Kjósum konur - 03.12.1982, Side 7

Kjósum konur - 03.12.1982, Side 7
 'V Næsta dagvist sem fyrirhuguð er að rísi á Akureyri er Hamarkot við Þórunnarstræti. Valdís Bjarnadóttir arkitekt hefur hannað þetta nýja hús. Hún hefur nú lokið við teikningarnar og hefur veitt góðfúslegt leyfi til að kynna þær hér. Eins og sést á teikningunum eru ýmis nýmæli á dagskrá. Húsið er sérstaklega teiknað inn í landslagið þar sem það á að rísa. Aðeins einn inngangur er fyrir húsið, sam- eiginlegur fyrir allar þrjár deild- irnar. Anddyrið myndar einnig stóran sal sem yrði sameiginleg vistarvera og gefur hann einnig ýmsa möguleika í notkun. Þannig gæti húsið þjónað fleiri markmiðum en sem dagvist, svo sem fyrir brúðuleikhús, kvik- myndasýningar og ýmsar sam- komur t.d. um kvöld og helgar. Eins og áður sagði er Hamarkot 3ja deilda dagvist. Fyrirhugað er að þar verði rekin dagheimilis- deild, þar sem börnin dvelja daglangt og fá heitan mat. Þar opnast möguleikar á vöggu- stofurýmum, en engin dagvist bíðst nú börnum á Akureyri undir tveggja ára aldri. Hinar tvær deildirnar eru ætlaðar sem leikskóladeildir þ.e. 4 stundir á dag. Einnig eru möguleikar á séraðstöðu fyrir þroskaheft börn. Rætt hefur verið um 5-6 stunda dagvistun, þar sem kom- ið hefur í ljós áhugi á þessu. Yfir salnum verður stór pallur og svalir í hring og þar gæti hugsan- lega verið hægt að hafa athvarf fyrir yngri skólabörn. Einnig gæti þetta verið nokkurs konar áhorfendapallur þegar sýningar fara fram í salnum. Útlit dagvistarinnar er afar skemmtilegt en látlaust hvað varðar litbrigði. Þó er fyrirhug- að að hver deild hafi sinn lit í opnanlegum gluggafögum og hurðum, en það verður gula, græna og bláa deildin. Sameigin- legt rými rautt. Þannig geta börnin líka betur áttað sig á hús- inu og vitað hvar þau tilheyra. Síðusel var tekið í notkun fyrir ári síðan. Það er því komin góð reynsla á þá dagvist. I Síðu- seli eru 3 deildir, ein dagheimilis- deild og 2 leikskóladeildir sam- tals fyrir um 70 börn. Eins og sést á teikningu er húsið aflangt og gengið inn í það á fleiri en einum stað. Reyndar er sam- eiginlegur inngangur á leik- skóladeildirnar, en annar fyrir dagheimilisdeildina. Salur er í miðju húsinu, en þar koma öll , börnin saman fyrst á morgnana. Útileiksvæðið er afar skemmti- legt með fjölbreyttum leiktækj- um. Gerð hefur verið til reynslu tilraun með 5-6 tíma leikskóla þar og er reynslan af því að sögn góð. Eru börnin þá í hádeginu í leikskólanum og fá heita máltíð og eru þá ýmist sótt kl. eitt eða tvö. Ekki hefur enn fengist heimild frá bæjaryfirvöldum til að bjóða almennt upp á þennan valkost. Kostnaður við bygg- ingu þessara tveggja dagvista, Síðusels og Hamarkots er áætl- aður á bilinu 7-10 milljónir króna á hvora miðað við full- búnar dagvistir, en ljóst er að Hamarkot yrði í hærri mörk- unum. KJÚSUM KONUR - 7

x

Kjósum konur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kjósum konur
https://timarit.is/publication/1251

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.