efa
bómull. Það sýgur vel í sig
raka og er sterkt. Efna-
sambönd svo sem bómull/
nylon eru oft notuð í ýmis-
konar teygjuefni (stretch).
Passa þarf við kaup á fötum
úr slíkum efnum að kaupa
ekki of lítið, þar sem ekki er
ætlast til að börnin teygi fötin
út. Bönd og teygjur mega
ekki þrengja að, sérstaklega
eru teygjur í sokkum vara-
samar.
Sum efni eru eldfimari en
önnur. Sem dæmi um slík
efni eru: bómull rayon og
akryl. Þessi efni eru kembd
upp og loft kemst auðveld-
lega á milli þráðanna, sem
gera efnin mjög eldfim. Síga-
rettuglóð eða neisti frá
eldspýtu geta auðveldlega
kveikt í fötunum og borist
með leifturhraða um allt,
því loðnari sem fííkin er því
hraðar berst eldurinn. Auk
þess að vera mjög eldfimt
hefur akryl þann leiða kost
að bráðna og getur bráðnað
inn í húðina og valdið
óbætanlegum skaða. Að
klæða börn nærfatnaði úr
akryl ætti aldrei að gera.
Akryl er oftast notað í
prjónles t.d. húfur, peysur,
vettlinga og sokka. Ef völ er
á öðru efni svo sem ull,berað
velja það fremur.
Á þessum tíma óðaverð-
bólgu og auraleysis er hverri
krónu marg velt, en ekki er
allt sem sýnist. Barnafatnað-
ur er dýr, en oft er betri
kosturinn dýrari. Að fjár-
festa fyrir framtíðina er þó
alltaf hagkvæmt.
Stöndum því vörð um börn-
in okkar og minnumst þess að
lengi býr að fyrstu gerð.
Helga Erlingsdóttir
Leikfangaland sf.
Sunnuhlíð - sími 25752
Fjölbreytt úrval af
leikföngum.
Vorum að fá
leikdagatöl
Op/'ð laugar-
daga frá kl.
9-12.
Gjörið svo vel að líta inn
KJðS'UM KONUR & 5 •'